Fyrstu íslensku kartöflurnar teknar upp í Þykkvabæ í morgun

Kartöflur úr Þykkvabæ.
Kartöflur úr Þykkvabæ. mbl.is

Birkir Ármannsson, bóndi í Brekku í Þykkvabæ tók upp fyrstu íslensku kartöflurnar um fimm leytið í morgun. Kartöflunum verður strax ekið til Reykjavíkur, þeim pakkað í sérmerktar umbúðir og komið í verslanir þar sem þær verða í hillunum undir hádegið.

Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra, mun verða fyrst til að smakka á uppskeru ársins ásamt Þórhalli Bjarnasyni, formanni Sambands garðyrkjubænda og öðrum valinkunnum sérfræðingum í íslensku kartöflunni, til dæmis Hrefnu Sætran yfirkokki á Fiskmarkaðnum og Loga Ólafssyni, knattspyrnuþjálfara, samkvæmt fréttatilkynningu.

„Kartöfluuppskera fyrsta dagsins er ekki stór og reynsla undanfarinna ára sýnir að ekki fá allir sem vilja á fyrsta uppskerudegi. Því er bent á að kartöflur verða teknar upp daglega næstu vikurnar, sendar í verslanir jafn óðum, og eykst uppskeran frá degi til dags. Ættu því allir að geta gætt sér á nýjum íslenskum kartöflum í sumar," samkvæmt fréttatilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert