Yfirlýsing frá STEFi
- Í tilefni af umfjöllun í fjölmiðlum síðustu daga um tónlistarvefinn „tonlist.is" og greiðslum fyrir not á tónlist á honum vill STEF taka fram eftirfarandi:
1. Samband tónskálda og eigenda flutningsréttar (STEF) og samnorrænu höfundaréttarsamtökin Nordisk Copyright Bureau (NCB) annast hagsmunagæslu fyrir íslenska sem erlenda tónhöfunda hér á landi, þ.ám. gagnvart umræddum tónlistarvef. Þessi samtök hafa hins vegar ekki með höndum réttindagæslu fyrir flytjendur, þ.e. hljóðfæraleikara og söngvara, eða hljómplötuútgefendur, heldur er það Samband flytjenda og hljómplötuframleiðenda (SFH).
2. Í gildi er samningur milli STEFs og NCB annars vegar og fyrirtækisins D3 hins vegar, þar sem fyrirtækinu er veitt heimild til að gera tónlist aðgengilega fyrir notendur á vefnum "tonlist.is" gegn ákveðinni greiðslu. Þessi samningur hefur verið í gildi frá árinu 2005 og er að öllu leyti sama efnis og sambærilegir samningar sem gerðir hafa verið á öðrum Norðurlöndum milli höfundaréttarsamtaka og þeirra aðila er selja aðgang að tónlist á Netinu.
3. D3 hefur staðið skil til STEFs/NCB á umsömdum höfundaréttargjöldum í samræmi við fyrrgreindan samning. Samkvæmt samkomulagi STEFs og systursamtaka þess á öðrum Norðurlöndum er það verkefni NCB að úthluta höfundum og öðrum rétthöfum greiðslum fyrir þessi tónlistarnot. Vegna þess að höfundagjöld fyrir þessi not eru hvarvetna í heiminum tiltölulega lág í samanburði við önnur höfundagjöld, t.d. af sölu tónlistar á hljómplötum og hljómdiskum, eru það því miður ekki háar fjárhæðir sem hver höfundur fær í sinn hlut.
Virðingarfyllst,
Eiríkur Tómasson,
framkvæmdastjóri STEFs.
Innlent »
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
- „Ýmislegt að vinna með okkur“
- Persónulegar illdeilur á Bergþórshvoli
- Uppsagnir og hagræðing
- Byssumaður var leikari
- Gæsluvarðhald staðfest í Hæstarétti
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 24. maí 2007, Innlent Von á greiðslum til tónlistarmanna
- Miðvikudagur, 7. maí 2008, Innlent Gengið frá ráðningu Jakobs Frímanns
- Föstudagur, 22. desember 2006, Innlent Forsætisráðherra segir ákvörðun S&P óvænta og óheppilega
- Miðvikudagur, 31. janúar 2007, Innlent Sannað að viðskiptavinir í verslun heyrðu í útvarpi á kaffistofu
- Mánudagur, 19. nóvember 2007, Innlent Lögbannskrafa tekin til greina og Torrent vefnum lokað
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































