Vopnað ráð í 10-11 við Barónsstíg

Vopnað rán var framið í versluninni 10-11 við Barónsstíg um klukkan hálf tólf í nótt. Samkvæmt upplýsingum lögreglu er talið að ræningjarnir hafi verið tveir og er þeirra nú leitað. Þeir munu hafa flúið af vettvangi áður en lögregla kom á staðinn og haft eitthvað með sér úr versluninni. Engin meiðsl urðu á fólki en frekari upplýsingar um málið liggja ekki fyrir að svo stöddu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert