Tveimur 12 ára stúlkum misþyrmt

Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar nú mál þar sem tveimur 12 ára gömlum stúlkum var misþyrmt en þrjár eldri stúlkur voru þar að verki. Læknir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hafði samband við lögreglu á sunnudag og tilkynnti um málið en yngri stúlkurnar höfðu leitað á Heilbrigðisstofnunina.

Lögreglan segir, að stúlkurnar tvær sem báðar eru fæddar 1994, hafi verið færðar með valdi upp í bifreið af þremur stúlkum, einni 17 ára og tveimur 15 ára. Óku þær stúlkunum tveimur í yfirgefið hús í Innri-Njarðvík og misþyrmdu þeim og svívirtu. Beittu þær höggum og rifu í hár stúlknanna og hræktu á þær. Einnig voru þær neyddar til að reykja gegn vilja þeirra.

Stúlkurnar þrjár er beittu ofbeldinu voru handteknar skömmu síðar og færðar á lögreglustöðina til yfirheyrslu. Þá var barnaverndarnefnd tilkynnt um málið. Stúlkurnar tvær, sem urðu fyrir ofbeldinu, hafa þegar lagt fram kæru.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert