Sofnaði á rauðu ljósi

Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var aðfaranótt sunnudagskölluð að gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar en þar var kyrrstæð bifreið til trafala. Nokkrir vegfarendur voru á vettvangi og höfðu þeir árangurslaust reynt að vekja ökumanninn sem var í fastasvefni inni í bílnum. Lögreglunni gekk litlu betur að vekja manninn en bíllinn hans var bæði læstur og í gangi.

Um síðir vaknaði maðurinn þó af sínum væra blundi og gerði sig þá líklegan til að aka af stað en til þess kom þó ekki. Hann fékkst loksins til að opna bílstjórahurðina og var þá handtekinn og færður á lögreglustöð.

Illa gekk að yfirheyra manninn sem átti mjög erfitt með að halda sér vakandi en hann var annaðhvort undir áhrifum lyfja eða vímuefna. Maðurinn, sem er tæplega þrítugur og hafði þegar verið sviptur ökuleyfi, náði þó að skýra frá því að hann hefði sofnað þegar hann beið á rauðu ljósi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert