Hraðakstur erlendra ferðamanna færist í aukana

Sjö hraðakstursskýrslur liggja hjá lögreglunni á Sauðárkróki eftir fjögurra tíma umferðareftirlit í umdæminu í dag. Um er að ræða erlenda ferðamenn í rúmlega helmingi tilvika og segir lögregla á staðnum það vera í samræmi við þá tilfinningu sína að hraðakstur erlendra ferðamanna hafi færst í aukanna að undanförnu.

Tveir ökumenn voru einnig stöðvaðir vegna hraðaksturs innanbæjar á Sauðárkróki i gærkvöldi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert