Íbúabyggð í Örfirisey í forgang

Hér sést hversu mikið pláss olíubirgðastöðin tekur í Örfirisey.

Hér sést hversu mikið pláss olíubirgðastöðin tekur í Örfirisey.

Reykjavíkurborg hefur uppi hugmyndir um uppbyggingu 10-15 þúsund manna byggðar í Örfirisey. Baldur Arnarson sat fjölsótta ráðstefnu um skipulag í eynni og á tengdum landfyllingum.

Borgarráð Reykjavíkur hefur sett þróun skipulags byggðar í Örfirisey í forgang og segir Björn Ingi Hrafnsson, formaður starfshóps um framtíðarnotkun og skipulag í eynni, að vænta megi þess að framkvæmdir hefjist á svæðinu þegar á kjörtímabili núverandi borgarmeirihluta, gangi áætlanir eftir.

Standa vonir til að umrædd byggð styrki miðborgina, líkt og uppbygging á Mýrargötusvæðinu og í tengslum við tónlistarhúsið og hús sunnan við það að Lækjartorgi.

Reykjavíkurborg og Faxaflóahafnir sf. kynntu hugmyndir um uppbyggingu í Örfirisey í gær. gerir tillaga eitt ráð fyrir 15 hektara landfyllingu, tillaga þrjú fyrir 68 hektara fyllingu og tillaga fimm 156 hekturum.

Að sögn Björns Inga er ljóst að framkvæmt verði fyrir tugi milljarða í Örfirisey, ef af verður, en áætla má að verði tillaga fimm fyrir valinu verði hægt að koma fyrir 10.000-15.000 manna íbúabyggð á svæðinu, auk margs konar atvinnustarfsemi.

Hanna Birna Kristjánsdóttir, formaður skipulagsráðs Reykjavíkur, var á meðal ræðumanna í gær og sagðist hún binda vonir við að fasteignir á svæðinu yrðu komnar í sölu fyrir árslok 2017. Á svæðinu gæfist einstakt tækifæri í skipulagsmálum og markmiðið væri að tryggja fjölbreytta íbúðabyggð í Örfirisey sem gæti, ásamt byggð í Vatnsmýrinni, Geldinganesi, Úlfarsárdal og Reynisvatnsási, orðið eitt helsta framtíðarbyggingarsvæðið í borgarlandinu.

Hún sagði gæði, fjölbreytni og umhverfi lykilhugtök við uppbyggingu byggðar á landfyllingunni og að til greina kæmi að velja hóp arkitekta til að sjá um hönnunina. Byggt yrði þétt í anda miðborgarinnar en "hæð húsa að jafnaði hófleg".

Þörf á ítarlegu umhverfismati

Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, hélt einnig framsögu þar sem hann gerði framtíðarmöguleika á uppbyggingu íbúðahverfa í borginni að umtalsefni.

Með byggð í Örfirisey og í Vatnsmýrinni væri hægt að byggja 5.000 íbúðir og skapa jafnmörg störf á hvorum stað fyrir sig. Þessi byggð myndi ekki aðeins auka íbúaþéttleika, hún myndi einnig verða þjóðhagslega hagkvæm. Máli sínu til stuðnings benti Dagur á að áætlað væri að byggð í Vatnsmýrinni myndi spara þjóðarbúinu sem næmi 2,2 milljörðum króna á ári miðað við sambærilega byggð á Geldinganesi.

Því væri spáð að árið 2030 yrði íbúafjöldi í borginni frá 133.000 til 147.000 manns og þörf fyrir 14.200 til 20.700 nýjar íbúðir í borgarlandinu. Einkar brýnt væri að þetta fólk byggi sem næst miðborginni, ef reistar yrðu 5.000 íbúðir í Vatnsmýri og/eða Örfirisey fyrir 2030 þyrfti ekki að gera ráð fyrir uppbyggingu í ytri úthverfum, s.s. í Álfsnesi og á Kjalarnesi, en að byggt yrði í Úlfarsárdal og á Geldinganesi.

Þrátt fyrir að þannig væri ákjósanlegt að reisa íbúðir í Örfirisey taldi Dagur mjög mikilvægt að fram færi ítarlegt umhverfismat og að tilraun yrði gerð til að meta áhrif hækkandi sjávarborðs vegna hlýnunar lofthjúpsins á svæði fyrirhugaðra landfyllinga við Örfirisey.

Full blöndun byggðar óraunsæ

Auk Hönnu Birnu og Dags tók hollenski arkitektinn Sjoerd Soeters, sem hefur komið að hönnun uppfyllinga í Amsterdam, til máls. Mælti hann með því í samtali við Morgunblaðið að byggðin í Örfirisey tæki mið af andblæ Reykjavíkur. Háreist byggð til norðurs kynni að vera heppileg á eynni til að skapa skjól fyrir lágreistari byggð þar.

Jafnframt taldi Soeters augljóst að þétta þyrfti byggð í miðborginni í því skyni að efla mannlíf á svæðinu, hann væri andvígur verslunarmiðstöðvum en hlynntur því að minnka mannlaus og víð útirými. Þá þyrfti að skoða hvort mætti byggja á milli bygginga sem mjög rúmt væri um.

Daninn Karl-Gustav Jensen, framkvæmdastjóri Port of Copenhagen Ltd., varaði við því að blanda saman hávaðasamri atvinnustarfsemi og íbúðabyggð í Örfirisey. Reynslan í Danmörku sýndi fram á að það gengi ekki upp og að kvartanir íbúa gætu leitt til þess að fyrirtæki þyrftu að flytja starfsemina.

Framkvæmt fyrir vel á annað hundrað milljarða við höfnina á næsta áratug?

FRAMKVÆMDIR í Örfirisey munu kosta tugi milljarða króna, ef af verður, að því er Björn Ingi Hrafnsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, áætlar. Ráðgert er að uppbygging tónlistarhúss og nokkurra stórra bygginga sunnan megin við það kosti á bilinu 60 til 70 milljarða króna og má því gera ráð fyrir að heildaruppbygging þessara tveggja verkefna muni kosta yfir hundrað milljarða á næsta áratug, gangi áætlanir eftir.

Meðal bygginganna sunnan tónlistarhússins verður svokölluð "The World Trade Center Reykjavík"-bygging, sem þýða má sem "Heimsviðskiptamiðstöðin í Reykjavík". Verður hún 16.000 fermetrar og tekur miðrýmið mið af jöklum og ís í hönnun.

Alls nemur kostnaður við tónlistarhúsið um 15 milljörðum króna á núvirði og verður heildarbyggingarmagn á svæðinu 100.000 fermetrar ofanjarðar en 90.000 fermetrar neðanjarðar. Eru uppi hugmyndir um að reisa kvikmyndahús neðanjarðar.

Stefán Þórarinsson, formaður verkefnisstjórnar Portus hf., sem stýrir uppbyggingu tónlistarhúss, kynnti Heimsviðskiptamiðstöðina á ráðstefnunni í gær. Þar vék hann einnig að svokölluðu "W-Hótel Reykjavík", sem yrði eina fimm stjörnu lúxushótel landsins, í eigu Starwood-hótelkeðjunnar. Fjöldi herbergja yrði um 400 og stærð byggingarinnar 28.000 fermetrar. Miðað er við að hótelið verði opnað á vormánuðum 2010.

Stefán segir bjarta tíma framundan í athafnalífi á svæðinu. Þegar við bætist höfuðstöðvar Landsbankans og D-reitur, austan Ingólfsgarðs, megi ráðgera að um 20.000 ársverk og 1.800 ný störf skapist, ásamt um 4,6 milljarða gjaldeyristekjum. Efnahagsáhrif verði á við tvö álver Fjarðaáls við Reyðarfjörð.

Í hnotskurn
» Borgarráð samþykkti síðasta sumar að stofna tvo starfshópa um Örfirisey.
» Sá fyrri var stofnaður 20. júlí sem verkefnisstjórn, er falið var að gera áhættugreiningu og kostnaðarmat fyrir nýja staðsetningu olíubirgðastöðvar og möguleika á flutningi hennar úr eynni.
» 17. ágúst 2006 var starfshópi falið að kanna núverandi land og starfsemi og möguleika á landfyllingum.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Flugvél Iceland Express í höfn

Framsetning flugmiðaverðs óskýr

14:40 Auðvelt er að gera verðsamanburð á milli bókunarvéla flugfélaganna á vefnum en mismunandi er hvernig verð flugmiða er sett þar fram. Getur þannig reynst viðskiptavinum flókið að átta sig á því í hverju hin ýmsu aukagjöld, sem eru hluti af fargjaldi, felast. Meira »
Daníel Guðjónsson yfirlögregluþjónn sést hér lengst til vinstri en við hlið hans standa Björn Jósef ...

Kærði undirskriftafölsun

14:37 „Manni líður ekki vel með það. Þetta er leiðinleg tilfinning og mér finnst ástæðulaust að sitja undir því og ætla ekki að gera það, þess vegna kærði ég þetta til að fara fram á rannsókn á því,“ segir Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn á Akureyri, í samtali við blaðamann mbl.is en Daníel er á meðal þeirra einstaklinga sem settir voru á meðmælendalista Ástþórs Magnússonar að sér forspurðum. Meira »

Meta lögmæti samningsins

Sveitarfélagið Garður.
14:33 Nýr meirihluti í bæjarstjórn Garðs ætlar að láta meta lögmæti samnings sem fyrri meirihluti gerði við Ásmund Friðriksson bæjarstjóra. Auglýst verður eftir nýjum bæjarstjóra í fjölmiðlum á morgun. Meira »

Rætt um að kaupa notaðar þyrlur

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF LÍF
13:50 Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra kynnti í ríkisstjórn í morgun hugmyndir um að kaupa tvær notaðar björgunarþyrlur sambærilegum þeim sem Landhelgisgæslan er nú með í notkun. Þessi kostur er ódýrari en að kaupa nýjar þyrlur. Meira »

Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna

Í ár tóku 250 bekkir víðsvegar um landið þátt í samkeppninni.
13:19 Úrslit í samkeppninni Tóbakslaus bekkur liggja fyrir en alls fá bekkir frá níu skólum á landinu verðlaun. Keppnin var haldin meðal meðal 7. og 8. bekkja í grunnskólum landsins. Meira »

Auðveldar fólki að sækja um búsetu

Úr safni.
14:11 Breytt fyrirkomulag við mat á þörf fólks fyrir dvalar- eða hjúkrunarrými tekur gildi 1. júní. Vistunarmatsnefndir dvalar- og hjúkrunarrýma verða sameinaðar og í þeirra stað verður ein nefnd í hverju heilbrigðisumdæmi; færni- og heilsufarsnefnd, sem metur þörf fólks fyrir þessi úrræði. Meira »

Sjálfstæðismenn ósammála um göngin

Frá fundi fjárlaganefndar Alþingis.
13:26 Sjálfstæðismenn í fjárlaganefnd klofnuðu í afstöðu til frumvarps um jarðgöng undir Vaðlaheiðargöng. Ásbjörn Óttarsson og Illugi Gunnarsson leggjast gegn frumvarpinu en Kristján Þór Júlíusson styður það. Meira »

Hjólin fá að snúast að nýju myndskeið

Hjol
12:23 Í dag hófst formlega hjólasöfnun Barnaheilla og flugfélagsins WOW þar sem landsmenn geta gefið gömul hjól með því að koma þeim á Sorpu en Mæðrastyrksnefnd mun sjá dreifingu hjólanna. Hjólin mega vera biluð því sérfræðingar munu lagfæra og gera við þau. Nemendur í Álfhólsskóla gáfu ónýtt hjól í dag. Meira »

„Hvatning til okkar beggja“

Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff.
12:12 „Þetta er ánægjuleg staðfesting á því sem við Dorrit höfum fundið á fundum, vinnustöðum og á viðræðum við fólk undanfarið,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, um nýja skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 þar sem hann mældist með 53,9% fylgi. Meira »

Fengu 9,8 í meðaleinkunn

Nýstúdentar frá Fjölbrautarskólanum í Garðabæ
11:49 Tveir nýstúdentar frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, Katrín Ásta Ingimarsdóttir og Sæþór Pétur Kjartansson, fengu 9,8 í meðaleinkunn í námi sínu. Meira »

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
11:51 Óvanaleg sjón blasti við íbúum Súðavíkur í morgun, en þá hafði einn íbúi bæjarins brugðið á það ráð að flagga fána Landsbankans öfugt, og í hálfa stöng. Meira »

Geir í nýtt starf

Geir H. Haarde
11:43 Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur gengið til liðs við OPUS lögmenn sem ráðgjafi í alþjóðlegum verkefnum.  Meira »

Mikið um reiðhjólaþjófnað

Mynd úr safni
11:39 Þjófnuðum á reiðhjólum hefur fjölgað umtalsvert í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum undanfarna daga.   Meira »

Tekinn á 134 km hraða

11:36 Ellefu ökumenn hafa verið staðnir að hraðakstursbrotum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók var á 134 km hraða á Reykjanesbrautinni. Meira »

Annað innbrotið á innan við viku

Mynd úr safni
11:29 Lögreglunni á Suðurnesjum barst í morgun tilkynning þess efnis að brotist hefði verið inn í fyrirtæki hjá Grófinni í Keflavík og þaðan stolið skrifstofubúnaði. Er þetta annað innbrotið í fyrirtækið í vikunni. Meira »

Ölvaður og réttindalaus

11:37 Ölvaður ökumaður, karlmaður á fertugsaldri, velti bifreið á Reykjanesbraut í fyrrinótt. Hann missti stjórn á bílnum sem hafnaði utan vegar milli akreina. Einn farþegi var í bílnum og sluppu báðir ómeiddir. Meira »

Ástþór losnar ekki við fyrirvara

Ástþór Magnússon og eiginkona hans Natalía Wiium.
11:34 „Ég veit ekki hversu margar þær eru en hann er búinn að skila viðbót núna,“ segir Katrín Theodórsdóttir, annar oddviti yfirkjörstjórna Reykjavíkurkjördæma norður og suður, aðspurð hvort hún geti staðfest að Ástþór Magnússon hafi skilað tæplega 200 viðbótarundirskriftum í morgun. Meira »

Með loftbyssu í farangrinum

Mynd úr safni
11:26 Lögreglunni á Suðurnesjum var í fyrradag gert viðvart um að karlmaður væri með loftbyssu og skotfæri í fórum sínum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Höfðu munirnir komið fram við skimun öryggisgæslu á farangri mannsins. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Hobby 560 kmfe kojuhús til sölu árg 2007
Til Sölu Hobby 560 kmfe Exclusive,, útvarp sjónvarp dvd ,sólarsella, boiler ,álf...
Handfærasökkur
Eigum til handfærasökkur 2,6 kg á lager, einnig nýsmíði og viðhald úr ryðfríu st...
TILBOÐ TOYOTA LANDCRUSIER 90 VX FLOTT EINTAK 50 ÁRA AFMÆLISÚTGÁFA
Er með flott eintak af 50 ára afmælisútgáfunni af Toyota Landcrusier 90 VX. Ekin...
NÝJAR VÖRUR Í HVERRI VIKU
FLOTTUR BARNAFATNAÐUR, BARNAVÖRUR, SNYRTIVÖRUR OG MARGT FLEIRA - ERTU BÚIN AÐ KÍ...
 
Samkoma sunnudagur
Félagsstarf
Sunnudagur Kl. 11.00 Samkoma o...
12834 stofnstígur útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Stykkishólmur vatnshús við skipavíkurbryggju

Útboð Stykkishólmur, vatnshús við...
Útboðsauglýsing - faxaflóahafnir

Mynd af auglýsingu ...