Sameiginleg bókun gegn Vinstri grænum
Á fundi borgarráðs var lagt fram bréf Hjörleifs Kvarans, aðstoðarforstjóra Orkuveitu Reykjavíkur, frá 16. júlí, sbr. samþykkt stjórnar Orkuveitunnar sama dag, þar sem óskað var staðfestingar á viljayfirlýsingu Orkuveitu Reykjavíkur, Reykjanesbæjar, Hafnarfjarðarbæjar og Geysis Green Energy ehf. um samstarf innan Hitaveitu Suðurnesja, dags. 11. júlí.
Var viljayfirlýsingin samþykkt með 6 atkvæðum gegn 1.
Lýðræðislegu aðhaldi innan HS stefnt í hættu
Borgarráðsfulltrúi Vinstri grænna, Sóley Tómasdóttir, óskaði eftir að eftirfarandi yrði bókað:"Það er afdráttarlaus afstaða Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs að grunnþjónusta samfélagsins skuli vera á hendi ríkis og sveitarfélaga. Með nýjum samningi um kaup á hlutum í Hitaveitu Suðurnesja yrði brotið í blað í orkumálum Íslendinga. Þetta krefst víðtækrar umræðu í þjóðfélaginu og lýðræðislegrar afgreiðslu á Alþingi og hjá sveitarfélögum.
Áform fyrri ríkisstjórnar um að einkavæða 15,2% í Hitaveitu Suðurnesja hafa engu viðnámi mætt hjá stjórnvöldum þrátt fyrir breytta samsetningu ríkisstjórnar og nú stefnir í að gengið verði enn lengra og að 32% veitunnar verði í eigu einkaaðila. Ef fram fer sem horfir er lýðræðislegu aðhaldi innan Hitaveitu Suðurnesja stefnt í uppnám og almannahagsmunir fyrir borð bornir."
Stórvarasöm stefna og hættulegt fordæmi
Með þessari yfirlýsingu er vakin athygli á stórvarasamri stefnu og hættulegu fordæmi og þess krafist að ekki verði hróflað við grunnþáttum samfélagslegrar þjónustu. Borgarráði ber að beita sér í þágu almennings og þar með leggjast gegn einkavæðingu orkugeirans. Í því ljósi ættu borgaryfirvöld að hafa frumkvæði að umræðu á milli ríkis og sveitarfélaga um hvernig megi tryggja að orkufyrirtæki haldist í almannaeigu en gangi ekki kaupum og sölum á hlutabréfamarkaði eins og nú stefnir í varðandi Hitaveitu Suðurnesja."Segja bókun vekja furðu
Í framhaldi óskuðu borgarráðsfulltrúar Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar, Björn Ingi Hrafnsson, Björk Vilhelmsdóttir, Dagur B. Eggertsson, Gísli Marteinn Baldursson og Kjartan Magnússon, að eftirfarandi yrði bókað:"Bókun Vinstri grænna vekur furðu þar sem ljóst er að aðkoma Orkuveitu Reykjavíkur kom í veg fyrir að Hitaveita Suðurnesja færðist að meirihluta í hendur einkaaðila."





































