Umferðarslys við Þingvelli

Umferðarslys varð skammt við Þingvelli nú um kl. 15, n.t.t. við gatnamót Þingvallar- og Grafningsvegar, þegar ökumaður bifreiðar missti stjórn á henni með þeim afleiðingum að hún fór út af og valt. Þrír voru í bifreiðinni og komust þeir af sjálfsdáðum úr henni að sögn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, sem sendi sjúkrabifreið á staðinn. Fólkið er ekki talið alvarlega slasað en verið er að flytja það á sjúkrahús í Reykjavík.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert