Lögreglan segir „SMS" hátíðina framundan

Lögreglan á Selfossi vill vekja athygli foreldra á því sem kallað hefur verið „SMS hátíð” og gjarnan hefur verið haldin fyrstu helgina í júlí ár hvert, þegar skólakrakkar fá útborguð sumarlaun sín eftir fyrsta vinnumánuðinn.

Hátíð þessi hefur farið þannig fram að boð hafa borist milli ungmenna með m.a. SMS skilaboðum um það hvert skuli halda. Síðan hefur verið slegið upp tjaldbúðum á svæðum sem ekki eru ætluð sem tjaldstæði og úr orðið ein alsherjar útihátíð án alls skipulags og aðstöðu s.s. hreinlætis, gæslu eða annars.

Lögreglan segir, að á þessum samkomum hafi ölvun verið almenn, slagsmál og slys tíð, ölvunarakstrar og jafnvel kynferðisbrot. Hvetur lögreglan foreldra til að sinna ábyrgð sinni sem slík og gæta barna sinna.

Þá segir lögreglan, að gera megi ráð fyrir mikilli umferð á vegum úti og af því tilefni og vegna hugsanlegrar SMS hátíðar muni lögreglan á suðvesturhorninu vera með sérstakan viðbúnað. Verður fjölgað á vöktum og lögregla höfuðborgarsvæðisins mun vera, líkt og verið hefur í sumar, verða með mótorhjól við umferðareftirlit á stofnbrautum.

Sjúkraflutningamenn á Selfossi bæta einnig við viðbúnað sinn en s.l. laugardag fóru þeir í 17 sjúkraflutninga. Þá mun þyrlusveit Landhelgisgæslunnar vera með sérstakan viðbúnað um helgina og fljúga með lögreglumenn til eftirlits.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert