Blöðrur til marks um samkennd með fjölskyldu Madeleine

Það vakti athygli vegfarenda um Ártúnsbrekkuna í Reykjavík í morgun er klasi gulra blaðra steig upp frá þaki Brimborgarhússins. Framtakið var liður í átaki einstaklinga um allan heim til að sýna samkennd með bresku stúlkunni Madeleine McCann og fjölskyldu hennar en Madeleine hvarf sporlaust er hún var í sumarleyfi með fjölskyldu sinni í Portúgal fyrir fimmtíu dögum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert