Ferðamenn varaðir við að kasta frá sér sígarettustubbum

Frá Þingvöllum
Frá Þingvöllum mbl.is/Ómar

Eldur kviknaði við útsýnisskífu á Þingvöllum í morgun eftir að ferðamaður hafði kastað frá sér sígarettustubbi, að sögn Stefáns Helga Valssonar, leiðsögumanns. Segir Stefán að greiðlega hafi gengið að slökkva eldinn en öskubakka sé hvergi að finna á svæðinu. Stefán varar ferðamenn við því að henda frá sér sígarettustubbum þar sem eldsmaturinn er víða.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert