Ferðum Herjólfs fjölgað í sumar

Vestmannaeyjaferjan Herjólfur.
Vestmannaeyjaferjan Herjólfur.

Ríkisstjórnin hefur að tillögu samgönguráðherra ákveðið að ferðum Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs verði fjölgað í sumar. Áætlað er að bæta við rúmlega 20 ferðum á mikilvægum ferðadögum og þá daga verða því þrjár ferðir á dag.

Kristján L. Möller samgönguráðherra segir í fréttatilkynningu að beiðni hafi borist frá bæjarstjórn Vestmannaeyja um að bæta við þriðju ferð Herjólfs á mikilvægum ferðadögum í sumar. Er einkum horft til næturferða á föstudögum en aðrir dagar, þegar vænta má mikils straums ferðamanna og eftirspurn er mikil vegna flutnings á bílum með fylgivagna, koma einnig til greina.

Gert er ráð fyrir að kostnaður vegna rúmlega 20 ferða verði kringum 30 milljónir króna. Samgönguráðherra segir mikilvægt að geta orðið strax við þessari ósk Vestmannaeyinga um fjölgun ferða og mun Eimskip, sem rekur Herjólf, tilgreina nánari tilhögun aukaferðanna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert