374 vilja lóðir í Úlfarsárdal

Reykjavíkurborg auglýsti þann 24. maí sl. eftir umsóknum í fjórar …
Reykjavíkurborg auglýsti þann 24. maí sl. eftir umsóknum í fjórar lóðir fyrir fjölbýlishús, 38 par- og raðhúsalóðir og 73 einbýlishúsalóðir í Úlfarsárdal, alls 388 íbúðir.

Umsóknarfresti vegna umsókna í 115 lóðir í Úlfarsárdal í Reykjavík var að ljúka og hafa alls 374 umsóknir borist í lóðirnar sem hafa byggingarétt fyrir 388 íbúðir.

Reykjavíkurborg auglýsti þann 24. maí síðastliðin eftir umsóknum í fjórar lóðir fyrir fjölbýlishús, 38 par- og raðhúsalóðir og 73 einbýlishúsalóðir í Úlfarsárdal, alls 388 íbúðir. Lóðirnar eru seldar á föstu verði sem borgaryfirvöld segja að sé kostnaðarverð. Viðbrögð voru treg í fyrstu og aðeins 15 sóttu um lóðir fyrstu vikuna.

Ágúst Jónsson, skrifstofustjóri Framkvæmdasviðs Reykjavíkurborgar, sagði í samtali við mbl.is að tregðan hafi verið ósköp eðlileg vegna þess mikla magns upplýsinga og gagna sem umsækjendur þurftu nú að reiða af hendi. Samanburður á lóðaumsóknum í Úlfarsárdal við umsóknir á lóðum við Lambasel í Reykjavík þegar á sjöunda þúsund umsóknir bárust, væri ekki sanngjarn því þá hafi fólk sótt um og síðan þurft að afhenda ýmis gögn ef það var dregið úr pottinum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert