Á milli 20-30 þúsund manns í miðborginni

Frá Arnarhvoli
Frá Arnarhvoli mbl.is/Golli

Á milli tuttugu og þrjátíu þúsund manns eru í miðborginni í kvöld, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Tónleikar og dansleikir eru haldnir í miðborg Reykjavíkur að kvöld þjóðhátíðardags.

Að sögn lögreglu hafa hátíðarhöldin farið vel fram í dag og ekkert alvarlegt mál hefur komið til kasta lögreglu. Heldur er að fjölga í miðbænum enda landsleik Íslendinga og Serba nýlokið með sigri Íslendinga. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu þá eru tveir gönguhópar á vegum lögreglunnar á ferðinni í miðbænum og sinna þar eftirliti. Hefur það gefið góða raun í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert