Samtök atvinnulífsins vilja breyta um aðferðir við kannanir á verðlagi

mbl.is/Ómar

Samtök atvinnulífsins vilja að teknar verði upp nýjar aðferðir við kannanir á verðlagi á matvörumarkaði og miðlun verðupplýsinga til almennings. Hefur framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins ritað bréf til forsætisráðherra þar að lútandi.

Í bréfi Vilhjálms Egilssonar, framkvæmdastjóra SA, til forsætisráðherra, Geirs H. Haarde, er bent á að um nokkurra ára skeið hafi verið safnað rafrænum upplýsingum um sölu í matvöruverslunum og þær notaðar til þess að vinna talnaefni um markaðshlutdeild einstakra vörutegunda.

Þessar upplýsingar væri einnig hægt að nýta til þess að gera kannanir á verðlagi einstakra vörutegunda í einstökum verslunum.

Samtökin telja að með því að hagnýta slíkar upplýsingar fengist nákvæmari og betri mynd af verðlagi á þessum markaði. Það er skoðun samtakanna að Hagstofa Íslands væri eðlilegur aðili til þess að vinna úr þessum upplýsingum í eðlilegu samráði við alla viðeigandi hagsmunaaðila en nauðsynlegt er að Hagstofan fái nægar fjárveitingar til verksins.

Í bréfi Vilhjálms Egilssonar, framkvæmdastjóra SA, til Geirs H. Haarde forsætisráðherra segir: „Alþýðusamband Íslands hefur um nokkurra ára skeið fengið sérstakar fjárveitingar úr ríkissjóði til þess að annast verðlagseftirlit. (Á fjárlögum 2007 30 m.kr. á fjárlagaliðnum 01-190-1.19 Efnahagsrannsóknir).

Megináherslan hefur verið lögð á matvörumarkaðinn. Á þeim tíma sem Alþýðusambandið hefur fengist við verðlagseftirlitið hefur margt breyst í samsetningu útgjalda heimilanna. Þannig voru matur og drykkjarvörur 17,1% af útgjöldum í grunni vísitölu neysluverðs í mars 1997 en aðeins 12,3% nú.

Á sama tíma hafa til dæmis útgjöld vegna eigin húsnæðis, þ.e. reiknuð og greidd húsaleiga vaxið úr 10,5% útgjalda í 20,7%. Megináhersla verðlagseftirlits Alþýðusambandsins hefur hins vegar ekkert breyst. Verðlagseftirlit Alþýðu­sambandsins hefur sætt mikilli gagnrýni frá Samtökum verslunar og þjónustu og einstökum fyrirtækjum á matvörumarkaðnum sem hafa kvartað undan óvönduðum vinnubrögðum í vinnslu gagna og framsetningu á niðurstöðum.

Segja má að ekkert traust ríki af hálfu þessara aðila á vinnu Alþýðusambandsins að verðlagseftirliti. Samtök atvinnulífsins telja þess meiri ástæðu að þróa nýjar og betri aðferðir til að gera samanburðarrannsóknir á verðlagi og koma þeim upplýsingum á framfæri.

Samtök atvinnulífsins telja ennfremur ástæðu til þess að taka til umræðu hlutverk verðlagseftirlits Alþýðusambandsins í ljósi þess styrks sem sambandið fær úr ríkissjóði. Eigi slík starfsemi að þjóna tilgangi sínum hlýtur að þurfa að skoða fleiri en einn markað ekki síst þegar áherslan hefur verið á 12% af útgjaldagrunni neysluvísitölunnar meðan hinum 88% hefur lítt verið sinnt,” segir Vilhjálmur Egilsson.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Betur má ef duga skal

15:20 Umferðarráð telur mikilvægt að ekki verði slakað á kröfum til að viðhalda og byggja áfram upp öruggt og skilvirkt vegakerfi. Það hvetur stjórnvöld til að standa vörð um umferðaröryggi allra landsmanna við framkvæmdir í vegagerð. Meira »
Flugvél Iceland Express í höfn

Framsetning flugmiðaverðs óskýr

14:40 Auðvelt er að gera verðsamanburð á milli bókunarvéla flugfélaganna á vefnum en mismunandi er hvernig verð flugmiða er sett þar fram. Getur þannig reynst viðskiptavinum flókið að átta sig á því í hverju hin ýmsu aukagjöld, sem eru hluti af fargjaldi, felast. Meira »

Kærði undirskriftafölsun

Daníel Guðjónsson yfirlögregluþjónn sést hér lengst til vinstri en við hlið hans standa Björn Jósef ...
14:37 „Manni líður ekki vel með það. Þetta er leiðinleg tilfinning og mér finnst ástæðulaust að sitja undir því og ætla ekki að gera það, þess vegna kærði ég þetta til að fara fram á rannsókn á því,“ segir Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn á Akureyri, í samtali við blaðamann mbl.is en Daníel er á meðal þeirra einstaklinga sem settir voru á meðmælendalista Ástþórs Magnússonar að sér forspurðum. Meira »

Auðveldar fólki að sækja um búsetu

Úr safni.
14:11 Breytt fyrirkomulag við mat á þörf fólks fyrir dvalar- eða hjúkrunarrými tekur gildi 1. júní. Vistunarmatsnefndir dvalar- og hjúkrunarrýma verða sameinaðar og í þeirra stað verður ein nefnd í hverju heilbrigðisumdæmi; færni- og heilsufarsnefnd, sem metur þörf fólks fyrir þessi úrræði. Meira »

Sjálfstæðismenn ósammála um göngin

Frá fundi fjárlaganefndar Alþingis.
13:26 Sjálfstæðismenn í fjárlaganefnd klofnuðu í afstöðu til frumvarps um jarðgöng undir Vaðlaheiðargöng. Ásbjörn Óttarsson og Illugi Gunnarsson leggjast gegn frumvarpinu en Kristján Þór Júlíusson styður það. Meira »

Meta lögmæti samningsins

Sveitarfélagið Garður.
14:33 Nýr meirihluti í bæjarstjórn Garðs ætlar að láta meta lögmæti samnings sem fyrri meirihluti gerði við Ásmund Friðriksson bæjarstjóra. Auglýst verður eftir nýjum bæjarstjóra í fjölmiðlum á morgun. Meira »

Rætt um að kaupa notaðar þyrlur

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF LÍF
13:50 Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra kynnti í ríkisstjórn í morgun hugmyndir um að kaupa tvær notaðar björgunarþyrlur sambærilegum þeim sem Landhelgisgæslan er nú með í notkun. Þessi kostur er ódýrari en að kaupa nýjar þyrlur. Meira »

Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna

Í ár tóku 250 bekkir víðsvegar um landið þátt í samkeppninni.
13:19 Úrslit í samkeppninni Tóbakslaus bekkur liggja fyrir en alls fá bekkir frá níu skólum á landinu verðlaun. Keppnin var haldin meðal meðal 7. og 8. bekkja í grunnskólum landsins. Meira »

Hjólin fá að snúast að nýju myndskeið

Hjol
12:23 Í dag hófst formlega hjólasöfnun Barnaheilla og flugfélagsins WOW þar sem landsmenn geta gefið gömul hjól með því að koma þeim á Sorpu en Mæðrastyrksnefnd mun sjá dreifingu hjólanna. Hjólin mega vera biluð því sérfræðingar munu lagfæra og gera við þau. Nemendur í Álfhólsskóla gáfu ónýtt hjól í dag. Meira »

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
11:51 Óvanaleg sjón blasti við íbúum Súðavíkur í morgun, en þá hafði einn íbúi bæjarins brugðið á það ráð að flagga fána Landsbankans öfugt, og í hálfa stöng. Meira »

„Hvatning til okkar beggja“

Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff.
12:12 „Þetta er ánægjuleg staðfesting á því sem við Dorrit höfum fundið á fundum, vinnustöðum og á viðræðum við fólk undanfarið,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, um nýja skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 þar sem hann mældist með 53,9% fylgi. Meira »

Fengu 9,8 í meðaleinkunn

Nýstúdentar frá Fjölbrautarskólanum í Garðabæ
11:49 Tveir nýstúdentar frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, Katrín Ásta Ingimarsdóttir og Sæþór Pétur Kjartansson, fengu 9,8 í meðaleinkunn í námi sínu. Meira »

Geir í nýtt starf

Geir H. Haarde
11:43 Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur gengið til liðs við OPUS lögmenn sem ráðgjafi í alþjóðlegum verkefnum.  Meira »

Ölvaður og réttindalaus

11:37 Ölvaður ökumaður, karlmaður á fertugsaldri, velti bifreið á Reykjanesbraut í fyrrinótt. Hann missti stjórn á bílnum sem hafnaði utan vegar milli akreina. Einn farþegi var í bílnum og sluppu báðir ómeiddir. Meira »

Ástþór losnar ekki við fyrirvara

Ástþór Magnússon og eiginkona hans Natalía Wiium.
11:34 „Ég veit ekki hversu margar þær eru en hann er búinn að skila viðbót núna,“ segir Katrín Theodórsdóttir, annar oddviti yfirkjörstjórna Reykjavíkurkjördæma norður og suður, aðspurð hvort hún geti staðfest að Ástþór Magnússon hafi skilað tæplega 200 viðbótarundirskriftum í morgun. Meira »

Mikið um reiðhjólaþjófnað

Mynd úr safni
11:39 Þjófnuðum á reiðhjólum hefur fjölgað umtalsvert í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum undanfarna daga.   Meira »

Tekinn á 134 km hraða

11:36 Ellefu ökumenn hafa verið staðnir að hraðakstursbrotum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók var á 134 km hraða á Reykjanesbrautinni. Meira »

Annað innbrotið á innan við viku

Mynd úr safni
11:29 Lögreglunni á Suðurnesjum barst í morgun tilkynning þess efnis að brotist hefði verið inn í fyrirtæki hjá Grófinni í Keflavík og þaðan stolið skrifstofubúnaði. Er þetta annað innbrotið í fyrirtækið í vikunni. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Gasnaglabyssa
Til sölu Hilti naglabyssa. Gasnaglabyssa GX 100. Upplýsingar í síma 8935005 ...
Ó.e.Lágmark 4h Íbúðarhúsnæði í 201 Kóp.
Óska eftir að leigja lágmark 4 herb, einbýli, rað, par, fjölbýli allt kemur til ...
Dekk Land Cruiser 120 Michelin heilsárs/sumar 265/65 r17
dekk undan 120 bíl, dekkin eru slitin og vel með farin.. Verð 40 þús. Uppl. í...
NÝJAR VÖRUR Í HVERRI VIKU
FLOTTUR BARNAFATNAÐUR Á FRÁBÆRU VERÐI - ERTU BÚIN AÐ KÍKJA? http://www.123budin...
 
Aðalfundur félags háskólakvenna

Félag háskólakvenna og kvenstúdenta Aðal...
Sýslumaðurinn á sauðárkróki - framhald uppboðs

Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi e...
Hjúkrunarfræðingur/ snyrtifræðingur
Hárgreiðsla/Snyrting
Hjúkrunarfræðingur eða snyrtifræðingur ...
Verslun í mosfellsbæ til sölu

Verslun til sölu Verslun í Mosfellsbæ me...