Ósammála um samstarfsaðila í Hitaveitu Suðurnesja

Eftir Gunnar Pál Baldvinsson

gunnarpall@mbl.is

Ekki verður af sölu ríkisins á hlut þess í Hitaveitu Suðurnesja til Geysis Green Energy. Þrjú sveitarfélaganna sem hlut eiga í hitaveitunni, Reykjanesbær, Hafnarfjörður og Grindavík, lýstu því yfir í gær að þau hygðust nota forkaupsrétt sinn til hlutarins.

Upphaflega var samið um sölu á eignarhlut ríkisins í byrjun maímánaðar. Samkvæmt tilboði Geysis Green Energy átti ríkið að fá 7,6 milljarða króna fyrir hlutinn. Samkvæmt samþykkt Hitaveitu Suðurnesja hafa sveitarfélögin á Suðvesturhorni landsins, hluthafarnir, 60 daga frest til að nota forkaupsrétt að þeim eignarhlutum sem seldir eru. Þessi frestur vegna sölu ríkisins rennur út í dag.

Á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar sem haldinn var í gærkveldi rifjaði Árni Sigfússon bæjarstjóri upp að stjórn Hitaveitu Suðurnesja hefði komið saman og ákveðið að nota ekki þann forkaupsrétt sem fyrirtækið á sjálft en jafnframt hefðu fulltrúar sveitarfélaganna sjálfra komið saman hinn 12. júní og rætt þann möguleika að þau notuðu forkaupsrétt sinn. "Þá kom ekkert fram sem gaf ástæðu til að sveitarfélögin ætluðu að nota forkaupsréttinn," sagði Árni á bæjarstjórnarfundinum í gærkvöldi.

Ákváðu öll að beita forkaupsrétti

Nú fyrir helgi dró síðan til tíðinda þegar fram kom að nokkur sveitarfélaganna hefðu óskað eftir því við Orkuveitu Reykjavíkur að hún keypti þeirra hlut í Hitaveitu Suðurnesja. Stjórnendur Geysis brugðust fljótt við og keyptu rúmlega 28% hlut sem sjö sveitarfélög áttu hvert um sig í hitaveitunni. Eftir stóðu því Reykjanesbær með tæplega 40% hlut og Hafnarfjarðarbær með rúmlega 15% hlut auk 1,25% hlutar sem sveitarfélög á Suðurnesjum héldu eftir. Hefðu allar þessar sölur náð fram að ganga hefði Geysir Green Energy átt um 44% hlut í Hitaveitu Suðurnesja.

Í gær ákváðu hins vegar Hafnarfjarðarbær og Grindavíkurkaupstaður að nota forkaupsrétt sinn í hlut ríkisins sem seldur var til Geysis í upphafi maí. Ganga sveitarstjórnirnar því inn í tilboð Geysis og bæta við sig sama hlutfalli af eignarhlut ríkisins og sveitarfélögin eiga í Hitaveitu Suðurnesja. Í gær var síðan jafnframt tilkynnt að Orkuveita Reykjavíkur hefði samið við sveitarfélögin bæði um að þau seldu Orkuveitunni þá eignarhluti sem þau keyptu með forkaupsréttinum. Jafnframt að Grindavíkurkaupstaður seldi Orkuveitunni 8% af þeim 8,51% sem kaupstaðurinn á í Hitaveitu Suðurnesja.

Á bæjarstjórnarfundi Reykjanesbæjar í gærkvöldi kom fram að fulltrúar bæði D-lista og A-lista eru ósáttir við þá þróun sem orðið hefur í eigendahópi Hitaveitu Suðurnesja. Þeir sem til máls tóku voru almennt á því að atburðarásin hefði skaðað samskipti sveitarfélaganna í eigendahópnum, þótt ekki væru bæjarfulltrúarnir sammála um við hvaða sveitarfélög væri þar að sakast. Samþykkt var að sveitarfélagið beitti forkaupsrétti sínum á hluta ríkisins sem seldur hefði verið til Geysis Green Energy í samræmi við sinn eignarhlut.

Árni Sigfússon og samflokksmaður hans Böðvar Jónsson bentu á að markmið ríkisins með sölu síns hlutar hefði verið að koma í veg fyrir að Orkuveita Reykjavíkur og Landsvirkjun eignuðust hlutinn vegna samkeppnissjónarmiða. Töldu þeir ýmislegt mæla gegn því að Orkuveitan eignaðist hlut í fyrirtækinu. Benti Árni m.a. á að erfitt yrði fyrir Hitaveituna að vera í samkeppni við Orkuveituna ef maður frá síðarnefnda fyrirtækinu sæti í stjórn þess fyrrnefnda. Gagnrýndu bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins að Orkuveitan hefði ekkert samráð haft við Reykjanesbæ, sem stærsta eiganda Hitaveitu Suðurnesja, um framtíð fyrirtækisins. Hitaveitan væri afar mikilvæg fyrir Reykjanesbæ og því eðlilegt að sveitarfélagið leitaði eftir samstarfsaðila um rekstur hitaveitunnar sem hefði svipaða framtíðarsýn. "Þar er enginn útilokaður. Orkuveita Reykjavíkur hefur í engu leitað til viðræðna vði Reykjanesbæ og það boðar ekki jákvætt samstarf," sagði Árni í bæjarstjórn í gær. Sagði hann að Reykjanesbær gæti um leið og slíkir kaupsamningar kæmu upp á borð stjórnar Hitaveitu Suðurnesja tekið afstöðu til þess hvort forkaupsrétti yrði beitt eða ekki. "Slík kaup verða þá ekki til þess að eiga þá hluti, enda er slíkt ekki á færi neins sveitarfélags. Ætlun okkur hlyti þá að vera að finna góðan samstarfsaðila."

Í ræðu Árna kom fram að gott samráð hefði verið á milli Reykjanesbæjar og Geysis Green Energy og samstarf þessara aðila í stjórn hitaveitunnar byði upp á mörg framtíðartækifæri.

Reykjanesbær myndi annars missa stjórn á atburðarásinni

Aðspurður um það eftir fundinn hvers vegna Reykjanesbær sæi sig nú knúinn til að beita forkaupsrétti sínum sagði Árni að ef bærinn nýtti ekki réttinn þá myndu aðrir eigendur Hitaveitu Suðurnesja nota sinn forkaupsrétt. "Þá stjórnum við ekki lengur atburðarásinni og aðrir aðilar geta komist inn sem við vitum ekki hvað vilja gera með framtíð fyrirtækisins."

Guðbrandur Einarsson, fulltrúi A-lista í bæjarstjórn Reykjanesbæjar, gagnrýndi hins vegar þau sveitarfélög sem seldu eignarhlut sinn til Geysis nú fyrir helgi. Það að svo stór hluti Hitaveitu Suðurnesja væri nú kominn í hendur einkaaðila væri veruleiki sem ekki þóknaðist honum. Sagðist hann skilja sjónarmið Hafnfirðinga sem óttuðust að standa eftir með óvirkan eignarhlut í hitaveitunni en gagnrýndi einnig hversu fráhverfir sjálfstæðismenn væru samstarfi við Orkuveitu Reykjavíkur. "Er Orkuveita Reykjavíkur ekki samboðin okkur í samstarfi? Orkuveitan er fyrirtæki eins og Hitaveita Suðurnesja og að minni hyggju fyrirtæki sem hentar vel til samstarfs," sagði Guðbrandur.

Segjast hafa samið við Grindavíkurbæ

MORGUNBLAÐINU barst í gær eftirfarandi yfirlýsing frá fyrirtækinu Geysi Green Energy:

"Sl. föstudag undirritaði Geysir Green Energy samkomulag við sjö sveitarfélög um kaup á hlutum þeirra í Hitaveitu Suðurnesja (HS): Vestmannaeyjabæ, Árborg, Kópavog, Voga, Sandgerði, Grindavík og Garð. Um var að ræða allan hlut þessara sveitarfélaga í HS nema hvað sveitarfélögin á Suðurnesjum héldu eftir um 1,25% hlut.

Formaður bæjarráðs Grindavíkur undirritaði samkomulagið við Geysi Green Energy föstudaginn 29. júní fyrir hönd Grindavíkurbæjar.

Geysir Green Energy lítur að sjálfsögðu svo á að í gildi sé samningur milli Grindvíkur og Geysis og mun leita réttar síns um að staðið verði við þann samning. Formaður bæjarráðs Grindavíkur samþykkti skriflega tilboð Geysis Green Energy en í þeirri samþykkt felst bæði að Grindavíkurbær fellur frá forkaupsrétti sínum að hlutum í HS, og að hann selji Geysi Green Energy hlut sinn án nokkurra kvaða eða skuldbindinga.

Í þeim samningi sem gerður var við Grindavík á föstudaginn var verð á hlut 7,1 króna. Samkvæmt fréttum í dag af meintum samningi sem Grindavík telur sig hafa gert við annan aðila um sölu á sama hlut er gengið 7,0 og væri tap íbúa Grindavíkur ef selt væri við þessu lægra verði, um 62 milljónir króna. Þá er rétt að halda því til haga að Hafnarfjarðarbæ stóð til boða að selja Geysi Green Energy bréf sín í HS á genginu 7,1 en hefur ákveðið að selja öðrum á genginu 7,0 ef af sölu verður.

Geysir mun áfram vinna af fullum heilindum að viðskiptum sínum. Hitaveita Suðurnesja er mikilvægt og gott fyrirtæki sem ber að efla með hagsmuni hluthafa og viðskiptavina í fyrirrúmi."

Segir tapútreikninga út í bláinn

GUNNAR Svavarsson, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði, segir út í bláinn þá útreikninga Geysis Greens að Hafnarfjörður muni tapa á annað hundrað milljónum króna ef bærinn selji OR hlut sinn í Hitaveitu Suðurnesja á genginu 7,0 sem Geysir Green hafði áður boðið í á genginu 7,1. Gunnar minnir á þær yfirlýsingar Hafnarfjarðarbæjar að svo gæti farið að bærinn þyrfti að selja ef hann lokaðist inni með hluti sína. "En menn geta ekki verið að búa til mismunaverð á einhverju sem var ekki til sölu," segir hann.

"Hafnarfjarðarbær er nú að fara að kaupa hluti í HS á genginu 6,72 og mismunur þess og á umræddu söluvirði og markaðsvirði er um 400 milljónir króna. Það verður að koma í ljós hvað Hafnarfjarðarbær getur keypt mikið af því. Það er alveg eins hægt að reikna það til baka. Það er því ekki hægt að reikna tap af einhverju sem ekki er til sölu."

Gunnar segir að koma verði í ljós í dag, þriðjudag, hverjir beiti forkaupsrétti. "Það sem við höfum einfaldlega verið að gera er að reyna að ná samkomulagi við stærsta hluthafann [Reykjanesbæ] og það náðist ekki. Þess vegna var farið í þær varnaraðgerðir sem við töldum að þyrfti að fara í. En ég horfi björtum augum til þess að eftir þennan áfanga geti menn sest niður og rætt málið út frá nýjum forsendum.

Það er mjög sérstakt að vera næststærsti hluthafinn í HS og hafa ekki verið gefinn kostur á því á sínum tíma að geta náð þriðjungshlut líkt og stærsti hluthafinn ætlaði að gefa Geysi Green tækifæri á.

Það vilja allir fyrirtækinu vel, bæði þeir sem eiga í því og þeir sem eru að reyna að kaupa í því, ekki hvað síst neytendur sem vilja að fyrirtækið vaxi og dafni þannig að það geti þjónað neytendum á hagkvæman hátt."

Ekki náðist í forsvarsmenn Grindavíkurbæjar í gærkvöldi til að bera undir þá yfirlýsingu Geysis Green.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Flugvél Iceland Express í höfn

Framsetning flugmiðaverðs óskýr

14:40 Auðvelt er að gera verðsamanburð á milli bókunarvéla flugfélaganna á vefnum en mismunandi er hvernig verð flugmiða er sett þar fram. Getur þannig reynst viðskiptavinum flókið að átta sig á því í hverju hin ýmsu aukagjöld, sem eru hluti af fargjaldi, felast. Meira »
Daníel Guðjónsson yfirlögregluþjónn sést hér lengst til vinstri en við hlið hans standa Björn Jósef ...

Kærði undirskriftafölsun

14:37 „Manni líður ekki vel með það. Þetta er leiðinleg tilfinning og mér finnst ástæðulaust að sitja undir því og ætla ekki að gera það, þess vegna kærði ég þetta til að fara fram á rannsókn á því,“ segir Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn á Akureyri, í samtali við blaðamann mbl.is en Daníel er á meðal þeirra einstaklinga sem settir voru á meðmælendalista Ástþórs Magnússonar að sér forspurðum. Meira »

Meta lögmæti samningsins

Sveitarfélagið Garður.
14:33 Nýr meirihluti í bæjarstjórn Garðs ætlar að láta meta lögmæti samnings sem fyrri meirihluti gerði við Ásmund Friðriksson bæjarstjóra. Auglýst verður eftir nýjum bæjarstjóra í fjölmiðlum á morgun. Meira »

Rætt um að kaupa notaðar þyrlur

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF LÍF
13:50 Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra kynnti í ríkisstjórn í morgun hugmyndir um að kaupa tvær notaðar björgunarþyrlur sambærilegum þeim sem Landhelgisgæslan er nú með í notkun. Þessi kostur er ódýrari en að kaupa nýjar þyrlur. Meira »

Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna

Í ár tóku 250 bekkir víðsvegar um landið þátt í samkeppninni.
13:19 Úrslit í samkeppninni Tóbakslaus bekkur liggja fyrir en alls fá bekkir frá níu skólum á landinu verðlaun. Keppnin var haldin meðal meðal 7. og 8. bekkja í grunnskólum landsins. Meira »

Auðveldar fólki að sækja um búsetu

Úr safni.
14:11 Breytt fyrirkomulag við mat á þörf fólks fyrir dvalar- eða hjúkrunarrými tekur gildi 1. júní. Vistunarmatsnefndir dvalar- og hjúkrunarrýma verða sameinaðar og í þeirra stað verður ein nefnd í hverju heilbrigðisumdæmi; færni- og heilsufarsnefnd, sem metur þörf fólks fyrir þessi úrræði. Meira »

Sjálfstæðismenn ósammála um göngin

Frá fundi fjárlaganefndar Alþingis.
13:26 Sjálfstæðismenn í fjárlaganefnd klofnuðu í afstöðu til frumvarps um jarðgöng undir Vaðlaheiðargöng. Ásbjörn Óttarsson og Illugi Gunnarsson leggjast gegn frumvarpinu en Kristján Þór Júlíusson styður það. Meira »

Hjólin fá að snúast að nýju myndskeið

Hjol
12:23 Í dag hófst formlega hjólasöfnun Barnaheilla og flugfélagsins WOW þar sem landsmenn geta gefið gömul hjól með því að koma þeim á Sorpu en Mæðrastyrksnefnd mun sjá dreifingu hjólanna. Hjólin mega vera biluð því sérfræðingar munu lagfæra og gera við þau. Nemendur í Álfhólsskóla gáfu ónýtt hjól í dag. Meira »

„Hvatning til okkar beggja“

Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff.
12:12 „Þetta er ánægjuleg staðfesting á því sem við Dorrit höfum fundið á fundum, vinnustöðum og á viðræðum við fólk undanfarið,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, um nýja skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 þar sem hann mældist með 53,9% fylgi. Meira »

Fengu 9,8 í meðaleinkunn

Nýstúdentar frá Fjölbrautarskólanum í Garðabæ
11:49 Tveir nýstúdentar frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, Katrín Ásta Ingimarsdóttir og Sæþór Pétur Kjartansson, fengu 9,8 í meðaleinkunn í námi sínu. Meira »

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
11:51 Óvanaleg sjón blasti við íbúum Súðavíkur í morgun, en þá hafði einn íbúi bæjarins brugðið á það ráð að flagga fána Landsbankans öfugt, og í hálfa stöng. Meira »

Geir í nýtt starf

Geir H. Haarde
11:43 Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur gengið til liðs við OPUS lögmenn sem ráðgjafi í alþjóðlegum verkefnum.  Meira »

Mikið um reiðhjólaþjófnað

Mynd úr safni
11:39 Þjófnuðum á reiðhjólum hefur fjölgað umtalsvert í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum undanfarna daga.   Meira »

Tekinn á 134 km hraða

11:36 Ellefu ökumenn hafa verið staðnir að hraðakstursbrotum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók var á 134 km hraða á Reykjanesbrautinni. Meira »

Annað innbrotið á innan við viku

Mynd úr safni
11:29 Lögreglunni á Suðurnesjum barst í morgun tilkynning þess efnis að brotist hefði verið inn í fyrirtæki hjá Grófinni í Keflavík og þaðan stolið skrifstofubúnaði. Er þetta annað innbrotið í fyrirtækið í vikunni. Meira »

Ölvaður og réttindalaus

11:37 Ölvaður ökumaður, karlmaður á fertugsaldri, velti bifreið á Reykjanesbraut í fyrrinótt. Hann missti stjórn á bílnum sem hafnaði utan vegar milli akreina. Einn farþegi var í bílnum og sluppu báðir ómeiddir. Meira »

Ástþór losnar ekki við fyrirvara

Ástþór Magnússon og eiginkona hans Natalía Wiium.
11:34 „Ég veit ekki hversu margar þær eru en hann er búinn að skila viðbót núna,“ segir Katrín Theodórsdóttir, annar oddviti yfirkjörstjórna Reykjavíkurkjördæma norður og suður, aðspurð hvort hún geti staðfest að Ástþór Magnússon hafi skilað tæplega 200 viðbótarundirskriftum í morgun. Meira »

Með loftbyssu í farangrinum

Mynd úr safni
11:26 Lögreglunni á Suðurnesjum var í fyrradag gert viðvart um að karlmaður væri með loftbyssu og skotfæri í fórum sínum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Höfðu munirnir komið fram við skimun öryggisgæslu á farangri mannsins. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Breyttar felgur 15" 6 gata f. Toyota eða Patrol t.d.
TS 15" breyttar felgur. Þær eru tæplega 18" breiðar með valsaða kanta frá GJJá...
Sumarhúsalóðir í Vaðnesi
Til sölu fallegar sumarhúsalóðir í kjarrivöxnu landi Vaðness í Grímsnes- og Gra...
RENAULT MEGANE SPORT TOURER
Renault Megane Sport Tourer Nýskr. 3/2004, ekinn 122 þ. km, bens...
Skoda Fabia
Skoda Fabia árg. 2006, ekinn 135 þús. Beinsk., útvarp m. geislaspilara, sumar- o...
 
Kennarar og leikskólakennarar
Grunn-/framhaldsskóla
Hafralækjarskóli og Litlulaugaskóli í Þ...
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Opinn fundur
Félagsstarf
Félag sjálfstæð...
Deiliskipulagstillaga á grundartanga

Deiliskipulagstillaga á Grundartang...