11 ára drengur undir stýri

Lögreglan á Selfossi veitti nú síðdegis athygli bíl í sandinum vestan við Óseyrarbrú. Í ljós kom að ellefu ára gamall drengur sat undir stýri og ók undir handleiðslu forráðamanns, sem sat í farþegasæti. Sá á von á kæru fyrir að leyfa réttindalausum einstaklingi að aka bíl sínum, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert