Féll af vélhjóli og slasaðist

Ökumaður vélhjóls var fluttur slasaður á slysadeild Landspítalans í Fossvogi í kvöld eftir að hann féll af hjólinu þar sem hann var á ferð við Lækjarbotna við Lögbergsbrekku. Tilkynning barst um kl. 20 í kvöld og var í fyrstu talið að maðurinn væri alvarlega slasaður. Svo reyndist hinsvegar ekki vera en maðurinn var hinsvegar færður undir læknishendur í Fossvogi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert