Lögregla kölluð til vegna tillitsleysi ökumanna

Lögreglan þarf að taka á ýmsum málum.
Lögreglan þarf að taka á ýmsum málum. mbl.is/Júlíus

Lögregla var kölluð til í gær að gatnamótum Vesturlandsvegar og Þingvallavegar þar sem hámarkshraði hefur verið lækkaður tímabundið í 30 km vegna framkvæmda. Eitthvað gekk sumum ökumönnum illa að virða hraðatakmörk og þurfti lögregla að stýra umferðarhraðanum svo ekki færi illa.

Á ákveðnum stöðum á höfuðborgarsvæðinu hefur leyfður hámarkshraði á vegum verið lækkaður sökum þess að framkvæmdir standa yfir. Það á t.d. við um gatnamót Vesturlandsvegar og Þingvallavegar en í gær var unnið þar við malbikun en síðar í sumar verður hringtorg tekið í notkun á þessum stað, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

„Á umræddum gatnamótum er nú 30 km hámarkshraði enda er um vinnusvæði að ræða. Engu að síður eiga fjölmargir ökumenn erfitt með taka tillit til aðstæðna en segja má að í gær hafi keyrt um þverbak. Svo fór að óskað var eftir aðstoð lögreglu við að halda niðri hraðanum enda skapar ógætilegur akstur ávallt hættu fyrir vegfarendur. Í þessu tilfelli átti það ekki síst við um þá starfsmenn sem voru að vinna við malbikun á staðnum en þeim stóð ógn af hraðakstri um gatnamót Vesturlandsvegar og Þingvallavegar.

Skemmst er frá því að segja að ökumenn drógu verulega úr hraðanum við komu lögreglu á staðinn. Framkvæmdir halda áfram á þessum gatnamótum næstu vikur og því biður lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ökumenn að sýna þolinmæði þar sem annars staðar í umferðinni," samkvæmt tilkynningu frá lögreglu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert