Höfða mál gegn umhverfisráðherra

Landeigendur, Náttúruverndarsamtök Íslands og Fuglaverndarfélag Íslands hafa ákveðið að höfða mál gegn umhverfisráðherra þar sem látið verður á það reyna hvort fyrrverandi umhverfisráðherra, Jónína Bjartmarz, hafi brotið lög er hún féllst á vegalagningu Vestfjarðavegar 60 í gegnum Teigsskóg. Í úrskurði sínum frá 5. janúar s.l. féllst ráðherra á þann kost vegalagningar frá Þórisstöðum til Krakár sem stefnendur og flestir þeir sem komið hafa að málinu eru sammála um að hafi í för með gríðarleg óafturkræf umhverfisspjöll í nær ósnortnu umhverfi.

Í fréttatilkynningu frá stefnendum kemur fram að málavextir eru þeir að eftir áratugalanga baráttu var ákveðið að fara í endurbætur Vestfjarðavegar um sunnanverðra Vestfirði.

„Í matsskýrslu Vegagerðarinnar voru lagðar fram þrjár mögulegar leiðir við lagningu annars áfanga Vestfjarðavegar milli Þórisstaða í Þorskafirði og Krakár á Skálanesi. Skipulagsstofnun lagðist í úrskurði sínum gegn þeim kosti sem gerir ráð fyrir veglagningu um land Grafar, Teigsskóg og Hallsteinsnes með þverun Djúpafjarðar og Gufufjarðar vegna umhverfisáhrifa, en taldi leiðina sem fylgir núverandi vegi yfir Hjallaháls með verulegum endurbótum þar og nýjum vegi frá Djúpafirði og yfir Ódrjúgsháls og Gufufjörð innanverðan heppilegustu leiðina. Í samanburðinum væru báðar leiðir ásættanlegar með tilliti til umferðaröryggis og vegtækni. Leiðin yfir Hjallaháls væri hins vegar mun ódýrari enda þótt leiðin um Teigsskóg væri nokkuð styttri þegar litið væri til vegarins í heild.

Ráðherra umhverfismála felldi úr gildi úrskurð Skipulagsstofnunar og féllst á að fara með veginn um Teigsskóg enda þótt megin hluti leiðarinnar fari í gengum verndarsvæði. Þannig er vesturströnd Þorskafjarðar, fjörur, fitjar og sjávartjarnir í Djúpafirði á náttúruminjaskrá. Það sama á við um skóglendið á norðurströnd Þorskafjarðar, Teigsskóg. Þá njóta allar eyjar og fjörur á framkvæmdasvæðinu verndar laga nr. 54/1995 um vernd Breiðafjarðar og sjávarfitjar og leirur falla undir náttúruverndarlög nr. 44/1999 sem vistkerfi sem skuli njóta sérstakrar verndar.

Hlíðin sem myndar Teigsskóg er víðast vaxin náttúrulegum birkiskógi milli fjalls og fjöru og myndar ásamt fjörunni landslagsheild sem er einstök fyrir það hversu lítt áberandi mannvirki og áhrif nýtingar eru þar. Skógurinn nýtur sérstöðu á Vestfjörðum og landinu í heild. Náttúrustofa Vestfjarða of fleiri hefur varað við því að áhrifa framkvæmdarinnar muni gæta í öllum skóginum enda sé hann víðast aðeins 200-500 m breiður og því muni vegstæði um hann endilangan hafa veruleg áhrif á það sem eftir stendur. Að mati vistfræðinga verður ekki komið við mótvægisaðgerðum, enda er nýr skógur ekki sambærilegur við þann skóg sem eytt er, hvorki hvað varðar gerð eða arfleifð en talið er að birkiskógurinn sé allt frá landnámsöld. Þá má nefna fjölda ókannaðra fornminja, einkum á Grónesi og Hallsteinsnesshlíð.

Veglagning um Teigskóg með þverun Djúpafjarðar mun leggja arnarsetrin rómuðu í verulega hættu en þau njóta verndar laga um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum nr. 64/1994. Þau hafa átt ríkan þátt í að viðhalda arnarstofninum á Breiðafirði. Ónefnd eru áhrif framkvæmdarinnar á aðra atvinnuvegi héraðsins svo sem á þangnámið í Reykhólasveit og uppbyggingu ferðamennsku. Stefnendur taka undir ályktun aðalfundar Landverndar frá 5. maí 2007 þar sem mælt er með því að jarðgöng undir Hjallahóls verði í forgangi í stað vegar út um Teigsskóg og þverunar fjarðarmynna í Djúpafirði og Gufufirði," að því er segir í fréttatilkynningu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Bryan Ferry í grænum bjarma á tónleikunum í Hörpu í gærkvöldi.

Ferry heillaði í Hörpu

00:43 Bryan Ferry vakti stormandi lukku þegar hann kom fram í Hörpu í gærkvöldi. Ferry lék mörg af sínum þekktustu lögum, jafnt frá sólóferli sínum sem af plötum sínum með hljómsveitinni Roxy Music. Ferry kemur aftur fram í Hörpu í kvöld. Meira »

Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal

Í gær, 19:40 Hvítasunnuhelgin virðist almennt ganga vel fyrir sig að sögn lögreglunnar um land allt enda sól og blíða víðast hvar og tíðindalítið ef frá er talið í Búðardal. Meira »

Peningar ekki rót alls ills myndskeið

Peningar ekki rót alls ills
Í gær, 21:46 Framhaldsskólanemar eyða almennt mestum pening í mat, áfengi og bensín. Þeim gengur misvel að spara og fæstir hafa fengið nokkra fjármálafræðslu, en finnst þörf á því. Þetta kom í ljós þegar mbl.is spjallaði við ungmenni um fjármálalæsi, en í því hafa Íslendingar ítrekað fengið falleinkunn. Meira »

Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti

Jónsi og Gréta á sviðinu í Bakú.
Í gær, 18:47 Íslenski Evróvisjónhópurinn var rúmlega hálfnaður á leiðinni heim þegar mbl.is náði tali af Hrafnhildi Halldórsdóttur nú fyrir stundu. Von er á hópnum til landsins með vél Icelandair í kvöld. Meira »

Catalina er í fullu fjöri

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.
Í gær, 17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944-1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Fyrst til að verða meistari í bílasmíði

Anna Kristín á leið í útskriftina í gær.
Í gær, 21:19 „Áhuginn hafði alltaf blundað í mér,“ segir Anna Kristín Guðnadóttir, sem í gær útskrifaðist með meistarapróf í bílasmíði fyrst íslenskra kvenna. Meira »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

Í gær, 18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
Í gær, 17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem hátíðin fer fram. Meira »

Fisvél brotlenti við Klaustur

Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.
Í gær, 17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
Í gær, 16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
Í gær, 17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
Í gær, 16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

Í gær, 15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholti fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
Í gær, 15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

Í gær, 15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
Í gær, 15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
Í gær, 14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Burðarpokar og burðarsjöl www.hondihond.is
Fullt hús af burðarpokum og burðarsjölum. Henta vel fyrir börn frá 0-3 ára. O...
Þæg hross
Er með nokkra þæga hesta til sölu sem rúlla töltið, einnig nokkur trippi uppl. s...
Vinnuskúr - Garðskúr
Gamall sumaraðst.skúr til sölu.Er á hjólum með beisli,stillilappir á hornum.3,3...
Aliner Expedition Nýskr 3/2008 Hlaðið aukabúnaði
Sólarsella Loftpúðafjöðrun, Nýtt fortjald, grjótgrind, 2 gaskútar, 2 rafgeymar. ...
 
Samkoma
Félagsstarf
Samkoma, sunnudag kl. 17 Ken Lock...
Intellecta
Stjórnunarstörf
Bæjarstjóri Sveitarfélagsins Garði La...
Hekla atvinna
Sérfræðistörf
HEKLA óskar eftir bifvélavirkjum til sta...