Loft var ekki í öllum neyðarflotum

eftir Friðrik Ársælsson

fridrik@mbl.is

TILDRÖG þyrluóhappsins í Straumsvík eru enn á reiki, en Landhelgisgæslan hefur lagt það fyrir áhöfn TF-Sifjar og þá sem vitni urðu að óhappinu að tjá sig ekki um atvikið í tvo sólarhringa vegna rannsóknarhagsmuna. Samkvæmt heimildum blaðsins var þyrlan að undirbúa hífingu þegar hún missti skyndilega afl. Neyðarflotum hafi verið skotið út og þyrlunni mjúklega lent á sjónum. Áhöfnin kom sér sjálf frá borði og um borð í björgunarbátinn Einar Sigurjónsson, sem var þyrlusveit Landhelgisgæslunnar til halds og trausts við æfingarnar í gær. Eftir að þyrlan hafði verið yfirgefin flaut hún í um hálfa klukkustund, en þá hafi loft tekið að leka úr neyðarflotum með þeim afleiðingum að þyrlan fór á hvolf.

Þorkell Ágústsson, rannsóknarstjóri Rannsóknarnefndar flugslysa, staðfestir að það sé til skoðunar af hverju loft hafi ekki verið í öllum neyðarflotum þyrlunnar. Hann segir að rannsókn óhappsins megi skipta í tvennt. Annars vegar sé verið að athuga af hverju vélin hafi fallið og hins vegar af hverju hún hafi farið á hvolf. Þorkell segir að undir vélinni séu fjögur neyðarflot. Tvö kúlulaga flot séu að aftan og tveir sívalingar að framan. Að sögn Þorkels eru flotin að framan hólfuð í þrennt og útlit er fyrir að eitt hólfið hafi brostið og loft tæmst úr því.

Björgunaraðgerðir heppnuðust vel

TF-Sif var dregin til Hafnarfjarðar og tekin á land þar í gærmorgun. Lyftibelgir voru settir á vélina til að tryggja að hún flyti og að því loknu var hljóðritinn tekinn úr vélinni og flakið myndað að beiðni rannsóknarnefndar flugslysa. Kafarar fóru niður undir vélina og fjarlægðu þyrluspaðana af henni og komu böndum undir ásinn sem heldur spöðunum til að rétta vélina af. Prammi með krana var notaður til þess að hífa hana upp og tókst sú aðgerð með ágætum. Vélin var dregin upp að bryggju í Hafnarfirði þar sem hún var hífð upp á bíl og flutt í húsnæði á vegum Rannsóknarnefndar flugslysa á Reykjavíkurflugvelli þar sem hún mun sæta frekari rannsókn. Um 30 manns tóku þátt í björgunaraðgerðum. Auk starfsmanna Gæslunnar höfðu hönd í bagga kafarar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, björgunarsveitarmenn frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg, lögreglan og Köfunarþjónusta Árna Kópssonar.

Gæti tekið marga mánuði

Vettvangsrannsókn er nú á lokastigi að sögn Þorkels Ágústssonar. Starfsmenn nefndarinnar hafa verið á vettvangi síðan óhappið bar að höndum og safnað hverfulum sönnunargögnum og myndað vettvanginn. Þorkell segir að sú staðreynd að slysið hafi átt sér stað á sjó úti geri það að verkum að vettvangsrannsókn taki lengri tíma en ella.

Að vettvangsrannsókn lokinni hefst frumrannsókn þar sem frekari gagna verður aflað. Viðtöl verða tekin við vitni, upplýsinga aflað úr flugritum og GPS-tækjum í því skyni að varpa ljósi á hvort slysið sé að rekja til veðurfars, stjórntækja, hreyfils, mannlegra mistaka og þar fram eftir götum. Þorkell segir að frumrannsókn geti tekið eina til tvær vikur, en að henni lokinni fari myndin vonandi að skýrast og rannsóknin að beinast í ákveðna átt. Hin eiginlega rannsókn tekur við í kjölfarið, en hún er býsna umfangsmikil og margir mánuðir geta liðið þar til niðurstöðurnar liggja fyrir.

"Þetta er ekki eins og að kaupa bíl," segir Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, spurður um hvernig leit að nýrri þyrlu til bráðabirgða miði. Hann segir að björgunarþyrlur séu af skornum skammti og til að mynda séu Norðmenn að huga að þyrlum sem eigi að vera tilbúnar árið 2020. Hann segir að ef TF-Sif reynist ónýt hafi Gæslan ekki annarra kosta völ en að falast eftir vél frá framleiðandanum Eurocopter þar sem menntun og færni starfsmanna, bæði hvað varðar viðhald og flugfærni, miðist við þyrlur frá framleiðandanum.

Eftir óhappið í Straumsvík samanstendur þyrlufloti Gæslunnar af þremur vélum, tveimur stærri Super-Puma-þyrlum og einni minni Dauphin-þyrlu, en TF-Sif er af gerðinni Dauphin.

Vélin aðeins tryggð fyrir 78 m.kr.

Georg segir ekkert neyðarástand ríkja í björgunarmálum í kjölfar óhappsins í fyrradag, en það sé þó mjög bagalegt og kostnaðarsamt að reka aðeins þrjár þyrlur og því brýnt að ný vél verði tekin í gagnið sem fyrst.

"Við teljum að öryggi sé nokkuð tryggt, þar sem við höfum breytt notkun og viðhaldi á vélunum. En það kostar aukin fjárútlát þar sem meiri vinna fer í viðhaldsmál og skipulagningu vakta."

Dagmar Sigurðardóttir, lögfræðingur Landhelgisgæslunnar, segir að TF-Sif sé tryggð fyrir 1,3 milljónir Bandaríkjadollara eða tæpar 78 milljónir króna miðað við gengi í gær. Þar af eru 20% eigin áhætta, eða um 16 milljónir króna.

Hún segir að þegar tryggingafjárhæð hafi verið ákveðin hafi verið litið til búnaðar sambærilegra þyrlna erlendis miðað við búnað, aldur og fleira. Ekki sé langt síðan fjárhæðin hafi verið metin í samráði við dómsmálaráðuneytið. Georg Lárusson segir að ný vél af sömu tegund og TF-Sif, útbúin til leitar og björgunar, kosti um einn milljarð króna. Himinn og haf er því á milli kostnaðar við kaup á nýrri þyrlu og þeirra bóta sem fást úr tryggingu ef TF-Sif reynist ónýt.

Þyrlan TF-Sif hefur á 22 ára ferli komið að björgun tuga ef ekki hundraða mannslífa. Hún var fljót að sanna gildi sitt sem alhliða björgunartæki, eins og sést á þessu yfirliti yfir björgunaraðgerðir þyrlunnar á aðeins fimm ára tímabili.

14. mars 1987

Níu skipverjum af Barðanum GK bjargað um borð í TF-Sif, eftir að skipið hafði strandað í Dritvík á Snæfellsnesi. Allir skipverjar voru heilir á húfi, en skipstjórinn var fluttur til Reykjavíkur þar sem hann var orðinn mjög þrekaður.

12. febrúar 1988

Ellefu mönnum bjargað frá borði Hrafns Sveinbjarnarsonar III GK með aðstoð TF-Sifjar, eftir að báturinn strandaði í Hópsnesi austan við innsiglinguna til Grindavíkur. Þyrlan fór fjórar ferðir; fjórir skipverjar voru fluttir í fyrstu ferðinni, þrír í annarri og síðan tveir og tveir.

14. júní 1990

Áhöfn TF-Sifjar bjargar tveimur mönnum sem nauðlentu tveggja hreyfla flugvél í sjó, 29 kílómetrum vestur af Reykjanesi. Mennirnir voru illa klæddir, í stuttermabolum og berfættir, og aðeins annar þeirra var í björgunarvesti. Hinn hékk í loftneti flutvélarinnar sem var að hverfa í hafið. Að sögn björgunarmanna mátti engu muna.

6. ágúst 1991

Þýskum námsmanni, sem hafði fallið um 20 metra í fjallgöngu á Öræfajökli, var bjargað við erfiðar aðstæður.

Ekki var hægt að hífa Þjóðverjann beint upp í þyrluna af slysstað vegna sviptivinda og niðurstreymis, en hann var fluttur með TF-Sif undir læknishendur.

"Þyrlan reyndist afskaplega vel"

Þyrlan TF-SIF, sem nú er milli heims og helju, ef svo má að orði komast, hefur eflaust meira tilfinningagildi fyrir Benóný Ásgrímsson, þyrluflugstjóra hjá Landhelgisgæslunni, en flesta aðra Íslendinga. Benóný var með í för þegar þyrlan var sótt í verksmiðju Aérospatiale í Frakklandi árið 1985. Hann hefur flogið henni óslitið frá þeim tíma og tók síðast vakt á henni fyrir rúmri viku.

"Þegar þyrlan kom til landsins var hún talin í hópi fullkomnustu björgunarvéla í sambærilegum stærðarflokki, sérstaklega með tilliti til útbúnaðarins," segir Benóný. Skömmu eftir að þyrlan kom til landsins var 24 klukkustunda varðstaða sett á vélina og í kjölfarið buðust fimm ungir læknar til þess að taka vaktir á þyrlunni í sjálfboðavinnu. Læknarnir starfa enn með þyrlusveit Landhelgisgæslunnar, þótt ekki sé lengur um sjálfboðavinnu að ræða.

"Þyrlan reyndist afskaplega vel strax í upphafi. Gæslan hafði verið með annars konar þyrlur og við tókum strax eftir því hversu viðhalds- og bilanalítil hún var í samanburði við þær. Þetta var gott eintak sem í gegnum árin hefur tekið þátt í mörgum erfiðum björgunum og sjúkraflugi. Hún sannaði gildi sitt fljótlega eftir að hún kom heim, en mikið reyndi á hana við björgun níu manna áhafnar Barðans, sem strandaði í Dritvík árið 1987," segir Benóný.

En skyldi flugmaðurinn, sem eytt hefur drjúgum hluta ævi sinnar um borð í TF-Sif, ekki sjá mikið eftir henni. "Jú, vissulega geri ég það. Það sem hins vegar skiptir höfuðmáli er það að hún hefur ávallt skilað áhöfn sinni og þeim sem hafa reitt sig á hana heilum heim," segir Benóný. Hann segir óhætt að fullyrða það að TF-Sif sé besta þyrla sem hann hefur flogið. "Þetta er auðvitað persónubundið smekksatriði eins og hvað annað. Ég hef alltaf sagt að þyrlur af Dauphin-gerð [líkt og TF-Sif] séu eins og litlir sportbílar, bornar saman við Super Puma-þyrlurnar [líkt og TF-Líf] sem eru líkari fjórhjóladrifnum trukkum. Fólki þykir oft skemmtilegra að vera á sportbílnum, en trukkurinn fer kannski yfir meira," segir Benóný.

Að sögn Halldórs B. Nellet, framkvæmdastjóra aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar, hefur TF-Sif verið afskaplega vel við haldið í gegnum tíðina og í raun ekki hægt að tala um að vélin sé frá 1985, þar sem svo oft hafi verið skipt um varahluti í henni.

Líklega sé skrokkurinn eini hluti hennar sem sé yfir 20 ára gamall. Þyrlan sé því ekki komin til ára sinna, þótt hönnunin sé í sjálfu sér gömul og nýjar sambærilegar vélar búnar stærri mótorum og nýrri tækni.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Betur má ef duga skal

15:20 Umferðarráð telur mikilvægt að ekki verði slakað á kröfum til að viðhalda og byggja áfram upp öruggt og skilvirkt vegakerfi. Það hvetur stjórnvöld til að standa vörð um umferðaröryggi allra landsmanna við framkvæmdir í vegagerð. Meira »
Flugvél Iceland Express í höfn

Framsetning flugmiðaverðs óskýr

14:40 Auðvelt er að gera verðsamanburð á milli bókunarvéla flugfélaganna á vefnum en mismunandi er hvernig verð flugmiða er sett þar fram. Getur þannig reynst viðskiptavinum flókið að átta sig á því í hverju hin ýmsu aukagjöld, sem eru hluti af fargjaldi, felast. Meira »

Kærði undirskriftafölsun

Daníel Guðjónsson yfirlögregluþjónn sést hér lengst til vinstri en við hlið hans standa Björn Jósef ...
14:37 „Manni líður ekki vel með það. Þetta er leiðinleg tilfinning og mér finnst ástæðulaust að sitja undir því og ætla ekki að gera það, þess vegna kærði ég þetta til að fara fram á rannsókn á því,“ segir Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn á Akureyri, í samtali við blaðamann mbl.is en Daníel er á meðal þeirra einstaklinga sem settir voru á meðmælendalista Ástþórs Magnússonar að sér forspurðum. Meira »

Auðveldar fólki að sækja um búsetu

Úr safni.
14:11 Breytt fyrirkomulag við mat á þörf fólks fyrir dvalar- eða hjúkrunarrými tekur gildi 1. júní. Vistunarmatsnefndir dvalar- og hjúkrunarrýma verða sameinaðar og í þeirra stað verður ein nefnd í hverju heilbrigðisumdæmi; færni- og heilsufarsnefnd, sem metur þörf fólks fyrir þessi úrræði. Meira »

Sjálfstæðismenn ósammála um göngin

Frá fundi fjárlaganefndar Alþingis.
13:26 Sjálfstæðismenn í fjárlaganefnd klofnuðu í afstöðu til frumvarps um jarðgöng undir Vaðlaheiðargöng. Ásbjörn Óttarsson og Illugi Gunnarsson leggjast gegn frumvarpinu en Kristján Þór Júlíusson styður það. Meira »

Meta lögmæti samningsins

Sveitarfélagið Garður.
14:33 Nýr meirihluti í bæjarstjórn Garðs ætlar að láta meta lögmæti samnings sem fyrri meirihluti gerði við Ásmund Friðriksson bæjarstjóra. Auglýst verður eftir nýjum bæjarstjóra í fjölmiðlum á morgun. Meira »

Rætt um að kaupa notaðar þyrlur

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF LÍF
13:50 Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra kynnti í ríkisstjórn í morgun hugmyndir um að kaupa tvær notaðar björgunarþyrlur sambærilegum þeim sem Landhelgisgæslan er nú með í notkun. Þessi kostur er ódýrari en að kaupa nýjar þyrlur. Meira »

Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna

Í ár tóku 250 bekkir víðsvegar um landið þátt í samkeppninni.
13:19 Úrslit í samkeppninni Tóbakslaus bekkur liggja fyrir en alls fá bekkir frá níu skólum á landinu verðlaun. Keppnin var haldin meðal meðal 7. og 8. bekkja í grunnskólum landsins. Meira »

Hjólin fá að snúast að nýju myndskeið

Hjol
12:23 Í dag hófst formlega hjólasöfnun Barnaheilla og flugfélagsins WOW þar sem landsmenn geta gefið gömul hjól með því að koma þeim á Sorpu en Mæðrastyrksnefnd mun sjá dreifingu hjólanna. Hjólin mega vera biluð því sérfræðingar munu lagfæra og gera við þau. Nemendur í Álfhólsskóla gáfu ónýtt hjól í dag. Meira »

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
11:51 Óvanaleg sjón blasti við íbúum Súðavíkur í morgun, en þá hafði einn íbúi bæjarins brugðið á það ráð að flagga fána Landsbankans öfugt, og í hálfa stöng. Meira »

„Hvatning til okkar beggja“

Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff.
12:12 „Þetta er ánægjuleg staðfesting á því sem við Dorrit höfum fundið á fundum, vinnustöðum og á viðræðum við fólk undanfarið,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, um nýja skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 þar sem hann mældist með 53,9% fylgi. Meira »

Fengu 9,8 í meðaleinkunn

Nýstúdentar frá Fjölbrautarskólanum í Garðabæ
11:49 Tveir nýstúdentar frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, Katrín Ásta Ingimarsdóttir og Sæþór Pétur Kjartansson, fengu 9,8 í meðaleinkunn í námi sínu. Meira »

Geir í nýtt starf

Geir H. Haarde
11:43 Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur gengið til liðs við OPUS lögmenn sem ráðgjafi í alþjóðlegum verkefnum.  Meira »

Ölvaður og réttindalaus

11:37 Ölvaður ökumaður, karlmaður á fertugsaldri, velti bifreið á Reykjanesbraut í fyrrinótt. Hann missti stjórn á bílnum sem hafnaði utan vegar milli akreina. Einn farþegi var í bílnum og sluppu báðir ómeiddir. Meira »

Ástþór losnar ekki við fyrirvara

Ástþór Magnússon og eiginkona hans Natalía Wiium.
11:34 „Ég veit ekki hversu margar þær eru en hann er búinn að skila viðbót núna,“ segir Katrín Theodórsdóttir, annar oddviti yfirkjörstjórna Reykjavíkurkjördæma norður og suður, aðspurð hvort hún geti staðfest að Ástþór Magnússon hafi skilað tæplega 200 viðbótarundirskriftum í morgun. Meira »

Mikið um reiðhjólaþjófnað

Mynd úr safni
11:39 Þjófnuðum á reiðhjólum hefur fjölgað umtalsvert í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum undanfarna daga.   Meira »

Tekinn á 134 km hraða

11:36 Ellefu ökumenn hafa verið staðnir að hraðakstursbrotum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók var á 134 km hraða á Reykjanesbrautinni. Meira »

Annað innbrotið á innan við viku

Mynd úr safni
11:29 Lögreglunni á Suðurnesjum barst í morgun tilkynning þess efnis að brotist hefði verið inn í fyrirtæki hjá Grófinni í Keflavík og þaðan stolið skrifstofubúnaði. Er þetta annað innbrotið í fyrirtækið í vikunni. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Hvítur dvergschnauzer.
Eigum 2 yndislega rakka ólofaða úr spennandi goti undan innfluttum margföldum me...
Ducati sport classic 1000
Til sölu Ducati sport classic, árg. 2006 ekið 2500 km. Tveggja cyl. loftkælt. V...
Bátar og útgerðarvörur á Haninn.is
Strandveiðibátar, skemmtibátar, nýr og notaður búnaður og útgerðarvörur. Fylgstu...
Lagersalan Kauptúni 3 Garðabæ
Stálvaskar,verð 5000-stk.Opið mánud. til föstud.kl. 13-18 laugard.og sunnud. kl...
 
Til sölu m-bens e-200

Til sölu M-BENS E-200 Árgerð...
Sýslumaðurinn í hafnarfirði - framhald uppboð

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
12836 fellahverfi - útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Trjáplöntusala bjarkarholti mosfellsbæ

Trjáplöntusala Bjarkarholti 1, Mosfellsb...