Situr í gæsluvarðhaldi fyrir grófa líkamsárás

Fimmtán ára piltur, sem dæmdur var fyrir helgi í tuttugu mánaða fangelsi fyrir aðild sína að fjölmörgum lögbrotum, situr nú í gæsluvarðhaldi vegna hrottalegrar árásar á leigubílstjóra í apríl sl. og fleiri brota. Við yfirheyrslur lögreglu hefur hann játað árásina og mun að öllum líkindum verða ákærður fyrir tilraun til manndráps, en að öðrum kosti stórfellda líkamsárás.

Pilturinn, sem fæddur er árið 1991, hefur verið töluvert í umræðunni á undanförnum mánuðum, en fremur sjaldgæft er að svo ungt fólk þurfi að sæta gæsluvarðhaldi. Eftir árásina á leigubílstjórann var honum komið fyrir á meðferðarheimili ríkisins að Stuðlum eftir skamma dvöl í einangrun í hegningarhúsinu við Skólavörðustíg.

Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins var hins vegar ekki annað fært en að færa hann að nýju á Skólavörðustíginn eftir skamma dvöl á Stuðlum.

Vopnað rán í 10–11

Pilturinn var dæmdur í tuttugu mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness á fimmtudag en hann tók m.a. þátt í þremur ránum auk þjófnaða og nytjastulda. Hann sagðist sjálfur hafa verið í óhóflegri fíkniefnaneyslu allt frá 12 ára aldri og kvaðst aldrei hafa farið í meðferð. Einna alvarlegasta brotið sem hann var sakfelldur fyrir var vopnað rán sem hann framdi í 10–11 verslun ásamt tveimur félögum sínum.

Einnig var hann sakfelldur fyrir aðild sína að tilraun til ráns á hraðbanka og fyrir að hafa, ásamt tveimur félögum, veist að tveimur mönnum í miðbæ Reykjavíkur, hótað þeim öllu illu og tekið af þeim farsíma þar sem þeir höfðu ekki reiðufé á sér.

Steininn tók úr 27. apríl sl. þegar pilturinn réðst að leigubílstjóra vopnaður hamri og veitti honum þungt högg hægra megin á höfuðið. Bílstjórinn hlaut af innkýlt höfuðkúpubrot og innvortis blæðingu á höfði. Brotið getur varðað allt að 16 ára, eða ævilöngu, fangelsi. Áður en hann var handtekinn vegna árásarinnar stal hann kveikjuláslyklum úr búningsklefa Sundhallar Reykjavíkur en komst ekki langt því hann ók bifreiðinni á ljósastaur við Sæbraut. Hann var handtekinn skammt frá.

Í varðhaldi til 17. ágúst

Samkvæmt greinargerð lögreglu var pilturinn í afar slæmu ástandi vegna áhrifa lyfja eða fíkniefna. Við skýrslutöku sagðist pilturinn ekki muna eftir atvikinu en játaði að hafa beitt hamri gegn leigubílstjóranum.

Ekki hefur verið gefin út ákæra í málinu en pilturinn mun sitja í gæsluvarðhaldi til 17. ágúst nk.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Betur má ef duga skal

15:20 Umferðarráð telur mikilvægt að ekki verði slakað á kröfum til að viðhalda og byggja áfram upp öruggt og skilvirkt vegakerfi. Það hvetur stjórnvöld til að standa vörð um umferðaröryggi allra landsmanna við framkvæmdir í vegagerð. Meira »
Flugvél Iceland Express í höfn

Framsetning flugmiðaverðs óskýr

14:40 Auðvelt er að gera verðsamanburð á milli bókunarvéla flugfélaganna á vefnum en mismunandi er hvernig verð flugmiða er sett þar fram. Getur þannig reynst viðskiptavinum flókið að átta sig á því í hverju hin ýmsu aukagjöld, sem eru hluti af fargjaldi, felast. Meira »

Kærði undirskriftafölsun

Daníel Guðjónsson yfirlögregluþjónn sést hér lengst til vinstri en við hlið hans standa Björn Jósef ...
14:37 „Manni líður ekki vel með það. Þetta er leiðinleg tilfinning og mér finnst ástæðulaust að sitja undir því og ætla ekki að gera það, þess vegna kærði ég þetta til að fara fram á rannsókn á því,“ segir Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn á Akureyri, í samtali við blaðamann mbl.is en Daníel er á meðal þeirra einstaklinga sem settir voru á meðmælendalista Ástþórs Magnússonar að sér forspurðum. Meira »

Auðveldar fólki að sækja um búsetu

Úr safni.
14:11 Breytt fyrirkomulag við mat á þörf fólks fyrir dvalar- eða hjúkrunarrými tekur gildi 1. júní. Vistunarmatsnefndir dvalar- og hjúkrunarrýma verða sameinaðar og í þeirra stað verður ein nefnd í hverju heilbrigðisumdæmi; færni- og heilsufarsnefnd, sem metur þörf fólks fyrir þessi úrræði. Meira »

Sjálfstæðismenn ósammála um göngin

Frá fundi fjárlaganefndar Alþingis.
13:26 Sjálfstæðismenn í fjárlaganefnd klofnuðu í afstöðu til frumvarps um jarðgöng undir Vaðlaheiðargöng. Ásbjörn Óttarsson og Illugi Gunnarsson leggjast gegn frumvarpinu en Kristján Þór Júlíusson styður það. Meira »

Meta lögmæti samningsins

Sveitarfélagið Garður.
14:33 Nýr meirihluti í bæjarstjórn Garðs ætlar að láta meta lögmæti samnings sem fyrri meirihluti gerði við Ásmund Friðriksson bæjarstjóra. Auglýst verður eftir nýjum bæjarstjóra í fjölmiðlum á morgun. Meira »

Rætt um að kaupa notaðar þyrlur

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF LÍF
13:50 Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra kynnti í ríkisstjórn í morgun hugmyndir um að kaupa tvær notaðar björgunarþyrlur sambærilegum þeim sem Landhelgisgæslan er nú með í notkun. Þessi kostur er ódýrari en að kaupa nýjar þyrlur. Meira »

Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna

Í ár tóku 250 bekkir víðsvegar um landið þátt í samkeppninni.
13:19 Úrslit í samkeppninni Tóbakslaus bekkur liggja fyrir en alls fá bekkir frá níu skólum á landinu verðlaun. Keppnin var haldin meðal meðal 7. og 8. bekkja í grunnskólum landsins. Meira »

Hjólin fá að snúast að nýju myndskeið

Hjol
12:23 Í dag hófst formlega hjólasöfnun Barnaheilla og flugfélagsins WOW þar sem landsmenn geta gefið gömul hjól með því að koma þeim á Sorpu en Mæðrastyrksnefnd mun sjá dreifingu hjólanna. Hjólin mega vera biluð því sérfræðingar munu lagfæra og gera við þau. Nemendur í Álfhólsskóla gáfu ónýtt hjól í dag. Meira »

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
11:51 Óvanaleg sjón blasti við íbúum Súðavíkur í morgun, en þá hafði einn íbúi bæjarins brugðið á það ráð að flagga fána Landsbankans öfugt, og í hálfa stöng. Meira »

„Hvatning til okkar beggja“

Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff.
12:12 „Þetta er ánægjuleg staðfesting á því sem við Dorrit höfum fundið á fundum, vinnustöðum og á viðræðum við fólk undanfarið,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, um nýja skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 þar sem hann mældist með 53,9% fylgi. Meira »

Fengu 9,8 í meðaleinkunn

Nýstúdentar frá Fjölbrautarskólanum í Garðabæ
11:49 Tveir nýstúdentar frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, Katrín Ásta Ingimarsdóttir og Sæþór Pétur Kjartansson, fengu 9,8 í meðaleinkunn í námi sínu. Meira »

Geir í nýtt starf

Geir H. Haarde
11:43 Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur gengið til liðs við OPUS lögmenn sem ráðgjafi í alþjóðlegum verkefnum.  Meira »

Ölvaður og réttindalaus

11:37 Ölvaður ökumaður, karlmaður á fertugsaldri, velti bifreið á Reykjanesbraut í fyrrinótt. Hann missti stjórn á bílnum sem hafnaði utan vegar milli akreina. Einn farþegi var í bílnum og sluppu báðir ómeiddir. Meira »

Ástþór losnar ekki við fyrirvara

Ástþór Magnússon og eiginkona hans Natalía Wiium.
11:34 „Ég veit ekki hversu margar þær eru en hann er búinn að skila viðbót núna,“ segir Katrín Theodórsdóttir, annar oddviti yfirkjörstjórna Reykjavíkurkjördæma norður og suður, aðspurð hvort hún geti staðfest að Ástþór Magnússon hafi skilað tæplega 200 viðbótarundirskriftum í morgun. Meira »

Mikið um reiðhjólaþjófnað

Mynd úr safni
11:39 Þjófnuðum á reiðhjólum hefur fjölgað umtalsvert í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum undanfarna daga.   Meira »

Tekinn á 134 km hraða

11:36 Ellefu ökumenn hafa verið staðnir að hraðakstursbrotum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók var á 134 km hraða á Reykjanesbrautinni. Meira »

Annað innbrotið á innan við viku

Mynd úr safni
11:29 Lögreglunni á Suðurnesjum barst í morgun tilkynning þess efnis að brotist hefði verið inn í fyrirtæki hjá Grófinni í Keflavík og þaðan stolið skrifstofubúnaði. Er þetta annað innbrotið í fyrirtækið í vikunni. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Glæsilegt sumarhús í Borgarfirði til leigu
Glæsilegt heilsárshús til leigu 11km norður af Borgarnesi. Stutt í frábærarar ná...
Stæði fyrir hjólhýsi
Til leigu tvö stæði fyrir hjólhýsi í Grímsnesi í sumar, vatn, rafmagn og frárens...
9 FM VANDAÐ BJÁLKAHÚS
9 fm vandað bjálkahús úr þéttum viði - fæst með eða án þakefnis. Verð kr. 374.90...
Eigum á lager ýmsar , og útvegum allar stærðir af landrafstöðvum
10-15-30 kw dieselrafstöðvar á lager, útvegum aðrar stærðir. Deutz , Perkins, ...
 
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Auglýsing byggðakvóti

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvó...
Skólastjóri við grandaskóla
Grunn-/framhaldsskóla
Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborg...
Kennarar og leikskólakennarar
Grunn-/framhaldsskóla
Hafralækjarskóli og Litlulaugaskóli í Þ...