Tjaldstæðið í Húsafelli yfirfullt

Tjaldstæðið í Húsafelli er yfirfullt og biðja starfsmenn tjaldsvæðisins fólk um að leggja ekki land undir fót í Húsafell þar sem tjaldstæðið er fullt og því þarf að vísa fólki frá sem leitar eftir því að tjalda á svæðinu.

Samkvæmt upplýsingum frá tjaldsvæðinu í Húsafelli er tjaldstæðið búið að vera fullt alla vikuna sem er mjög óvanalegt þar sem svæðið er mjög stórt.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert