Fíkniefnaframleiðsla stöðvuð í nágrenni Hellu

Lauf kannabisplöntunnar.
Lauf kannabisplöntunnar. mbl.is

Tveir menn voru í síðustu viku handteknir vegna framleiðslu á 52 kannabisplöntum í sveitinni í nágrenni Hellu, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Hvolsvelli.

Í dagbók lögreglu kemur fram að lögreglan fékk heimild til leitar og fundu plönturnar. Annar mannanna hefur viðurkennt framleiðsluna og hefur mönnunum verið sleppt.

Akstur undir áhrifum fíkniefna tengist málinu og er það til rannsóknar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert