Fjórir í haldi lögreglu eftir fjöldaátök

Einn maður liggur höfuðkúpubrotinn á gjörgæslu Landspítalans og annar er minna slasaður eftir að hafa verið stunginn með hnífi í bakið í húsi í austurborg Reykjavíkur í nótt. Fjórir eru í haldi lögreglunnar vegna málsins en svo virðist sem fjöldaátök hafi brotist út. Lögreglan er enn á vettvangi og frekari málsatvik eru óljós, að sögn lögreglu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert