Aukaverkanir af pillunni eins og öllum öðrum lyfjum

Getnaðarvarnarpillur eru lyf og líkt og öll önnur lyf fylgja þeim aukaverkanir. Ein þeirra er auknar líkur á blóðtappa. Forstjóri Lyfjastofnunar hvetur alla þá sem taka lyf til að lesa vel fylgiseðla.

Í viðtali við Fréttavef Morgunblaðsins í gær sagði Sonja Björg Fransdóttir, 24 ára, að hún hefði fengið blóðtappa og drep í lungu eftir að hún hafði tekið getnaðarvarnarpilluna Yasmin í um eitt og hálft ár. Þetta gerðist í febrúar sl. og finnur hún enn fyrir afleiðingum blóðtappans. Að sögn Sonju voru erfðafræðilegir þættir útilokaðir og ljóst hafi þótt að pillan hefði valdið blóðtappanum. Tilvikið hefði greinilega ekki verið tilkynnt innan kerfisins með fullnægjandi hætti og hyggst hún því hafa samband við landlækni.

Að sögn Rannveigar Gunnarsdóttur, forstjóra Lyfjastofnunar, er blóðtappi þekkt aukaverkun af inntöku getnaðarvarnarpillu. Það sé afar mikilvægt að fólk lesi fylgiseðla með lyfjum, sérstaklega ef þau eru tekin inn mánuðum eða árum saman eins og oft á við um getnaðarvarnarpillur.

Hefði átt að tilkynna

Rannveig sagði einnig að hefði Yasmin valdið blóðtappa, eins og Sonja Björg segir, hefði læknir að sjálfsögðu átt að tilkynna Lyfjastofnun um tilvikið. Engin slík tilkynning hefði borist.

Aðspurð sagði Rannveig að samkvæmt upplýsingum í aukaverkagagnagrunnum á Evrópska efnahagssvæðinu benti ekkert til þess að tíðni aukaverkana vegna Yasmin væri meiri en vegna annarra sambærilegra getnaðarvarnarpillna.

Á fylgiseðlinum með Yasmin kemur m.a. fram að notkun lyfsins, eins og annarra samsettra getnaðarvarnarpillna, auki hættu á blóðtappa. Meðal sérstakra þátta sem auka enn áhættuna eru reykingar, yfirþyngd og saga um blóðtappa í fjölskyldunni.

Í lyfjatexta Yasmin segir að faraldursfræðilegar rannsóknir hafi leitt í ljós að tíðni blóðtappa hjá konum sem taka slíkar pillur er 20-40 tilfelli á hvert 100.000 lífár (kvenár). Hjá þeim sem ekki nota pilluna er tíðnin 5-10. Jafnframt er lagt að læknum að skrá sjúkrasögu áður en pillunni er ávísað og vara við hugsanlegum aukaverkunum.

Í hnotskurn
» Í Morgunblaðinu í gær var sagt frá því, að tveir danskir læknar teldu að Yasmin-pillur hefðu valdið blóðtappa í tveimur stúlkum og dregið þær til dauða.
» Engin tilkynning hefur borist Lyfjastofnun vegna aukaverkana hér á landi af völdum Yasmin og ekki eru upplýsingar um aukna tíðni aukaverkana erlendis.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Flugvél Iceland Express í höfn

Framsetning flugmiðaverðs óskýr

14:40 Auðvelt er að gera verðsamanburð á milli bókunarvéla flugfélaganna á vefnum en mismunandi er hvernig verð flugmiða er sett þar fram. Getur þannig reynst viðskiptavinum flókið að átta sig á því í hverju hin ýmsu aukagjöld, sem eru hluti af fargjaldi, felast. Meira »
Daníel Guðjónsson yfirlögregluþjónn sést hér lengst til vinstri en við hlið hans standa Björn Jósef ...

Kærði undirskriftafölsun

14:37 „Manni líður ekki vel með það. Þetta er leiðinleg tilfinning og mér finnst ástæðulaust að sitja undir því og ætla ekki að gera það, þess vegna kærði ég þetta til að fara fram á rannsókn á því,“ segir Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn á Akureyri, í samtali við blaðamann mbl.is en Daníel er á meðal þeirra einstaklinga sem settir voru á meðmælendalista Ástþórs Magnússonar að sér forspurðum. Meira »

Meta lögmæti samningsins

Sveitarfélagið Garður.
14:33 Nýr meirihluti í bæjarstjórn Garðs ætlar að láta meta lögmæti samnings sem fyrri meirihluti gerði við Ásmund Friðriksson bæjarstjóra. Auglýst verður eftir nýjum bæjarstjóra í fjölmiðlum á morgun. Meira »

Rætt um að kaupa notaðar þyrlur

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF LÍF
13:50 Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra kynnti í ríkisstjórn í morgun hugmyndir um að kaupa tvær notaðar björgunarþyrlur sambærilegum þeim sem Landhelgisgæslan er nú með í notkun. Þessi kostur er ódýrari en að kaupa nýjar þyrlur. Meira »

Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna

Í ár tóku 250 bekkir víðsvegar um landið þátt í samkeppninni.
13:19 Úrslit í samkeppninni Tóbakslaus bekkur liggja fyrir en alls fá bekkir frá níu skólum á landinu verðlaun. Keppnin var haldin meðal meðal 7. og 8. bekkja í grunnskólum landsins. Meira »

Auðveldar fólki að sækja um búsetu

Úr safni.
14:11 Breytt fyrirkomulag við mat á þörf fólks fyrir dvalar- eða hjúkrunarrými tekur gildi 1. júní. Vistunarmatsnefndir dvalar- og hjúkrunarrýma verða sameinaðar og í þeirra stað verður ein nefnd í hverju heilbrigðisumdæmi; færni- og heilsufarsnefnd, sem metur þörf fólks fyrir þessi úrræði. Meira »

Sjálfstæðismenn ósammála um göngin

Frá fundi fjárlaganefndar Alþingis.
13:26 Sjálfstæðismenn í fjárlaganefnd klofnuðu í afstöðu til frumvarps um jarðgöng undir Vaðlaheiðargöng. Ásbjörn Óttarsson og Illugi Gunnarsson leggjast gegn frumvarpinu en Kristján Þór Júlíusson styður það. Meira »

Hjólin fá að snúast að nýju myndskeið

Hjol
12:23 Í dag hófst formlega hjólasöfnun Barnaheilla og flugfélagsins WOW þar sem landsmenn geta gefið gömul hjól með því að koma þeim á Sorpu en Mæðrastyrksnefnd mun sjá dreifingu hjólanna. Hjólin mega vera biluð því sérfræðingar munu lagfæra og gera við þau. Nemendur í Álfhólsskóla gáfu ónýtt hjól í dag. Meira »

„Hvatning til okkar beggja“

Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff.
12:12 „Þetta er ánægjuleg staðfesting á því sem við Dorrit höfum fundið á fundum, vinnustöðum og á viðræðum við fólk undanfarið,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, um nýja skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 þar sem hann mældist með 53,9% fylgi. Meira »

Fengu 9,8 í meðaleinkunn

Nýstúdentar frá Fjölbrautarskólanum í Garðabæ
11:49 Tveir nýstúdentar frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, Katrín Ásta Ingimarsdóttir og Sæþór Pétur Kjartansson, fengu 9,8 í meðaleinkunn í námi sínu. Meira »

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
11:51 Óvanaleg sjón blasti við íbúum Súðavíkur í morgun, en þá hafði einn íbúi bæjarins brugðið á það ráð að flagga fána Landsbankans öfugt, og í hálfa stöng. Meira »

Geir í nýtt starf

Geir H. Haarde
11:43 Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur gengið til liðs við OPUS lögmenn sem ráðgjafi í alþjóðlegum verkefnum.  Meira »

Mikið um reiðhjólaþjófnað

Mynd úr safni
11:39 Þjófnuðum á reiðhjólum hefur fjölgað umtalsvert í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum undanfarna daga.   Meira »

Tekinn á 134 km hraða

11:36 Ellefu ökumenn hafa verið staðnir að hraðakstursbrotum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók var á 134 km hraða á Reykjanesbrautinni. Meira »

Annað innbrotið á innan við viku

Mynd úr safni
11:29 Lögreglunni á Suðurnesjum barst í morgun tilkynning þess efnis að brotist hefði verið inn í fyrirtæki hjá Grófinni í Keflavík og þaðan stolið skrifstofubúnaði. Er þetta annað innbrotið í fyrirtækið í vikunni. Meira »

Ölvaður og réttindalaus

11:37 Ölvaður ökumaður, karlmaður á fertugsaldri, velti bifreið á Reykjanesbraut í fyrrinótt. Hann missti stjórn á bílnum sem hafnaði utan vegar milli akreina. Einn farþegi var í bílnum og sluppu báðir ómeiddir. Meira »

Ástþór losnar ekki við fyrirvara

Ástþór Magnússon og eiginkona hans Natalía Wiium.
11:34 „Ég veit ekki hversu margar þær eru en hann er búinn að skila viðbót núna,“ segir Katrín Theodórsdóttir, annar oddviti yfirkjörstjórna Reykjavíkurkjördæma norður og suður, aðspurð hvort hún geti staðfest að Ástþór Magnússon hafi skilað tæplega 200 viðbótarundirskriftum í morgun. Meira »

Með loftbyssu í farangrinum

Mynd úr safni
11:26 Lögreglunni á Suðurnesjum var í fyrradag gert viðvart um að karlmaður væri með loftbyssu og skotfæri í fórum sínum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Höfðu munirnir komið fram við skimun öryggisgæslu á farangri mannsins. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
NÝJAR VÖRUR Í HVERRI VIKU
FLOTTUR BARNAFATNAÐUR, BARNAVÖRUR, SNYRTIVÖRUR OG MARGT FLEIRA - ERTU BÚIN AÐ KÍ...
Hjólavagnar
Glæsilegir hjólavagnar. Sterkir og liprir. Lág verð, heildsala - lagersala. www...
Fellihýsi, tjaldvagnar, hjólhýsi, pallhýsi, húsbílar ...
Fellihýsi, tjaldvagnar, hjólhýsi, pallhýsi, húsbílar, eldhús á hjólum, Hobby hús...
Mongoose Sycamore 26" fjallahjól
Stórgott óslitið 12 ára gamalt hjól til sölu; https://bland.is/messageboard/mes...
 
Aðalfundur alliance
Tilkynningar
Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...
Deiliskipulag á grundartanga

Deiliskipulag á Grundartanga Austur...
Útboðsauglýsing - faxaflóahafnir

Mynd af auglýsingu ...
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....