Kæfa frá Kjarnafæði innkölluð

Kjarnafæði hefur innkallað vöruna Gamaldags sveitakæfa í 250 gr. dósum vegna framleiðslugalla. Pökkunardagssetning vörunnar er 06.07.07 og best fyrir dagssetningin er 26.07.07. Þessi vara var meðal annars í sölu í Bónusverslunum í Grafarvogi í Reykjavík.

Hún hefur nú verið tekin úr sölu þar. Matvælaeftirlit Reykjavíkur biður fólk að kanna hvort það eigi Gamaldags sveitakæfu með pökkunardegi 06.07.07 heima hjá sér og hafa samband við Kjarnafæði.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert