Fyrstu síldinni landað á Eskifirði

Aðalsteinn Jónsson kemur með fyrstu síldina til Eskifjarðar.
Aðalsteinn Jónsson kemur með fyrstu síldina til Eskifjarðar. mbl.is/Helgi Garðarsson

Fyrstu síldinni á vertíðinni var landað á Eskifirði í dag þegar Aðalsteinn Jónsson SU 11 kom að landi með eitt þúsund tonn. Að sögn Karls Más Einarssonar útgerðarstjóra veiddist síldin norður af Rauðatorginu, austur af Glettingi. Veiðiferðin stóð yfir í viku og fer Aðalsteinn Jónsson aftur á síldarmiðin eftir löndun.

Síldin er í magrara lagi að sögn Karls og kjaftfull af átu.Til stendur að vinna síldina í samflök eða svokallaða flapsa og verður hún flutt á Austur-Evrópumarkað.

Sextán þúsund tonna síldarkvóti er enn óveiddur hjá útgerðinni og telur útgerðarstjórinn mjög líklegt að það náist að veiða allan kvótann. Síldin gengur nú vestar og vestar og stöðugt aukast líkur á vetursetu hennar úti fyrir Norðurlandi.

Útflutningsverðmæti síldaraflans í fyrra var tæpir 10 milljarðar króna og hafði aukist um rúmlega þriðjung frá fyrra ári. Síldin er að mestu leyti unnin til manneldis. Í fyrra voru markaðir fyrir frysta síld ekki eins góðir og árið áður og fór mest af síldinni í mjöl- og lýsisvinnslu. Verð á þeim afurðum var þá í sögulegu hámarki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert