Samanlögð álagning tekjuskatts og útsvars 185,5 milljarðar

Heildarfjöldi framteljenda við álagningu árið 2007 er 253.911.

Heildarfjöldi framteljenda við álagningu árið 2007 er 253.911. mbl.is

Samanlögð álagning tekjuskatta og útsvars nemur 185,5 milljörðum króna og hækkar um 13,4% frá fyrra ári. Álagðir tekjuskattar til ríkissjóðs skiptast í tekjuskatt annars vegar og fjármagnstekjuskatt hins vegar en útsvarið er tekjustofn sveitarfélaga.

Í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu kemur fram að álagning opinberra gjalda á einstaklinga og þá sem stunda atvinnurekstur í eigin nafni fyrir árið 2007 liggur nú fyrir. Um er að ræða endanlega álagningu á tekjuskatti, fjármagnstekjuskatti og útsvari á tekjur ársins 2006, en meginhluti álagningarinnar hefur þegar verið innheimtur í formi staðgreiðslu eða fyrirframgreiðslu á árinu 2006.

Einnig er hér um að ræða álagningu á gjaldi í Framkvæmdasjóð aldraðra, auk þess sem ákvarðaðar eru greiðslur barnabóta og vaxtabóta. Frekara talnaefni um álagningu skatta á einstaklinga og ákvörðun barna- og vaxtabóta fyrir árið 2007 verður fljótlega að finna á vefsíðu ríkisskattstjóra undir staðtölur skatta, samkvæmt tilkynningu.

Framteljendum hefur aldrei fjölgað jafn mikið milli ára

Heildarfjöldi framteljenda við álagningu árið 2007 er 253.911. Fjölgun milli ára hefur aldrei verið meiri en framteljendum fjölgaði um 5,2% og voru 12.567 fleiri en árið áður. Skýringin er hinn mikli aðflutningur fólks sem hefur einkennt íbúaþróun undanfarin ár.

Samanlögð álagning tekjuskatta og útsvars nemur 185,5 milljörðum króna og hækkar um 13,4% frá fyrra ári. Álagðir tekjuskattar til ríkissjóðs skiptast í tekjuskatt annars vegar og fjármagnstekjuskatt hins vegar en útsvarið er tekjustofn sveitarfélaga. Almennan tekjuskatt, samtals 81,9 milljarða króna, greiða 175.399 einstaklingar, eða 69% framteljenda.

„Skattgreiðsla á hvern gjaldanda hefur hækkað um 5,1 % milli ára, eða mun minna en gjaldstofninn, sem hækkaði um 10%, enda lækkaði tekjuskattshlutfallið úr 24,75% í 23,75% í upphafi ársins 2006 auk þess sem persónuafsláttur hækkaði um 2,5%. Útsvar til sveitarfélaga nemur alls 87,3 milljörðum króna og hækkar um 12,4% frá fyrra ári.

Gjaldendur útsvars eru 244.883 og fjölgar um 4,6% milli ára. Álagt útsvar á hvern gjaldanda hækkar samkvæmt því um 7,4% milli ára en meðalútsvarshlutfall breyttist ekki," samkvæmt tilkynningu.

93 þúsund manns greiða fjármagnstekjuskatt

Álagður fjármagnstekjuskattur einstaklinga nemur 16,3 milljörðum króna og hækkar um tæplega 34% milli ára. Greiðendur fjármagnstekjuskatts eru 93 þúsund og fjölgar um tæp 10% milli ára.

Í tilkynningu kemur fram að söluhagnaður skýrir drjúgan helming af skattstofni fjármagnstekjuskatts en arður og vaxtatekjur tæpan fjórðung hvor liður.

Fjármagnstekjuskattur eykur enn hlut sinn í tekjusköttum til ríkissjóðs og nemur hann nú 16,6% samanborið við 14,4% árið 2006.

Framtaldar eigir heimilanna 2.800 milljarðar en framtaldar skuldir 1.113 milljarðar

Framtaldar eignir heimilanna námu rúmlega 2.800 milljörðum króna í lok síðasta árs og höfðu þær aukist um 14,9% frá fyrra ári. Fasteignir heimilanna töldust 2.052 milljarðar að verðmæti eða nær 3/4 hlutar af eignum og verðmæti þeirra hafði aukist um 12,5% milli ára en eigendum fasteigna fjölgaði um 1,2%.

Framtaldar skuldir heimilanna námu alls 1.113 milljörðum króna í árslok 2006 og höfðu þær vaxið um liðlega 21% frá árinu 2005. Framtaldar skuldir vegna íbúðarkaupa jukust minna eða um 17,8%, og námu rúmlega 700 milljörðum króna. Skuldir vegna íbúðarkaupa námu 34,4% af verðmæti þeirra og hafði það hlutfall hækkað nokkuð frá fyrra ári.

7,4 milljarðar í barnabætur

Á þessu ári verða greiddir út rúmir 7,4 milljarðar króna í barnabætur samanborið við 6 milljarða króna í fyrra sem er 24,1% aukning. Þá fjölgar þeim sem bótanna njóta um 14,8% frá síðasta ári.

Hér kemur það til að tekjuskerðingarmörk vegna bótanna hafa verið hækkuð um 20%, auk þess sem bætur eru nú greiddar vegna barna allt að 18 ára aldri en áður voru einungis greiddar bætur vegna barna að 16 ára aldri. Barnabætur vegna barna yngri en 7 ára hafa einnig verið hækkaðar um 20%.

Þá hafa skerðingarhlutföll vegna tekna umfram skerðingarmörk verið lækkuð. Þetta allt hefur í för með sér að meðalbætur á fjölskyldu hækka um 8%.

Ákvarðaðar vaxtabætur vegna vaxtagjalda af íbúðarlánum, sem einstaklingar greiddu af á árinu 2006, nema 5,3 milljörðum króna í ár. Vaxtabætur fá um 50 þúsund aðilar. Meðalvaxtabætur eru nú 106 þúsund að meðaltali á hvern vaxtabótaþega en þeim er skipt á milli hjóna og sambýlisfólks.

„Sem kunnugt er var vaxtabótum endurúthlutað vegna síðasta árs eftir að í ljóst kom að mikil hækkun fasteignaverðs leiddi til verulegrar fækkunar þeirra sem þeirra höfðu notið. Að teknu tilliti til þeirrar endurúthlutunar hækka útborgaðar vaxtabætur um tæp 5% milli ára, en fjöldi vaxtabótaþega er svipaður bæði árin," að því er segir í fréttatilkynningu frá fjármálaráðuneytinu.

9,2 milljarðar greiddir út á morgun

Hinn 1. ágúst n.k. koma til útborgunar 9,2 milljarðar króna eftir skuldajöfnun á móti ofgreiddum sköttum. Vaxtabætur eru stærsti hluti útborgunarinnar en útborgun þeirra nemur 4,3 milljörðum.

Fjórðungur barnabóta verða útborgaðar og nemur upphæð þeirra 1,6 milljörðum. Afgangurinn, um 3 milljarðar króna, eru ofgreidd staðgreiðsla eða fyrirframgreiddir skattar af tekjum síðasta árs.

Barnabætur eru greiddar út fjórum sinnum á ári og kemur síðasti hluti þeirra, tæpir 2 milljarðar króna, til útborgunar 1. nóvember n.k.

Frekara talnaefni um skatta

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Bryan Ferry í grænum bjarma á tónleikunum í Hörpu í gærkvöldi.

Ferry heillaði í Hörpu

00:43 Bryan Ferry vakti stormandi lukku þegar hann kom fram í Hörpu í gærkvöldi. Ferry lék mörg af sínum þekktustu lögum, jafnt frá sólóferli sínum sem af plötum sínum með hljómsveitinni Roxy Music. Ferry kemur aftur fram í Hörpu í kvöld. Meira »

Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal

Í gær, 19:40 Hvítasunnuhelgin virðist almennt ganga vel fyrir sig að sögn lögreglunnar um land allt enda sól og blíða víðast hvar og tíðindalítið ef frá er talið í Búðardal. Meira »

Peningar ekki rót alls ills myndskeið

Peningar ekki rót alls ills
Í gær, 21:46 Framhaldsskólanemar eyða almennt mestum pening í mat, áfengi og bensín. Þeim gengur misvel að spara og fæstir hafa fengið nokkra fjármálafræðslu, en finnst þörf á því. Þetta kom í ljós þegar mbl.is spjallaði við ungmenni um fjármálalæsi, en í því hafa Íslendingar ítrekað fengið falleinkunn. Meira »

Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti

Jónsi og Gréta á sviðinu í Bakú.
Í gær, 18:47 Íslenski Evróvisjónhópurinn var rúmlega hálfnaður á leiðinni heim þegar mbl.is náði tali af Hrafnhildi Halldórsdóttur nú fyrir stundu. Von er á hópnum til landsins með vél Icelandair í kvöld. Meira »

Catalina er í fullu fjöri

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.
Í gær, 17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944-1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Fyrst til að verða meistari í bílasmíði

Anna Kristín á leið í útskriftina í gær.
Í gær, 21:19 „Áhuginn hafði alltaf blundað í mér,“ segir Anna Kristín Guðnadóttir, sem í gær útskrifaðist með meistarapróf í bílasmíði fyrst íslenskra kvenna. Meira »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

Í gær, 18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
Í gær, 17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem hátíðin fer fram. Meira »

Fisvél brotlenti við Klaustur

Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.
Í gær, 17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
Í gær, 16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
Í gær, 17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
Í gær, 16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

Í gær, 15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholti fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
Í gær, 15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

Í gær, 15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
Í gær, 15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
Í gær, 14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Ónotaðir þakbogar á Honda CRV 2007 til 2012
Er með ónotaða þakboga frá umboðinu fyrir Honda CRV árgerð 2007 til 2012. Fást á...
Trek Jet 20" 5 - 9 ára
Til sölu Trek barnahjól svart/blátt, lítur vel út, nýlegt afturdekk, alltaf geym...
Óska eftir fellihýsi í skiptum f. bát
Óska eftir ca,. 600 þús- 1,5 millj. kr. fellihýsi í skiptum fyrir 5 metra hraðbá...
Fjarnámskeið á tilboði, aðeins 9.900 kr.
Lærðu ljósmyndun á Netinu. Á fjarnamskeid.is er hægt að læra allt um ljósmyndun,...
 
Samkoma
Félagsstarf
Samkoma, sunnudag kl. 17 Ken Lock...
Intellecta
Stjórnunarstörf
Bæjarstjóri Sveitarfélagsins Garði La...
Hekla atvinna
Sérfræðistörf
HEKLA óskar eftir bifvélavirkjum til sta...