Kona flutt á sjúkrahús eftir bílveltu í Óshlíð

Bíllinn valt upp fyrir veginn við Seljadalsófæru
Bíllinn valt upp fyrir veginn við Seljadalsófæru mynd/bb.is

Kona var flutt á sjúkrahús eftir að hún missti stjórn á bifreið sinni í Óshlíð í dag. Beita þurfti klippum til að ná konunni úr bílnum, sem er talinn ónýtur. Ekki er að sögn lögreglu vitað nákvæmlega um meiðsl konunnar, sem var ein í bílnum, en þau voru ekki talin alvarleg. Bíllinn valt upp fyrir veg, sem verður að teljast lán í óláni enda hlíðin snarbrött fyrir neðan veginn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert