Félagsmálaráðuneytið styrkir átaksverkefni

Jóhanna Sigurðarsdóttir, félagsmálaráðherra hefur ákveðið að veita sérstakan styrk til átaksverkefnis fyrir fötluð ungmenni í Reykjavík svo mismunun í launakjörum, sem fatlaðir og ófatlaðir búa þar við, þessi verði leiðrétt.

Í tilkynningu frá félagsmálaráðuneytinu segir, að fjölmiðlar hafi í gær og dag vakið athygli á mismunandi launakjörum sem fatlaðir og ófatlaðir búi við í sameiginlegu átaksverkefni ÍTR og Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra í Reykjavík. Eftir að hafa kynnt sér málið hafi ráðherra ákveðið að veita sérstakan styrk til verkefnisins svo mismunun þessi verði leiðrétt nú þegar.

Í tilkynningunni segir, að félagsmálaráðuneytið leggi ríka áherslu á mikilvægi virkrar þátttöku fatlaðra á vinnumarkaði og starfsendurhæfingu. Félagsmálaráðherra fagni þeim mikla áhuga og árangri, sem átaksverkefnið hafi skilað og voni að umræðan verði til þess að enn fleiri fyrirtæki og stofnanir bjóði fatlaða velkomna til starfa í kjölfarið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert