Óttast var um öryggi mótmælenda í Straumsvík

Mótmælendur og lögregla við Straumsvík í dag.
Mótmælendur og lögregla við Straumsvík í dag. mbl.is/Júlíus

Lögreglan handtók samtals 13 manns og færði þá á lögreglustöð til skýrslutöku og frekari málsmeðferðar eftir að mótmælendur fóru inn á lokað starfssvæði verksmiðju Alcan í dag. Nokkrir mótmælendanna hlekkjuðu sig við aðalhlið verksmiðjunnar og einnig var óttast að þeir sem höfðu farið inn á svæðið gætu verið í alvarlegri hættu. Var því aðaláhersla lögð á að finna fólkið og koma því í burtu.

Samkvæmt upplýsingum lögreglu var óskað eftir aðstoð lögreglu vegna málsins um klukkan eitt í dag. Lögreglumenn voru sendir strax á staðinn og kom fljótlega í ljós að nokkrir mótmælendur höfðu hlekkjað sig við aðalhlið verksmiðjunnar og eins að nokkrir hefðu farið inn á lokað athafnasvæði Alcan.  Þá þótti fljótlega ljóst að þeir sem fóru inn á svæðið gætu verið í alvarlegri hættu.

Hátt í 20 lögreglumenn tóku þátt í aðgerðinni og gekk þeim fljótt og vel að ná valdi á aðstæðum. Öllum aðgerðum lögreglu á vettvangi var því lokið um klukkan fjögur. Nú standa yfir yfirheyrslur yfir hinum handteknu og getur lögreglan ekki sagt til um hvenær þeim lýkur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert