Allt annar bragur á tjaldstæðum Akureyrarbæjar
Fjölskyldufólk var í miklum meirihluta á tjaldsvæðum Akureyrar þar sem hátíðin Ein með öllu fer fram. mbl.is/Hjálmar S. Brynjólfsson
Skemmtanaglaðir höfðu margir hverjir komið sér vel fyrir í gærkvöldi á einhverri af fjölmörgum útihátíðum sem haldnar eru um helgina. Alls staðar fóru hátíðahöld vel af stað og voru mótshaldarar og lögregla samstiga í bjartsýni fyrir helgina. Þegar Morgunblaðið fór í prentun hafði ekkert borið á ólátum né óspektum – sem svo oft eru fylgifiskur verslunarmannahelgarinnar.
Erfiðlega gekk að fá uppgefnar tölur um mannfjölda en svo virðist sem flestir hafi haldið til Vestmannaeyja þetta árið. Reiknað er með að á milli átta og níu þúsund manns muni sækja Þjóðhátíð sem sett var með seinna fallinu sökum veðurs.
Vel gekk þó að tjalda þegar veður lægði og að sögn lögreglu magnaðist stemningin í Herjólfsdal eftir því sem leið á kvöldið. Engin fíkniefnamál höfðu komið upp í gærkvöldi, að undanskildum þeim tveim sem upp komu á fimmtudag.
Rólegt á tjaldstæðum Akureyrarbæjar
Á Akureyri höfðu engin lögreglumál komið upp í gærkvöldi og að sögn heimamanna var allt annar bragur á tjaldstæðum bæjarins eftir að aldurstakmörk voru hækkuð. Fjölskylduhátíðin "Ein með öllu" ber því kannski nafn með rentu þetta árið.Hins vegar heyrðist af svonefndri SMS-hátíð í Vaglaskógi og virðist sem fjöldi ungmenna hafi lagt leið sína þangað eftir að hafa verið vísað frá tjaldstæðum. Lögreglan á Akureyri var með viðbúnað við tjaldstæðin og sá til þess að yngri en 23 ára færu ekki þar inn.
Á Siglufirði fer fram Síldarævintýri og fengust þær upplýsingar frá lögreglu að þar skemmti fólk sér saman á öllum aldri. "Þannig á það líka að vera," sagði lögreglumaður við Morgunblaðið og hafði litlar áhyggjur af óspektum. Hann gat hins vegar ekkert sagt til um fjöldann sem til Siglufjarðar er kominn enda margir sem dvelja í heimahúsum.
Hátíðin Neistaflug á Neskaupsstað var einnig formlega sett í gær og að sögn skipuleggjenda var margt um manninn auk þess sem tjöldum og húsbílum fjölgaði jafnt og þétt fram eftir kvöldi. Þar er veður gott og stemningin eftir því.
Listinn yfir útihátíðir er að sjálfsögðu ekki tæmandi en vert er einnig að minnast á að lögreglan á Hvolsvelli fór í eftirlitsferð í Galtalækjarskóg í gærkvöldi. Þar voru tólf tjöld og hafði lögreglumaður á orði að þar hefðu ekki verið færri tjöld síðan um landnám.
Í hnotskurn
» Umferð úr höfuðborginni var með minnsta móti í gærkvöldi, ef miðað er við að um föstudag fyrir verslunarmannahelgi var að ræða.» Aðspurð gat lögregla sér þess til að hugsanlega væri ferðalögum farið að fjölga svo mikið aðrar helgar, að verslunarmannahelgin væri í raun að detta upp fyrir sem mesta ferðahelgi ársins.
» Þá má líta til þess að veðurspá var ekki hagstæð, auk þess sem umferðin er farin að dreifast meira en áður, og töluverð umferð var á fimmtudag.






































