Nægur kvóti í Eyjum

Elliði Vignisson
Elliði Vignisson

Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, gagnrýnir stjórnmálamenn sem telja það lausn á vanda sjávarbyggðanna að leggja kvótakerfið niður. Hann bendir á að það sé nægur kvóti í Vestmannaeyjum en samt fækki fólki. Hann segist velta fyrir sér á hvaða vegferð þeir séu.

"Ég þreytist aldrei á að brýna fyrir þeim sem hæst tala um gagngerar breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu og tilflutning aflaheimilda að hafa það hugfast að hér í Eyjum er kvótastaða sterk en samt hefur byggðin átt verulega undir högg að sækja. Kvótakerfið svokallaða er sannarlega ekki fullkomið þótt vissulega hafi það verið bætt.

Mín skoðun er sú að eðlilegt og sjálfsagt sé að það sé í stöðugri endurskoðun bæði hvað varðar hagstjórnarhluta þess sem og verndun fiskistofnanna. Það skiptir hins vegar miklu að fólk átti sig á að kvótakerfið er hvorki upphaf né endir á erfiðleikum landsbyggðarinnar. Ráðandi aðilar verða að vinna sína heimavinnu og horfast í augu við eigið aðgerðaleysi í ýmsum málum en fela sig ekki á bak við umræðu um fiskveiðistjórnunarkerfið. Þessir aðilar verða að skoða málið í heild sinni og gera okkur íbúum meðfram strandlengjunni kleift að aðlagast breyttum tíðaranda og er mér þá efst í huga uppbygging samgangna, menntunar og opinberrar þjónustu."

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert