Allt fór vel fram á Akureyri í nótt - einn í fangageymslu í Eyjum
Talsverður mannfjöldi fylgdist með skemmtiatriðum á Ráðhústorginu á Akureyri í gærkvöldi. mbl.is/Þorgeir
Að sögn Daníels Guðjónssonar, yfirlögregluþjóns á Akureyri, komu engin sérstök mál upp í tengslum við skemmtanahald og allt yfirbragð í bænum var gott. Þá var rólegt á tjaldsvæðum bæjarins upp úr miðnætti og svefnfriður.
Daníel sagðist ekki geta áætlað hve margir hefðu verið í miðbænum í nótt en talsverður fjöldi hefði verið við setningu hátíðarinnar og síðan sótt skemmtistaði í bænum. Hugsanlega hefði veðrið þó latt fólk frá því að fara í bæinn en nokkuð rigndi í gærkvöldi.
Nokkur ölvun var í bænum en gestir fóru fljótlega heim eftir að dansleikjum lauk og engin vandamál sköpuðust í miðbænum. Umferðin var slysalaus en fjórtán voru teknir fyrir of hraðan akstur og einn fyrir ætlaðan ölvunarakstur.
Bæjaryfirvöld á Akureyri ákváðu í vikunni að banna ungmennum á aldrinum 18-23 ára að tjalda á tjaldsvæðum bæjarins. Daníel sagði, að þessi ákvörðun hefði ekki valdið neinum vandamálum í gær og fólk, sem hefði tjaldað á öðrum svæðum, hefði tekið tjöld sín upp án mótþróa ef um það var beðið. Þá sagðist Daníel ekki hafa heyrt af neinum vandamálum á öðrum stöðum í nágrenni Akureyrar.
Lögreglan í Vestmannaeyjum segir að þjóðhátíð hafi farið afar vel fram í nótt og engin sérstök mál hafi komið upp þrátt fyrir mikinn mannfjölda í Herjólfsdal en áætlað er að 9-10 þúsund manns hafi verið í dalnum. Veður batnaði mjög í gærkvöldi en þá lægði eftir talsvert hvassviðri í gær og engin rigning var í nótt. Í morgun hefur síðan birt enn frekar til.
Innlent »
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
- „Ýmislegt að vinna með okkur“
- Persónulegar illdeilur á Bergþórshvoli
- Uppsagnir og hagræðing
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 5. ágúst 2007, Innlent Hátíðarhöld á Akureyri og í Eyjum fóru vel fram
- Laugardagur, 2. ágúst 2008, Innlent Hátíðir fóru vel fram
- Föstudagur, 3. ágúst 2007, Innlent 4.000 manns mættir á þjóðhátíð
- Laugardagur, 4. ágúst 2007, Innlent Sól og blíða í Herjólfsdal
- Laugardagur, 2. ágúst 2008, Innlent Flogið stanslaust fram á kvöld
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































