Mikið að gera hjá lögreglunni í Reykjavík

Margt var um manninn í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi og fram undir morgun og var nóttin erilssöm hjá lögreglu höfuðborgarsvæðisins. Fjórtán manns gistu fangageymslurnar vegna ýmiskonar mála, mikið var um minni háttar pústra og stympingar. Að sögn varðstjóra lögreglunnar var meira að gera hjá þeim en um venjulega helgi en ekkert eitt mál sem stóð upp úr. Átta bílstjórar voru stöðvaðir vegna ölvunaraksturs.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert