Lúðvík kjörinn þingflokksformaður Samfylkingar

Lúðvík Bergvinsson var kjörinn formaður þingflokks Samfylkingarinnar á fundi flokksins í morgun. Steinunn Valdís Óskarsdóttir var kjörin varaformaður þingflokks og og Árni Páll Árnason ritari þingflokks.

Lúðvík hefur setið á þingi frá árinu 1995 en Steinunn Valdís og Árni Páll eru nýkjörnir þingmenn Samfylkingarinnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert