Unnið verði að stefnumörkun um atvinnuöryggi fiskverkafólks

Framkvæmdastjórn Starfsgreinasambandsins krefst þess að unnið verði að markvissri stefnumörkun um atvinnuöryggi verkafólks í fiskvinnslu þannig að geðþóttaákvarðanir kvótaeigenda geti ekki lagt lífsgrundvöll fjölda manns í rúst í einum vettvangi.

Þetta kemur fram í ályktun, sem samþykkt var á fundi framkvæmdastjórnarinnar á Siglufirði í dag.

Þar segir að kvótaeigendur, sem velja að hætta starfsemi og selja frá sér kvótann, haldi eftir milljarðahagnaði fyrir sig. Ójöfnuður og óréttlæti kerfisins blasi við, þar sem þeir sem skópu verðmætin, verkafólk og sjómenn, liggi óbætt hjá garði. Í því sambandi séu rök eiganda um háa vexti, hátt gengi krónunnar, hátt verð á aflaheimildum og leigukvóta afar léttvæg.

„Þegar atvinnulífi og hagsmunum fiskvinnslufólks er ógnað á jafn afgerandi hátt og raun ber vitni, þá erum við minnt óþyrmilega á, að við höfum í reynd enga tryggingu fyrir því að íslenskir kvótaeigendur landi ekki öllum afla sínum annars staðar, jafnvel í útlöndum. Þeirra er valið að fara með kvótann þangað sem þeim þóknast. Flateyrarmálið vekur einnig spurningar um það hvernig komið er fyrir rekstargrundvelli annarra smærri útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækja hér á landi. Munu þau leggja upp laupana eitt af öðru, af sömu ástæðum og Kambur ehf. og eigendur selja frá sér kvótann með hagnaði. Eftir situr fiskvinnslufólkið bundið átthagafjötrum verðlausra eigna í byggðarlögum lítilla atvinnutækifæra," segir í ályktuninni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert