Tillögu að matsáætlun vegna Sundabrautar skilað til Skipulagsstofnunar

Fyrirhuguð lega Sundabrautar frá Gufunesi norður fyrir Kollafjörð.

Fyrirhuguð lega Sundabrautar frá Gufunesi norður fyrir Kollafjörð.

Tillaga að matsáætlun fyrir 2. áfanga Sundabrautar hefur verið lögð inn til Skipulagsstofnunar. Tilgangur framkvæmdarinnar er að bæta samgöngur á norðurhluta höfðuborgarsvæðisins, bæta tengingu Vestur- og Norðurlands við höfðuborgarsvæðið, auka öryggi í samgöngum, létta á umferðarþunga á öðrum vegum, auka hagræði í samgöngum og atvinnustarfsemi og opna fyrir þróun byggðar á höfuðborgarsvæðinu til norðurs og norðausturs.

Fram kemur í tillögu að matsáætlun, að lagðir séu fram 3 kostir til mats á umhverfisáhrifum. Auk þeirra kosta, sem áður voru kynntir í drögum að tillögu að matsáætlun sé bætt við þriðja valkostinum, jarðgöngum undir Eiðsvík. Þá sé auk þess fjallað um tvær aðrar útfærslur af jarðgöngum, sem hafi verið skoðaðar verið í framhaldi af athugasemdum við drög að tillögu að matsáætlun, ásamt þeim möguleika að leggja brýr alla leið yfir Eiðsvík og Leiruvog í stað vegfyllinga. Þessar lausnir séu þó ekki kynntar sem valkostir fyrir mat á umhverfisáhrifum.

Mat á umhverfisáhrifum fyrir 2. áfanga hófst sl. sumar en þá voru kynnt drög að tillögu að matsáætlun og almenningi gafst tækifæri á að koma með athugasemdir. Ýmsar athugasemdir bárust og hefur verið tekið tillit til þeirra í tillögu að matsáætlun sem nú hefur verið send til málsmeðferðar hjá Skipulagsstofnun, sem mun væntanlega auglýsa hana til kynningar á næstu dögum.

Lögbundinn athugasemdafrestur er 2 vikur, en vegna sumarleyfa hefur frestur verið lengdur í rúmar 4 vikur og er því til 10. ágúst. Athugasemdum skal skila til Skipulagsstofnunar.

Verkfræðistofan Línuhönnun verkstýrir mati á umhverfisáhrifum fyrir hönd framkvæmaraðila, sem eru Vegagerðin og Reykjavíkurborg.

Heimasíða Skipulagsstofnunar

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Betur má ef duga skal

15:20 Umferðarráð telur mikilvægt að ekki verði slakað á kröfum til að viðhalda og byggja áfram upp öruggt og skilvirkt vegakerfi. Það hvetur stjórnvöld til að standa vörð um umferðaröryggi allra landsmanna við framkvæmdir í vegagerð. Meira »
Flugvél Iceland Express í höfn

Framsetning flugmiðaverðs óskýr

14:40 Auðvelt er að gera verðsamanburð á milli bókunarvéla flugfélaganna á vefnum en mismunandi er hvernig verð flugmiða er sett þar fram. Getur þannig reynst viðskiptavinum flókið að átta sig á því í hverju hin ýmsu aukagjöld, sem eru hluti af fargjaldi, felast. Meira »

Kærði undirskriftafölsun

Daníel Guðjónsson yfirlögregluþjónn sést hér lengst til vinstri en við hlið hans standa Björn Jósef ...
14:37 „Manni líður ekki vel með það. Þetta er leiðinleg tilfinning og mér finnst ástæðulaust að sitja undir því og ætla ekki að gera það, þess vegna kærði ég þetta til að fara fram á rannsókn á því,“ segir Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn á Akureyri, í samtali við blaðamann mbl.is en Daníel er á meðal þeirra einstaklinga sem settir voru á meðmælendalista Ástþórs Magnússonar að sér forspurðum. Meira »

Auðveldar fólki að sækja um búsetu

Úr safni.
14:11 Breytt fyrirkomulag við mat á þörf fólks fyrir dvalar- eða hjúkrunarrými tekur gildi 1. júní. Vistunarmatsnefndir dvalar- og hjúkrunarrýma verða sameinaðar og í þeirra stað verður ein nefnd í hverju heilbrigðisumdæmi; færni- og heilsufarsnefnd, sem metur þörf fólks fyrir þessi úrræði. Meira »

Sjálfstæðismenn ósammála um göngin

Frá fundi fjárlaganefndar Alþingis.
13:26 Sjálfstæðismenn í fjárlaganefnd klofnuðu í afstöðu til frumvarps um jarðgöng undir Vaðlaheiðargöng. Ásbjörn Óttarsson og Illugi Gunnarsson leggjast gegn frumvarpinu en Kristján Þór Júlíusson styður það. Meira »

Meta lögmæti samningsins

Sveitarfélagið Garður.
14:33 Nýr meirihluti í bæjarstjórn Garðs ætlar að láta meta lögmæti samnings sem fyrri meirihluti gerði við Ásmund Friðriksson bæjarstjóra. Auglýst verður eftir nýjum bæjarstjóra í fjölmiðlum á morgun. Meira »

Rætt um að kaupa notaðar þyrlur

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF LÍF
13:50 Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra kynnti í ríkisstjórn í morgun hugmyndir um að kaupa tvær notaðar björgunarþyrlur sambærilegum þeim sem Landhelgisgæslan er nú með í notkun. Þessi kostur er ódýrari en að kaupa nýjar þyrlur. Meira »

Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna

Í ár tóku 250 bekkir víðsvegar um landið þátt í samkeppninni.
13:19 Úrslit í samkeppninni Tóbakslaus bekkur liggja fyrir en alls fá bekkir frá níu skólum á landinu verðlaun. Keppnin var haldin meðal meðal 7. og 8. bekkja í grunnskólum landsins. Meira »

Hjólin fá að snúast að nýju myndskeið

Hjol
12:23 Í dag hófst formlega hjólasöfnun Barnaheilla og flugfélagsins WOW þar sem landsmenn geta gefið gömul hjól með því að koma þeim á Sorpu en Mæðrastyrksnefnd mun sjá dreifingu hjólanna. Hjólin mega vera biluð því sérfræðingar munu lagfæra og gera við þau. Nemendur í Álfhólsskóla gáfu ónýtt hjól í dag. Meira »

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
11:51 Óvanaleg sjón blasti við íbúum Súðavíkur í morgun, en þá hafði einn íbúi bæjarins brugðið á það ráð að flagga fána Landsbankans öfugt, og í hálfa stöng. Meira »

„Hvatning til okkar beggja“

Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff.
12:12 „Þetta er ánægjuleg staðfesting á því sem við Dorrit höfum fundið á fundum, vinnustöðum og á viðræðum við fólk undanfarið,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, um nýja skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 þar sem hann mældist með 53,9% fylgi. Meira »

Fengu 9,8 í meðaleinkunn

Nýstúdentar frá Fjölbrautarskólanum í Garðabæ
11:49 Tveir nýstúdentar frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, Katrín Ásta Ingimarsdóttir og Sæþór Pétur Kjartansson, fengu 9,8 í meðaleinkunn í námi sínu. Meira »

Geir í nýtt starf

Geir H. Haarde
11:43 Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur gengið til liðs við OPUS lögmenn sem ráðgjafi í alþjóðlegum verkefnum.  Meira »

Ölvaður og réttindalaus

11:37 Ölvaður ökumaður, karlmaður á fertugsaldri, velti bifreið á Reykjanesbraut í fyrrinótt. Hann missti stjórn á bílnum sem hafnaði utan vegar milli akreina. Einn farþegi var í bílnum og sluppu báðir ómeiddir. Meira »

Ástþór losnar ekki við fyrirvara

Ástþór Magnússon og eiginkona hans Natalía Wiium.
11:34 „Ég veit ekki hversu margar þær eru en hann er búinn að skila viðbót núna,“ segir Katrín Theodórsdóttir, annar oddviti yfirkjörstjórna Reykjavíkurkjördæma norður og suður, aðspurð hvort hún geti staðfest að Ástþór Magnússon hafi skilað tæplega 200 viðbótarundirskriftum í morgun. Meira »

Mikið um reiðhjólaþjófnað

Mynd úr safni
11:39 Þjófnuðum á reiðhjólum hefur fjölgað umtalsvert í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum undanfarna daga.   Meira »

Tekinn á 134 km hraða

11:36 Ellefu ökumenn hafa verið staðnir að hraðakstursbrotum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók var á 134 km hraða á Reykjanesbrautinni. Meira »

Annað innbrotið á innan við viku

Mynd úr safni
11:29 Lögreglunni á Suðurnesjum barst í morgun tilkynning þess efnis að brotist hefði verið inn í fyrirtæki hjá Grófinni í Keflavík og þaðan stolið skrifstofubúnaði. Er þetta annað innbrotið í fyrirtækið í vikunni. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Hvítur dvergschnauzer.
Eigum 2 yndislega rakka ólofaða úr spennandi goti undan innfluttum margföldum me...
Ducati sport classic 1000
Til sölu Ducati sport classic, árg. 2006 ekið 2500 km. Tveggja cyl. loftkælt. V...
Bátar og útgerðarvörur á Haninn.is
Strandveiðibátar, skemmtibátar, nýr og notaður búnaður og útgerðarvörur. Fylgstu...
Lagersalan Kauptúni 3 Garðabæ
Stálvaskar,verð 5000-stk.Opið mánud. til föstud.kl. 13-18 laugard.og sunnud. kl...
 
Breyting á aðalskipulagi norðurþings

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
Starfsmaður í ræstingu
Ræstingar
??????????? ? ???????? ?????????? ??...
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...
Sýslumaðurinn á selfossi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....