Ísland tekur yfir starfsemi Ratsjárstofnunar 15. ágúst

Hingað til hafa Bandaríkin staðið straum af öllum rekstrarkostnaði Ratsjárstofnunar.

Hingað til hafa Bandaríkin staðið straum af öllum rekstrarkostnaði Ratsjárstofnunar. mbl.is/Eyþór

Ísland mun yfirtaka starfsemi Ratsjárstofnunar frá og með 15. ágúst nk. Starfshópur skipaður sérfræðingum utanríkisráðuneytisins vinnur nú að undirbúningi snurðulausrar yfirtöku íslenskra stjórnvalda á starfsemi stofnunarinnar og aðlögun að íslenskri stjórnsýslu.

Fram kemur í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu að undanfarna mánuði hafi viðræður milli Íslands og Bandaríkjanna um framtíð ratsjár- og loftvarnakerfisins á Íslandi staðið yfir. Hingað til hafa Bandaríkin staðið straum af öllum rekstrarkostnaði Ratsjárstofnunar og rekstrarumgjörð hennar mótast af því. Í apríl sl. samþykkti þáverandi ríkisstjórn að heimilaðar yrðu fjárveitingar að upphæð 241 milljón kr. í fjáraukalögum 2007 og 824 milljónir kr. á fjárlögum 2008 vegna reksturs Ratsjárstofnunar.

Fram kemur að á þessum tímamótum sé mikilvægt að yfirtakan raski ekki núverandi starfsemi sem lúti bæði að öryggis- og varnarmálum og borgaralegri flugumferð. Við yfirtökuna verður leitað leiða til að auka hagræðingu í rekstri starfseminnar og draga úr kostnaði ríkissjóðs. Jafnframt verða gildandi kjarasamningar og ráðningarsamningar starfsfólksins virtir.

Starfshópur utanríkisráðuneytisins mun vinna verk sitt í náinni samvinnu við fyrirsvarsmenn Ratsjárstofnunarinnar. Aðlögun starfseminnar að íslenskri stjórnsýslu mun taka ákveðinn tíma og stefnt er að því að starfshópurinn leggi tillögur sínar fyrir utanríkisráðherra á haustmánuðum

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Héraðsdómur Suðurlands.

Alsírsku drengirnir áfrýja

16:25 Alsírsku drengirnir sem sakfelldir voru í héraðsdómi Suðurlands fyrir að framvísa fölsuðum vegabréfum við komu til Íslands hafa áfrýjað dómnum til hæstaréttar. Héraðsdómur dæmdi þá til 30 daga fangelsisvistar þann 30. apríl síðastliðinn. Meira »
Á sýningunni var hægt að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum.

Listflug við Reykjavíkurflugvöll

15:54 Fjöldi fólks hefur í dag fylgst með flugvélum sýna listflug á Reykjavíkurflugvelli, en Flugmálafélags Íslands stóð fyrir flugsýningu þar sem hægt var að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum. Meira »

Ákærður fyrir að stinga mann

Guðgeir Guðmundsson var úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir árásina.
14:26 Ákæra gegn Guðgeiri Guðmundssyni, sem sakaður er að hafa 5. mars. sl. stungið tvo starfsmenn lögmannsstofnunnar Lagastoða, verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Annar mannanna særðist lífshættulega og lá í marga daga á gjörgæsludeild. Meira »

Klára kvótamálin í vikunni

Atvinnuveganefnd stefnir að því að klára umfjöllun um frumvarp um veiðigjald í vikunni.
14:05 Boðaður hefur verið fundur í atvinnuveganefnd Alþingis á morgun til að ræða um kvótafrumvörpin. Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaformaður nefndarinnar, segir að frumvörpin verði ekki afgreidd úr nefndinni á morgun, en það verði gert síðar í vikunni. Meira »

Mætti innbrotsþjófum í forstofunni

12:05 Húsráðanda í Reykjanesbæ brá töluvert þegar hann kom heim til sín aðfaranótt laugardagsins en í forstofunni mættu honum tveir bláókunnugir karlmenn. Þeir tóku báðir til fótanna og hurfu út í nóttina. Meira »

Landsbjörg leitar enn að Ligitu

Ligitu Solomenceva
14:22 Landsbjörg leitar í dag að hinni 42 ára Ligitu Solomenceva frá Lettlandi. En til hennar hefur ekkert spurst síðan 13 maí. Hún var í sumarbústað við Meðalfellsvatn og var ein á ferð. Meira »

Hreint hjarta besta myndin

Grímur Hákonarson.
13:34 Heimildamynd Gríms Hákonarsonar Hreint hjarta var valinn besta heimildamyndin á Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda sem haldin var í sjötta sinn á Patreksfirði um helgina. Meira »

Veðurblíða víða um land

Búast má við fjölda fólks í sundi í dag.
11:35 Hiti fer allt upp í 20 gráður á Norðurlandi í dag en að sögn veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands verður mjög gott veður um allt land í dag og næstu daga. Meira »

Ölvaður ökumaður reyndi að stinga af

11:08 Sautján ökumenn óku yfir leyfilegum hámarkshraða við umferðareftirlit lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina. Ellefu gerðust brotlegir með þeim hætti á aðeins þremur klukkustundum í kringum miðnætti í gær. Meira »

Ferry heillaði í Hörpu

Bryan Ferry í grænum bjarma á tónleikunum í Hörpu í gærkvöldi.
00:43 Bryan Ferry vakti stormandi lukku þegar hann kom fram í Hörpu í gærkvöldi. Ferry lék mörg af sínum þekktustu lögum, jafnt frá sólóferli sínum sem af plötum sínum með hljómsveitinni Roxy Music. Ferry kemur aftur fram í Hörpu í kvöld. Meira »

Kosningamiðstöð Þóru opnuð

Þóra Arnórsdóttir.
10:48 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg í dag.   Meira »

Peningar ekki rót alls ills myndskeið

Peningar ekki rót alls ills
Í gær, 21:46 Framhaldsskólanemar eyða almennt mestum pening í mat, áfengi og bensín. Þeim gengur misvel að spara og fæstir hafa fengið nokkra fjármálafræðslu, en finnst þörf á því. Þetta kom í ljós þegar mbl.is spjallaði við ungmenni um fjármálalæsi, en í því hafa Íslendingar ítrekað fengið falleinkunn. Meira »

Fyrst til að verða meistari í bílasmíði

Anna Kristín á leið í útskriftina í gær.
Í gær, 21:19 „Áhuginn hafði alltaf blundað í mér,“ segir Anna Kristín Guðnadóttir, sem í gær útskrifaðist með meistarapróf í bílasmíði fyrst íslenskra kvenna. Meira »

Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti

Jónsi og Gréta á sviðinu í Bakú.
Í gær, 18:47 Íslenski Evróvisjónhópurinn var rúmlega hálfnaður á leiðinni heim þegar mbl.is náði tali af Hrafnhildi Halldórsdóttur nú fyrir stundu. Von er á hópnum til landsins með vél Icelandair í kvöld. Meira »

Catalina er í fullu fjöri

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.
Í gær, 17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944-1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal

Í gær, 19:40 Hvítasunnuhelgin virðist almennt ganga vel fyrir sig að sögn lögreglunnar um land allt enda sól og blíða víðast hvar og tíðindalítið ef frá er talið í Búðardal. Meira »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

Í gær, 18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
Í gær, 17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem hátíðin fer fram. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Silky Terrier strákar til sölu
Þrem bræðrum er óráðstafað úr þessu goti. Þeir eru heilsufarssk., örmerktir og ...
Toyota Yaris árgerð 2006 DIESEL !!!
Toyota Yaris Diesel árgerð 07/2006. Ekinn 79.000 km. Sjálfskiptur. 5 dyra. Sil...
Coton De Tulear til sölu
Erum með yndislega Coton De Tulear til sölu. Uppl í síma 5668417 www.dalsmynni.i...
CANON EOS NÁMSKEIÐ - spennandi námskeið.
Kennum á CANON EOS vélar. Námskeið í hverjum mánuði. Í boði eru mislöng námskeið...
 
Útboð
Tilkynningar
Grýtubakkahreppur Útbo...
Okkur vantar liðsauka
Heilbrigðisþjónusta
Okkur vantar liðsauka Fótaa...
Breyting á aðalskipulagi norðurþings

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
Tækniskólinn - atvinnuauglýsing
Önnur störf
Framúrskarandi kennarar óskast í ...