Nektarsýningar liðin tíð?

Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur afturkallað leyfi veitingastaðarins Strawberries í Lækjargötu í Reykjavík til reksturs og var staðnum lokað sl. fimmtudagskvöld. Í samtali við Morgunblaðið segir Jón H. B. Snorrason, starfandi lögreglustjóri í Reykjavík, að starfsemin, sem fram fór á staðnum, hafi ekki reynst samrýmast starfsleyfinu og því hafi staðnum verið lokað. Aðspurður segir hann grun hafa leikið á að nektarsýningar færu fram á staðnum, sem aðeins hafði kráarleyfi.

Samkvæmt nýjum lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, sem tóku gildi 1. júlí sl., eru nektarsýningar bannaðar nema sérstakt leyfi sé fyrir hendi. Leyfisveitendur eru sýslumenn, nema í Reykjavík þar sem lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu gefur út leyfi í umdæmi hans. Í máli Goldfingers var leyfisveitandi því sýslumaðurinn í Kópavogi. Samkvæmt lögunum þarf leyfisveitandi að leita umsagna hjá sveitarstjórn, heilbrigðisnefnd, slökkviliði, vinnueftirliti, byggingafulltrúa og lögreglunni. Aðeins er heimilt að gefa út rekstrarleyfi með undanþágu um nektarsýningar ef allir umsagnaraðilar veita umsókninni jákvæða umsögn. Í tilfelli Goldfingers lagðist lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu gegn því að staðurinn fengi leyfi til nektarsýninga. Sökum þessa hefur nektardansstaðurinn Goldfinger misst leyfi til nektarsýninga og er ekki útlit fyrir að staðurinn fái það á ný. Eftir því sem blaðamaður kemst næst var Goldfinger eini staðurinn sem hafði leyfi til nektarsýninga en komið var að reglubundinni endurnýjun rekstrarleyfis staðarins en gamla leyfið rann út nú um mánaðamótin.

Undanþágu hafnað á grundvelli mannúðasjónarmiða

„Lögin heimila ekki nektardans. Það er hægt að veita undanþágu og hann [Ásgeir Þór Davíðsson] var að sækja um undanþágu frá hinu almenna banni og umsögn okkar var í tilefni af beiðni sýslumannsins í Kópavogi," segir Jón.

Aðspurður segir hann ljóst að umsögnin sé almennt orðuð og lýsi almennu viðhorfi lögreglustjóra. Það þýðir, að hans sögn, að innihald umsagnarinnar eigi við um alla aðra staði sem sækja myndu um undanþágu frá lögunum og leita eftir heimild til að stunda nektardans í atvinnuskyni. Spurður hvort hér sé um stefnumörkun að ræða sagðist Jón ekki vilja tjá sig um það og vísaði einvörðungu til laganna sem bönnuðu nektarsýningar nema með undanþágu. Að sögn Jóns kveða lögin á um, að veitingastaðir skuli endurnýja leyfi innan tveggja ára frá gildistöku nýju laganna. Því hefði tæknilega getað komið upp sú staða, að skemmtistaður hefði fengið eða endurnýjað leyfi um nektarsýningar áður en nýju lögin tóku gildi og hefði sá staður þá haft leyfi til nektarsýningar fram á mitt ár 2009.

Í umsögn lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að reynsla undanfarinna ára af eftirliti með veitingastöðum sem boðið hafi upp á nektardans í atvinnuskyni sé miður góð. „Nokkur reynsla er af því hér á landi að starfsemi sem býður upp á nektardans byggist nær eingöngu á ungum, erlendum stúlkum sem hingað koma til starfa. Reynst hefur ómögulegt að kanna hjá þeim stöðu þeirra og aðstæður og ástæðu þess að þær stunda þessa iðju og hvort þær séu þvingaðar til þess með einum eða öðrum hætti," segir m.a. í umsögn lögreglustjórans og er á það bent, að rannsóknir erlendra yfirvalda hafi sýnt að þær stúlkur sem þátt taki í þessari starfsemi séu oft mjög ungar, hafi verið misnotaðar með ýmsu móti, til dæmis vegna fátæktar, áfengis- og/eða eiturlyfjafíknar og í mörgum tilvikum fórnarlömb mansals og/eða annarra glæpa. Jafnframt er á það bent, að eftirlits- og löggæsluþörf staða sem bjóða upp á nektardans sé almennt mjög rík.

„Vegna þessara upplýsinga og í ljósi þeirra staðreynda að oftar en ekki eru það skipulögð glæpasamtök sem útvega stúlkur til þessarar starfsemi, þykir rétt vegna ríkjandi mannúðarsjónarmiða og jafnframt almannahagsmuna og löggæslusjónarmiða að neita alfarið um leyfi til þess að heimila veitingastöðum að reka starfsemi sem býður upp á nektardans."

Ásgeir Þór Davíðsson, eigandi Goldfingers, segist afar ósáttur við umsögn lögreglustjórans og vildi, í samtali við Morgunblaðið, meina að umsögnin gæti ekki talist lögleg þar sem hún byggðist á almennum upplýsingum eða grunsemdum en ekki á staðreyndum eða kæru á hendur umsóknaraðila. „Mér líður eins og verið sé að gera mig að glæpamanni. Ég hef aldrei brotið lögin og hef alltaf verið með öll tilskilin starfsleyfi og atvinnuleyfi fyrir þessar stúlkur. Mér líkar ekki þetta lögregluríki sem hér virðist hafa myndast og er afar ósáttur við það alræðisvald sem Jón H. B. Snorrason hefur tekið sér í þessu máli," segir Ásgeir og mótmælti því einnig að staður hans hefði kallað á aukna löggæslu. Tekur hann fram að dansmeyjar hans muni áfram dansa fyrir viðskiptavini, þær muni þá bara dansa annan dans en nektardans, t.d. tangó. „Það virðist vera ólöglegt að berhátta sig á sviði samkvæmt nýju lögunum en ég get ekki séð að neitt banni stúlkunum að klæða sig í fyrir framan gestina," segir Ásgeir og bendir á að auk þess sé hægt að notast við slæður til að hylja nekt stúlknanna.

Taka svokallaðar selskapsdömur við af nektardansmeyjum?

Samkvæmt upplýsingum frá eftirlitsdeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var Goldfinger eini staðurinn sem hafði leyfi til nektarsýninga áður en nýju lögin tóku gildi. Þegar eftirlitsdeildin fór í sína síðustu eftirlitsferð sl. vor hafi hins vegar verið starfandi svokallaðar "selskapsdömur" á alls fimm stöðum, þ.e. á Strawberries, Óðali, Bóhem, Vegas og í Kampavínsklúbbnum. Frá eftirlitsdeildinni fengust þær upplýsingar að um hefði verið að ræða stúlkur sem veittu viðskiptavinum sem keyptu sér kampavín selskap. Ekki fengust upplýsingar um það hvort sú þjónusta félli innan eða utan nýju laganna.

Eftir því sem blaðamaður kemst næst eru ekki starfandi neinir staðir utan höfuðborgarsvæðisins þar sem sýndur er nektardans. Á árum áður var rekinn staðurinn Casino í Keflavík auk þess um árabil staðirnir Setrið og Venus á Akureyri.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Þjófar í gæsluvarðhald

15:39 Tveir karlar á þrítugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 1. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og var það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Mennirnir voru handteknir í gærmorgun eftir að þeir höfðu brotist inn í hús í Grafarvogi en þýfi fannst í fórum þeirra. Meira »
Úr safni.

Átak gegn ölvunarakstri

15:29 130 ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni í gærkvöld í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Einn þeirra reyndist ölvaður við stýrið og á viðkomandi ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Þremur til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir refsimörkum. Meira »

Betur má ef duga skal

15:20 Umferðarráð telur mikilvægt að ekki verði slakað á kröfum til að viðhalda og byggja áfram upp öruggt og skilvirkt vegakerfi. Það hvetur stjórnvöld til að standa vörð um umferðaröryggi allra landsmanna við framkvæmdir í vegagerð. Meira »

Kærði undirskriftafölsun

Daníel Guðjónsson yfirlögregluþjónn sést hér lengst til vinstri en við hlið hans standa Björn Jósef ...
14:37 „Manni líður ekki vel með það. Þetta er leiðinleg tilfinning og mér finnst ástæðulaust að sitja undir því og ætla ekki að gera það, þess vegna kærði ég þetta til að fara fram á rannsókn á því,“ segir Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn á Akureyri, í samtali við blaðamann mbl.is en Daníel er á meðal þeirra einstaklinga sem settir voru á meðmælendalista Ástþórs Magnússonar að sér forspurðum. Meira »

Auðveldar fólki að sækja um búsetu

Úr safni.
14:11 Breytt fyrirkomulag við mat á þörf fólks fyrir dvalar- eða hjúkrunarrými tekur gildi 1. júní. Vistunarmatsnefndir dvalar- og hjúkrunarrýma verða sameinaðar og í þeirra stað verður ein nefnd í hverju heilbrigðisumdæmi; færni- og heilsufarsnefnd, sem metur þörf fólks fyrir þessi úrræði. Meira »

Framsetning flugmiðaverðs óskýr

Flugvél Iceland Express í höfn
14:40 Auðvelt er að gera verðsamanburð á milli bókunarvéla flugfélaganna á vefnum en mismunandi er hvernig verð flugmiða er sett þar fram. Getur þannig reynst viðskiptavinum flókið að átta sig á því í hverju hin ýmsu aukagjöld, sem eru hluti af fargjaldi, felast. Meira »

Meta lögmæti samningsins

Sveitarfélagið Garður.
14:33 Nýr meirihluti í bæjarstjórn Garðs ætlar að láta meta lögmæti samnings sem fyrri meirihluti gerði við Ásmund Friðriksson bæjarstjóra. Auglýst verður eftir nýjum bæjarstjóra í fjölmiðlum á morgun. Meira »

Rætt um að kaupa notaðar þyrlur

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF LÍF
13:50 Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra kynnti í ríkisstjórn í morgun hugmyndir um að kaupa tvær notaðar björgunarþyrlur sambærilegum þeim sem Landhelgisgæslan er nú með í notkun. Þessi kostur er ódýrari en að kaupa nýjar þyrlur. Meira »

Sjálfstæðismenn ósammála um göngin

Frá fundi fjárlaganefndar Alþingis.
13:26 Sjálfstæðismenn í fjárlaganefnd klofnuðu í afstöðu til frumvarps um jarðgöng undir Vaðlaheiðargöng. Ásbjörn Óttarsson og Illugi Gunnarsson leggjast gegn frumvarpinu en Kristján Þór Júlíusson styður það. Meira »

Hjólin fá að snúast að nýju myndskeið

Hjol
12:23 Í dag hófst formlega hjólasöfnun Barnaheilla og flugfélagsins WOW þar sem landsmenn geta gefið gömul hjól með því að koma þeim á Sorpu en Mæðrastyrksnefnd mun sjá dreifingu hjólanna. Hjólin mega vera biluð því sérfræðingar munu lagfæra og gera við þau. Nemendur í Álfhólsskóla gáfu ónýtt hjól í dag. Meira »

Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna

Í ár tóku 250 bekkir víðsvegar um landið þátt í samkeppninni.
13:19 Úrslit í samkeppninni Tóbakslaus bekkur liggja fyrir en alls fá bekkir frá níu skólum á landinu verðlaun. Keppnin var haldin meðal meðal 7. og 8. bekkja í grunnskólum landsins. Meira »

„Hvatning til okkar beggja“

Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff.
12:12 „Þetta er ánægjuleg staðfesting á því sem við Dorrit höfum fundið á fundum, vinnustöðum og á viðræðum við fólk undanfarið,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, um nýja skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 þar sem hann mældist með 53,9% fylgi. Meira »

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
11:51 Óvanaleg sjón blasti við íbúum Súðavíkur í morgun, en þá hafði einn íbúi bæjarins brugðið á það ráð að flagga fána Landsbankans öfugt, og í hálfa stöng. Meira »

Geir í nýtt starf

Geir H. Haarde
11:43 Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur gengið til liðs við OPUS lögmenn sem ráðgjafi í alþjóðlegum verkefnum.  Meira »

Ölvaður og réttindalaus

11:37 Ölvaður ökumaður, karlmaður á fertugsaldri, velti bifreið á Reykjanesbraut í fyrrinótt. Hann missti stjórn á bílnum sem hafnaði utan vegar milli akreina. Einn farþegi var í bílnum og sluppu báðir ómeiddir. Meira »

Fengu 9,8 í meðaleinkunn

Nýstúdentar frá Fjölbrautarskólanum í Garðabæ
11:49 Tveir nýstúdentar frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, Katrín Ásta Ingimarsdóttir og Sæþór Pétur Kjartansson, fengu 9,8 í meðaleinkunn í námi sínu. Meira »

Mikið um reiðhjólaþjófnað

Mynd úr safni
11:39 Þjófnuðum á reiðhjólum hefur fjölgað umtalsvert í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum undanfarna daga.   Meira »

Tekinn á 134 km hraða

11:36 Ellefu ökumenn hafa verið staðnir að hraðakstursbrotum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók var á 134 km hraða á Reykjanesbrautinni. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
GLÆSILEG KENNSLUBIFREIÐ
Glæsileg kennslubifreið Subaru XV 4WD - árg. 2012. Þ...
Garmin Nuvi 1490T GPS tæki til sölu
Raddleiðsögn 5,0'' snertiskjár, umferðamóttakari, akgreinavísir, bluetooth, hand...
TÖKUM GARÐINN Í GEGN!KLIPPINGAR, TRJÁFEL
Tökum garðinn í gegn! Klippingar, trjáfellingar, beða- hre...
NÝJAR VÖRUR Í HVERRI VIKU
FLOTTUR BARNAFATNAÐUR, BARNAVÖRUR, SNYRTIVÖRUR OG MARGT FLEIRA. FRÁBÆR VERÐ - E...
 
12836 fellahverfi útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Opinn fundur
Félagsstarf
Félag sjálfstæð...
Bílar ríkiskaup - tilboð óskast

Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar og...
Kynning skipulagsmála í rangárþingi eystra

Kynning skipulagstillöguí Rangárþin...