Reynir að synda yfir Ermarsund
Benedikt Hjartarson á spjalli við Alison Streeter, drottningu Ermarsundsins, en hún hefur synt yfir sundið alls 43 sinnum.
Benedikt Hjartarson varð fimmtugur í gær og sundið er meðal annars skipulagt til að fagna þeim áfanga. Hann hefur stundað sjósund lengi, en undirbúningur þessarar sundferðar hefur staðið í rúmt ár.
Flóð og fjara geta skilið milli feigs og ófeigs á Ermarsundinu, en mikilvægt er að hefja sundið þegar fjarar út við Dover snemma morguns og hitta líka á að synda með flóðinu seinnipart dags að ströndinni við Calais. Önnur hindrun sem gæti mætt Benedikt eru flákar af marglyttum sem halda til á Ermarsundi og brenna húð þeirra sem þær komast í snertingu við. Þær eru þó ekki mjög hættulegar, en geta skiljanlega valdið sundmönnum verulegum óþægindum.
Í samtali við Morgunblaðið í gær sögðu félagar Benedikts Hjartarsonar að hann hygðist leggja af stað um fimmleytið. Samkvæmt bjartsýnustu spám ætti hann að ná Frakklandsströnd um klukkan 17 í dag. Þrír aðstoðarmenn fylgja honum yfir sundið í bát, þeir Ingþór Bjarnason sálfræðingur, Stefán Karl Sævarsson verkfræðingur og Heimir Örn Sveinsson tölvunarfræðingur.
Samkvæmt reglum má Benedikt ekki snerta bátinn sem félagar hans verða í, svo þeir verða að slaka orkudrykkjum, ávaxtamauki og öðrum nauðsynjum til hans með veiðistöng.
Innlent »
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
- „Ýmislegt að vinna með okkur“
- Persónulegar illdeilur á Bergþórshvoli
- Uppsagnir og hagræðing
- Byssumaður var leikari
- Gæsluvarðhald staðfest í Hæstarétti
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 10. júlí 2007, Innlent Benedikt Hjartarson lagður af stað yfir Ermarsund
- Laugardagur, 7. júlí 2007, Innlent Benedikt varð að fresta sundinu fram á kvöld
- Mánudagur, 9. júlí 2007, Innlent Þurfti að hætta eftir tuttugu tíma sund
- Laugardagur, 7. júlí 2007, Innlent Benedikt reynir sund yfir Ermarsund í nótt
- Sunnudagur, 8. júlí 2007, Innlent Benedikt kominn sex mílur frá landi
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































