SVÞ vilja að Hagstofan annist verðrannsóknir

SVÞ vilja að Hagstofa Íslands annist verðrannsóknir.

SVÞ vilja að Hagstofa Íslands annist verðrannsóknir. mbl.is/Golli

Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) vilja að Hagstofa Íslands annist verðrannsóknir í þágu neytenda og hafa samtökin óskað eftir viðræðum við stofnunina um samstarf þar að lútandi. Jafnframt telja samtökin einsýnt að stjórnvöld endurskoði samninga og ráðstöfun opinberra fjárveitinga til slíkra verkefna. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá SVÞ.

„SVÞ árétta það sem komið hefur fram í fjölmiðlum undanfarna daga um verðþróun matvæla á Íslandi, að matvöruverð hafi haldið niðri verðbólgu á undanförnum árum. Þannig hækkaði matvara aðeins um 2,70% á tímabilinu febrúar árið 2002 til febrúar ársins 2007 á meðan vísitala neysluverðs hækkaði um 21,24%. Kaup á matvöru vega nú um 12,3% af útgjöldum heimila.

Vísitala neysluverðs hefur hækkað um 23,59% frá febrúar árið 2002 til júlí 2007. Á sama tíma hefur vísitala dagvöru lækkað um 3,55%. Frá febrúar árið 2002 til maí 2007 hefur húsnæðisvísitalan hækkað um 80,70% og launavísitalan um 40.97%.

Eftir lækkun virðisaukaskatts og vörugjalda á mat- og drykkjarvörur 1.mars sl. lýsti Hagstofa Íslands því yfir að verslunin hefði skilað sínu og vel það. Það er því algjörlega út í hött að halda því fram að verslunin hafi ekki staðið sig og skilað lækkunum til neytenda í landinu.

Um áhrif styrkingu krónunnar á vöruverð liggur ekkert fyrir annað en það sem úttekt Rannsóknarseturs verslunarinnar sýndi, að ætíð líður nokkur tími frá breytingum á gengi þar til áhrifin koma fram í vöruverði. Að auki má benda á að einungis um 30% innkaupa matvöruverslana eru innfluttar vörur sem eru að langstærstum hluta keyptar af innlendum birgjum í íslenskum krónum.

Hagstofa Íslands reiknar verðbreytingar í landinu og birtir reglulega vísitölu neysluverðs þar sem öll útgjöld fjölskyldunnar eru vegin. Versluninni þykir rétt að byggja á þessari vinnu og óumdeildri stöðu Hagstofunnar sem óhlutdrægs fagaðila og að Hagstofan auki þessar verðrannsóknir og annist þar með þá verðmælingu sem talin er henta þörfum neytenda í landinu. SVÞ hafa óskað eftir viðræðum við Hagstofuna í næsta mánuði um þessi mál. Jafnframt er talið eðlilegt að stjórnvöld endurskoði ráðstöfun opinberra fjármuna til verðrannsókna í þágu neytenda," að því er segir í yfirlýsingu frá SVÞ.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Betur má ef duga skal

15:20 Umferðarráð telur mikilvægt að ekki verði slakað á kröfum til að viðhalda og byggja áfram upp öruggt og skilvirkt vegakerfi. Það hvetur stjórnvöld til að standa vörð um umferðaröryggi allra landsmanna við framkvæmdir í vegagerð. Meira »
Flugvél Iceland Express í höfn

Framsetning flugmiðaverðs óskýr

14:40 Auðvelt er að gera verðsamanburð á milli bókunarvéla flugfélaganna á vefnum en mismunandi er hvernig verð flugmiða er sett þar fram. Getur þannig reynst viðskiptavinum flókið að átta sig á því í hverju hin ýmsu aukagjöld, sem eru hluti af fargjaldi, felast. Meira »

Kærði undirskriftafölsun

Daníel Guðjónsson yfirlögregluþjónn sést hér lengst til vinstri en við hlið hans standa Björn Jósef ...
14:37 „Manni líður ekki vel með það. Þetta er leiðinleg tilfinning og mér finnst ástæðulaust að sitja undir því og ætla ekki að gera það, þess vegna kærði ég þetta til að fara fram á rannsókn á því,“ segir Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn á Akureyri, í samtali við blaðamann mbl.is en Daníel er á meðal þeirra einstaklinga sem settir voru á meðmælendalista Ástþórs Magnússonar að sér forspurðum. Meira »

Auðveldar fólki að sækja um búsetu

Úr safni.
14:11 Breytt fyrirkomulag við mat á þörf fólks fyrir dvalar- eða hjúkrunarrými tekur gildi 1. júní. Vistunarmatsnefndir dvalar- og hjúkrunarrýma verða sameinaðar og í þeirra stað verður ein nefnd í hverju heilbrigðisumdæmi; færni- og heilsufarsnefnd, sem metur þörf fólks fyrir þessi úrræði. Meira »

Sjálfstæðismenn ósammála um göngin

Frá fundi fjárlaganefndar Alþingis.
13:26 Sjálfstæðismenn í fjárlaganefnd klofnuðu í afstöðu til frumvarps um jarðgöng undir Vaðlaheiðargöng. Ásbjörn Óttarsson og Illugi Gunnarsson leggjast gegn frumvarpinu en Kristján Þór Júlíusson styður það. Meira »

Meta lögmæti samningsins

Sveitarfélagið Garður.
14:33 Nýr meirihluti í bæjarstjórn Garðs ætlar að láta meta lögmæti samnings sem fyrri meirihluti gerði við Ásmund Friðriksson bæjarstjóra. Auglýst verður eftir nýjum bæjarstjóra í fjölmiðlum á morgun. Meira »

Rætt um að kaupa notaðar þyrlur

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF LÍF
13:50 Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra kynnti í ríkisstjórn í morgun hugmyndir um að kaupa tvær notaðar björgunarþyrlur sambærilegum þeim sem Landhelgisgæslan er nú með í notkun. Þessi kostur er ódýrari en að kaupa nýjar þyrlur. Meira »

Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna

Í ár tóku 250 bekkir víðsvegar um landið þátt í samkeppninni.
13:19 Úrslit í samkeppninni Tóbakslaus bekkur liggja fyrir en alls fá bekkir frá níu skólum á landinu verðlaun. Keppnin var haldin meðal meðal 7. og 8. bekkja í grunnskólum landsins. Meira »

Hjólin fá að snúast að nýju myndskeið

Hjol
12:23 Í dag hófst formlega hjólasöfnun Barnaheilla og flugfélagsins WOW þar sem landsmenn geta gefið gömul hjól með því að koma þeim á Sorpu en Mæðrastyrksnefnd mun sjá dreifingu hjólanna. Hjólin mega vera biluð því sérfræðingar munu lagfæra og gera við þau. Nemendur í Álfhólsskóla gáfu ónýtt hjól í dag. Meira »

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
11:51 Óvanaleg sjón blasti við íbúum Súðavíkur í morgun, en þá hafði einn íbúi bæjarins brugðið á það ráð að flagga fána Landsbankans öfugt, og í hálfa stöng. Meira »

„Hvatning til okkar beggja“

Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff.
12:12 „Þetta er ánægjuleg staðfesting á því sem við Dorrit höfum fundið á fundum, vinnustöðum og á viðræðum við fólk undanfarið,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, um nýja skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 þar sem hann mældist með 53,9% fylgi. Meira »

Fengu 9,8 í meðaleinkunn

Nýstúdentar frá Fjölbrautarskólanum í Garðabæ
11:49 Tveir nýstúdentar frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, Katrín Ásta Ingimarsdóttir og Sæþór Pétur Kjartansson, fengu 9,8 í meðaleinkunn í námi sínu. Meira »

Geir í nýtt starf

Geir H. Haarde
11:43 Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur gengið til liðs við OPUS lögmenn sem ráðgjafi í alþjóðlegum verkefnum.  Meira »

Ölvaður og réttindalaus

11:37 Ölvaður ökumaður, karlmaður á fertugsaldri, velti bifreið á Reykjanesbraut í fyrrinótt. Hann missti stjórn á bílnum sem hafnaði utan vegar milli akreina. Einn farþegi var í bílnum og sluppu báðir ómeiddir. Meira »

Ástþór losnar ekki við fyrirvara

Ástþór Magnússon og eiginkona hans Natalía Wiium.
11:34 „Ég veit ekki hversu margar þær eru en hann er búinn að skila viðbót núna,“ segir Katrín Theodórsdóttir, annar oddviti yfirkjörstjórna Reykjavíkurkjördæma norður og suður, aðspurð hvort hún geti staðfest að Ástþór Magnússon hafi skilað tæplega 200 viðbótarundirskriftum í morgun. Meira »

Mikið um reiðhjólaþjófnað

Mynd úr safni
11:39 Þjófnuðum á reiðhjólum hefur fjölgað umtalsvert í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum undanfarna daga.   Meira »

Tekinn á 134 km hraða

11:36 Ellefu ökumenn hafa verið staðnir að hraðakstursbrotum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók var á 134 km hraða á Reykjanesbrautinni. Meira »

Annað innbrotið á innan við viku

Mynd úr safni
11:29 Lögreglunni á Suðurnesjum barst í morgun tilkynning þess efnis að brotist hefði verið inn í fyrirtæki hjá Grófinni í Keflavík og þaðan stolið skrifstofubúnaði. Er þetta annað innbrotið í fyrirtækið í vikunni. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Toyota Corolla Touring 4x4 árg 2000 verð 499.000
Toyota Corolla Touring 4x4 árg 2000 ekinn 166.000 km Tilboðsverð 499.000 staðgr...
Fimm arma kertastjaki til sölu
Fimm arma kertastjaki til sölu. Tilboð óskast. Upplýsingar í síma 863-7879 eftir...
Sófasett (2+1)
Lítið notað og vel með farið sófasett 2 +1. Stærð sófa 170cm. Verð 35.000 S. 863...
Gasnaglabyssa
Til sölu Hilti naglabyssa. Gasnaglabyssa GX 100. Upplýsingar í síma 8935005 ...
 
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
12836 fellahverfi - útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Hjúkrunarfræðingur/ snyrtifræðingur
Hárgreiðsla/Snyrting
Hjúkrunarfræðingur eða snyrtifræðingur ...
Samkoma sunnudagur
Félagsstarf
Sunnudagur Kl. 11.00 Samkoma o...