„Bakkafjara kann að vera millileikur"
Líkan af Bakkafjöru Ásdís Ásgeirsdóttir
fridrik@mbl.is
Fastlega má búast við að ríkisstjórnin taki ákvörðun um næstu skref í samgöngumálum milli lands og Eyja á föstudaginn. Annars vegar kemur til greina að leggja aukinn þrótt í uppbyggingu Bakkafjöruhafnar og hins vegar að taka jarðgöng milli lands og Eyja til nánari skoðunar.
Vegagerðin fól Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen (VST) að meta kostnað við gerð jarðganga milli Vestmannaeyja og Landeyja og liggja niðurstöður stofunnar nú fyrir. Samgönguráðherra hefur verið að kynna sér þær og mun hann væntanlega tilkynna ríkisstjórninni tillögur sínar hvað þetta varðar á föstudag.
„Þetta eru hærri tölur en allir vonuðust til að heyra. Öllum er ljóst að jarðgöng eru langbesti kosturinn að því er framtíðarsamgöngur til Vestmannaeyja varðar og þetta eru því vonbrigði fyrir alla sem vilja bættar samgöngur á Íslandi," segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vestmannaeyja, spurður um viðbrögð sín við skýrslu VST. Hann segir að frá fyrsta degi hafi bæjarstjórn viljað fá fullkannaðan besta kostinn, áður en ákvörðun um annað verður tekin. Standi ekki til að fara í framkvæmdir við jarðgöngin er það ósk Elliða að framkvæmdum við Bakkafjöru verði flýtt eins og mikið og kostur er.
„Áætlanir gera ráð fyrir því að framkvæmdum þar verði lokið árið 2010, en í ljósi yfirlýsinga ríkisstjórnar um að flýta verklegum framkvæmdum vegna þorskskerðingarinnar, finnst mér vert að athuga hvort ekki sé hægt að flýta framkvæmdum þannig að árið 2009 verði Bakkafjara klár," segir Elliði.
Ef ríkisstjórnin velur Bakkafjöruleiðina telur Elliði það ekki fela í sér endanlega afgreiðslu á jarðgöngum til Eyja. „Bakkafjara kann að vera millileikur, enda er kostnaður við jarðgöng sífellt að lækka og sjálfur trúi ég því að jarðgöng verði lögð til Eyja fyrr eða síðar."
Sjá nánar í Morgunblaðinu í dag.
Bloggað um fréttina
-
Halldór Kvaran Erum við að missa okkur í ruglinu? -
Þorkell Sigurjónsson DAUÐADÓMUR UPP KVEÐINN. -
Pálmi Freyr Óskarsson Bakkafjara er slæmur kostur -
Marta B Helgadóttir Meira vit í Bakkafjörudæminu. -
Tómas Sveinsson Jarðgöngin
Innlent »
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
- „Ýmislegt að vinna með okkur“
- Persónulegar illdeilur á Bergþórshvoli
- Uppsagnir og hagræðing
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 20. júlí 2007, Innlent „Íslendingar hljóta að gera þá kröfu að við getum ferðast eftir þjóðvegakerfinu"
- Þriðjudagur, 15. apríl 2008, Innlent Ný höfn næstbesti kosturinn
- Þriðjudagur, 24. júlí 2007, Innlent „Álitamál hvort göng til Vestmannaeyja séu réttlætanleg"
- Föstudagur, 28. júlí 2006, Innlent Metið hvort rétt sé að leggja í meiri rannsóknir vegna Eyjaganga
- Föstudagur, 16. febrúar 2007, Innlent Hugmynd um jarðgöng lifir góðu lífi
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































