Úr umferð vegna fjölda sakamála

Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð héraðsdóms yfir karlmanni sem sætir rannsókn vegna fjölda sakamála sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er að rannsaka. Hefur hann játað aðild að 9 málum sem hafa verið til rannsóknar.

Er þar um að ræða líkamsárásir, rán, innbrot í íbúðir og bifreiðar, fíkniefnabrot, umferðarlagabrot og fleira. Voru brotin öll framin á þessu ári. Þar fyrir utan er maðurinn grunaður um aðild að 6 innbrotum í íbúðarhúsnæði.

Gæsluvarðhaldið varir til 7. ágúst næstkomandi.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert