Mun leita allra leiða til að aðstoða verkafólkið

Flateyri.

Flateyri. mbl.is/Loftmyndir ehf.

Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra segir allra leiða munu verða leitað til að aðstoða þá erlendu starfsmenn fiskvinnslunnar Kambs á Flateyri sem eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum sökum þess að þeir séu frá ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins, EES. Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga, skoraði í fyrradag á ráðherrann að beita sér í málinu og segir Jóhanna að reynt verði að finna fólkinu ný störf.

"Þetta eru líka einstaklingar sem kannski samkvæmt ströngustu túlkun væri hægt að vísa úr landi," segir Jóhanna, sem bætir því við að þeim verði gefið svigrúm til að sækja um atvinnuleyfi út frá nýjum forsendum. Síðan myndu þeir ganga með sama hætti og aðrir í allar vinnumarksaðgerðir sem yrðu gerðar á svæðinu.

"Ég geri ráð fyrir því að þeir sem eru með lögheimili á staðnum eigi rétt á að fá fjárhagsaðstoð frá félagsþjónustu sveitarfélaga þó að þeir eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum, þann tíma sem það tekur að útvega þeim ný störf."

Litið til reynslunnar af Glámu

Á sama tíma lagði meirihluti bæjarstjórnar Ísafjarðar fram tillögu sem felur í sér að atvinnumálanefnd bæjarins kanni möguleika á að stofna almenningshlutafélag sem einstaklingar, sveitarfélög, félagasamtök og fyrirtæki á norðanverðum Vestfjörðum ættu aðild að. Yrði markmið félagsins að kaupa veiðiheimildir og þannig tryggja fullvinnslu sjávarafurða á svæðinu.

Litið verður til reynslu af eignarhaldsfélaginu Glámu, en Gláma ehf. var stofnað 2002 með aðild Byggðastofnunar og nokkurra fyrirtækja á suðurhluta Vestfjarða, Þingeyri og á Drangsnesi. Í tillögunni er atvinnumálanefnd gert að skila tillögum til bæjarstjórnar eigi síðar en 15. júní nk.

Í hnotskurn
» Farið var yfir réttindi erlends verkafólks hjá Kambi á nokkrum tungumálum á fjölmennum starfsmannafundi á fimmtudag og þótti fjöldi spurninga til vitnis um þá óvissu sem uppi væri.
» Ekki gilda sömu kjarasamningar fyrir alla, munur er á samningum landverkafólks og sjómannasamningum.
» Túlkur og fulltrúar fjölmenningarseturs Ísafjarðar, fræðslumiðstöðvar Vestfjarða og Rauða krossins aðstoðuðu við að skýra stöðuna fyrir starfsfólkinu en alls munu um 120 manns missa vinnuna.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Flugvél Iceland Express í höfn

Framsetning flugmiðaverðs óskýr

14:40 Auðvelt er að gera verðsamanburð á milli bókunarvéla flugfélaganna á vefnum en mismunandi er hvernig verð flugmiða er sett þar fram. Getur þannig reynst viðskiptavinum flókið að átta sig á því í hverju hin ýmsu aukagjöld, sem eru hluti af fargjaldi, felast. Meira »
Daníel Guðjónsson yfirlögregluþjónn sést hér lengst til vinstri en við hlið hans standa Björn Jósef ...

Kærði undirskriftafölsun

14:37 „Manni líður ekki vel með það. Þetta er leiðinleg tilfinning og mér finnst ástæðulaust að sitja undir því og ætla ekki að gera það, þess vegna kærði ég þetta til að fara fram á rannsókn á því,“ segir Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn á Akureyri, í samtali við blaðamann mbl.is en Daníel er á meðal þeirra einstaklinga sem settir voru á meðmælendalista Ástþórs Magnússonar að sér forspurðum. Meira »

Ætla að meta lögmæti samningsins

Sveitarfélagið Garður.
14:33 Nýr meirihluti í bæjarstjórn Garðs ætlar að láta meta lögmæti samnings sem fyrri meirihluti gerði við Ásmund Friðriksson bæjarstjóra. Auglýst verður eftir nýjum bæjarstjóra í fjölmiðlum á morgun. Meira »

Rætt um að kaupa notaðar þyrlur

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF LÍF
13:50 Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra kynnti í ríkisstjórn í morgun hugmyndir um að kaupa tvær notaðar björgunarþyrlur sambærilegum þeim sem Landhelgisgæslan er nú með í notkun. Þessi kostur er ódýrari en að kaupa nýjar þyrlur. Meira »

Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna

Í ár tóku 250 bekkir víðsvegar um landið þátt í samkeppninni.
13:19 Úrslit í samkeppninni Tóbakslaus bekkur liggja fyrir en alls fá bekkir frá níu skólum á landinu verðlaun. Keppnin var haldin meðal meðal 7. og 8. bekkja í grunnskólum landsins. Meira »

Auðveldar fólki að sækja um búsetu

Úr safni.
14:11 Breytt fyrirkomulag við mat á þörf fólks fyrir dvalar- eða hjúkrunarrými tekur gildi 1. júní. Vistunarmatsnefndir dvalar- og hjúkrunarrýma verða sameinaðar og í þeirra stað verður ein nefnd í hverju heilbrigðisumdæmi; færni- og heilsufarsnefnd, sem metur þörf fólks fyrir þessi úrræði. Meira »

Sjálfstæðismenn ósammála um göngin

Frá fundi fjárlaganefndar Alþingis.
13:26 Sjálfstæðismenn í fjárlaganefnd klofnuðu í afstöðu til frumvarps um jarðgöng undir Vaðlaheiðargöng. Ásbjörn Óttarsson og Illugi Gunnarsson leggjast gegn frumvarpinu en Kristján Þór Júlíusson styður það. Meira »

Hjólin fá að snúast að nýju myndskeið

Hjol
12:23 Í dag hófst formlega hjólasöfnun Barnaheilla og flugfélagsins WOW þar sem landsmenn geta gefið gömul hjól með því að koma þeim á Sorpu en Mæðrastyrksnefnd mun sjá dreifingu hjólanna. Hjólin mega vera biluð því sérfræðingar munu lagfæra og gera við þau. Nemendur í Álfhólsskóla gáfu ónýtt hjól í dag. Meira »

„Hvatning til okkar beggja“

Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff.
12:12 „Þetta er ánægjuleg staðfesting á því sem við Dorrit höfum fundið á fundum, vinnustöðum og á viðræðum við fólk undanfarið,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, um nýja skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 þar sem hann mældist með 53,9% fylgi. Meira »

Fengu 9,8 í meðaleinkunn

Nýstúdentar frá Fjölbrautarskólanum í Garðabæ
11:49 Tveir nýstúdentar frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, Katrín Ásta Ingimarsdóttir og Sæþór Pétur Kjartansson, fengu 9,8 í meðaleinkunn í námi sínu. Meira »

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
11:51 Óvanaleg sjón blasti við íbúum Súðavíkur í morgun, en þá hafði einn íbúi bæjarins brugðið á það ráð að flagga fána Landsbankans öfugt, og í hálfa stöng. Meira »

Geir í nýtt starf

Geir H. Haarde
11:43 Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur gengið til liðs við OPUS lögmenn sem ráðgjafi í alþjóðlegum verkefnum.  Meira »

Mikið um reiðhjólaþjófnað

Mynd úr safni
11:39 Þjófnuðum á reiðhjólum hefur fjölgað umtalsvert í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum undanfarna daga.   Meira »

Tekinn á 134 km hraða

11:36 Ellefu ökumenn hafa verið staðnir að hraðakstursbrotum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók var á 134 km hraða á Reykjanesbrautinni. Meira »

Annað innbrotið á innan við viku

Mynd úr safni
11:29 Lögreglunni á Suðurnesjum barst í morgun tilkynning þess efnis að brotist hefði verið inn í fyrirtæki hjá Grófinni í Keflavík og þaðan stolið skrifstofubúnaði. Er þetta annað innbrotið í fyrirtækið í vikunni. Meira »

Ölvaður og réttindalaus

11:37 Ölvaður ökumaður, karlmaður á fertugsaldri, velti bifreið á Reykjanesbraut í fyrrinótt. Hann missti stjórn á bílnum sem hafnaði utan vegar milli akreina. Einn farþegi var í bílnum og sluppu báðir ómeiddir. Meira »

Ástþór losnar ekki við fyrirvara

Ástþór Magnússon og eiginkona hans Natalía Wiium.
11:34 „Ég veit ekki hversu margar þær eru en hann er búinn að skila viðbót núna,“ segir Katrín Theodórsdóttir, annar oddviti yfirkjörstjórna Reykjavíkurkjördæma norður og suður, aðspurð hvort hún geti staðfest að Ástþór Magnússon hafi skilað tæplega 200 viðbótarundirskriftum í morgun. Meira »

Með loftbyssu í farangrinum

Mynd úr safni
11:26 Lögreglunni á Suðurnesjum var í fyrradag gert viðvart um að karlmaður væri með loftbyssu og skotfæri í fórum sínum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Höfðu munirnir komið fram við skimun öryggisgæslu á farangri mannsins. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Nuddbekkjalök,Andlitslök,Nuddbelti,Nuddolía,Hitateppi,Nuddpúðar,Bekkjabreikkun,
Nuddbelti,Nuddolía,Hitateppi,Nuddpúðar,Bekkjabreikkun,Nuddbekkjalök,Andlitslök,N...
Kisi er týndur
Hann er hvítur og grábröndóttur og týndist í Fossvoginum í nánd við Gróðrarstöði...
Bókhaldsstofan ehf, Reykjavíkurv.60 Hfj.
Bókhald, launaútreikn., vsk-uppgjör, stofnun á félögum, ársreikningar, skattfram...
Til sölu kerrur
Til sölu þrjár kerrur, þar af ein lokuð farangurskerra. Smíðaðar úr ryðfríu stál...
 
15262 15263 og 15264 frístunda- og gestahús

Tilboð óskast í þrjú frístunda- og...
Útboð ljósleiðaravæðing

Skeiða- og Gnúpverjahreppur Útboð S...
Deiliskipulagstillaga á grundartanga

Deiliskipulagstillaga á Grundartang...
Aðalfundur lögfræðingafélags íslands

Aðalfundur Lögfræðingafélags Íslands ve...