Orkustofnun geri tafarlausa úttekt á Fjarðarárvirkjun

Framkvæmdir við Fjarðarárvirkjun.

Framkvæmdir við Fjarðarárvirkjun. mbl.is/Pétur

Iðnaðarráðuneytið hefur óskað eftir því að Orkustofnun kalli inn nú þegar öll gögn frá Fjarðarárvirkjun og eftirlitsaðilum vegna hennar. Um leið er lagt er fyrir stofnunina að fulltrúar hennar verði sendir tafarlaust á vettvang til að gera úttekt á stöðu framkvæmda með tilliti til þess hvort, og þá hvernig, framkvæmdir hafi farið umfram heimildir.

Fram kemur í tilkynningu frá iðnaðarráðuneytinu, að ráðherra muni að fenginni úttekt Orkustofnunar meta hvort ástæða sé til þess að afturkalla virkjunarleyfi Fjarðarárvirkjunnar. Orkustofnun hafi sömuleiðis verið falið af ráðuneytinu að kanna hvort leyfishafi Múlavirkjunar hafi við framkvæmdir farið fram úr heimildum og skilyrðum sem sett voru í aðdraganda veitingu virkjanaleyfis.

Í framhaldi af niðurstöðu stofnunarinnar og með hliðsjón af umsögnum annarra stofnana, t.d. Skipulagsstofnunar og Veiðimálastofnunar, mun ráðherra taka ákvörðun um hvort virkjanaleyfi verði veitt tímabundið og með hvaða skilyrðum. Þá hafa þeir þrír ráðherrar, sem málið varðar, iðnaðarráðherra, umhverfisráðherra og félagsmálaráðherra ákveðið að skipa starfshóp til þess að gera almenna rannsókn á verkferlum, ákvörðunum og lögum tengdum leyfisveitingum og framkvæmdaeftirliti vegna virkjunarframkvæmda, meðal annars í ljósi þeirra álitamála sem upp hafa komið í tengslum við Múlavirkjun og Fjarðarárvirkjun.

Iðnaðarráðuneytið hefur falið Orkustofnun að ganga nú þegar eftir því að virkjunarleyfishafi í Fjarðará afhendi hönnunargögn vegna Bjólfsvirkjunar og Gúlsvirkjunar í samræmi við heimildir í reglugerð um framkvæmd raforkulaga. Jafnframt verði gengið úr skugga um að ekki sé farið út fyrir þær forsendur sem fram koma í umsögn Orkustofnunar og lágu til grundvallar ákvörðun Skipulagsstofnunar og virkjunarleyfa iðnaðarráðherra.

Með tilliti til þeirra alvarlegu ábendinga sem fram koma í umsögn Þórodds F. Þóroddsonar, sviðsstjóra umhverfissviðs Skipulagsstofnunar, vegna framkvæmda við Fjarðarárvirkjun, hefur iðnaðarráðuneytið ennfremur lagt fyrir Orkustofnun að hún sendi starfsmenn sína þegar í stað á vettvang til að meta hverra úrbóta er þörf varðandi virkjunarframkvæmdirnar. Orkustofnun getur fylgt kröfum sínum um úrbætur eftir að viðlögðum dagsektum sem nema 50.000 til 500.000 krónum á dag.

Í umsögn Þórodds kemur m.a. fram að umrót og eyðilegging á náttúru sé langt út fyrir fyrirhugað athafnasvæði. Verkþættir sem þegar hafi verið unnir liggi undir skemmdum og þurfi að vinna þá upp á nýtt. Umhverfisáhrif séu óljós.

Iðnaðarráðuneytið segir, að meðal alvarlegustu athugasemda sviðsstjórans séu, að óvíst sé, hvort framkvæmd verksins uppfylli alla öryggisstaðla vegna lagningar þrýstipípu og byggingar stíflugarðs.

„Umsögn Þórodds styður það sem virtur náttúrufræðingur hefur fullyrt í fjölmiðlum að Fjarðarárvirkjun sé ekki aðeins dæmi um "óafmáanleg náttúruspjöll" heldur sé hún ógn við öryggi íbúa Seyðisfjarðar. Fullyrðingar um að lífi og limum Seyðfirðinga kunni að vera hætta búin vegna virkjunarframkvæmda eru þess eðlis að óhjákvæmilegt er að bregðast við þeim af einurð," segir í tilkynningu iðnaðarráðuneytis. Er þar vísað til greinar, sem Hjörleifur Guttormsson skrifaði í Morgunblaðið sl. laugardag.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þjófar í gæsluvarðhald

15:39 Tveir karlar á þrítugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 1. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og var það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Mennirnir voru handteknir í gærmorgun eftir að þeir höfðu brotist inn í hús í Grafarvogi en þýfi fannst í fórum þeirra. Meira »
Úr safni.

Átak gegn ölvunarakstri

15:29 130 ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni í gærkvöld í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Einn þeirra reyndist ölvaður við stýrið og á viðkomandi ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Þremur til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir refsimörkum. Meira »

Betur má ef duga skal

15:20 Umferðarráð telur mikilvægt að ekki verði slakað á kröfum til að viðhalda og byggja áfram upp öruggt og skilvirkt vegakerfi. Það hvetur stjórnvöld til að standa vörð um umferðaröryggi allra landsmanna við framkvæmdir í vegagerð. Meira »

Kærði undirskriftafölsun

Daníel Guðjónsson yfirlögregluþjónn sést hér lengst til vinstri en við hlið hans standa Björn Jósef ...
14:37 „Manni líður ekki vel með það. Þetta er leiðinleg tilfinning og mér finnst ástæðulaust að sitja undir því og ætla ekki að gera það, þess vegna kærði ég þetta til að fara fram á rannsókn á því,“ segir Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn á Akureyri, í samtali við blaðamann mbl.is en Daníel er á meðal þeirra einstaklinga sem settir voru á meðmælendalista Ástþórs Magnússonar að sér forspurðum. Meira »

Auðveldar fólki að sækja um búsetu

Úr safni.
14:11 Breytt fyrirkomulag við mat á þörf fólks fyrir dvalar- eða hjúkrunarrými tekur gildi 1. júní. Vistunarmatsnefndir dvalar- og hjúkrunarrýma verða sameinaðar og í þeirra stað verður ein nefnd í hverju heilbrigðisumdæmi; færni- og heilsufarsnefnd, sem metur þörf fólks fyrir þessi úrræði. Meira »

Framsetning flugmiðaverðs óskýr

Flugvél Iceland Express í höfn
14:40 Auðvelt er að gera verðsamanburð á milli bókunarvéla flugfélaganna á vefnum en mismunandi er hvernig verð flugmiða er sett þar fram. Getur þannig reynst viðskiptavinum flókið að átta sig á því í hverju hin ýmsu aukagjöld, sem eru hluti af fargjaldi, felast. Meira »

Meta lögmæti samningsins

Sveitarfélagið Garður.
14:33 Nýr meirihluti í bæjarstjórn Garðs ætlar að láta meta lögmæti samnings sem fyrri meirihluti gerði við Ásmund Friðriksson bæjarstjóra. Auglýst verður eftir nýjum bæjarstjóra í fjölmiðlum á morgun. Meira »

Rætt um að kaupa notaðar þyrlur

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF LÍF
13:50 Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra kynnti í ríkisstjórn í morgun hugmyndir um að kaupa tvær notaðar björgunarþyrlur sambærilegum þeim sem Landhelgisgæslan er nú með í notkun. Þessi kostur er ódýrari en að kaupa nýjar þyrlur. Meira »

Sjálfstæðismenn ósammála um göngin

Frá fundi fjárlaganefndar Alþingis.
13:26 Sjálfstæðismenn í fjárlaganefnd klofnuðu í afstöðu til frumvarps um jarðgöng undir Vaðlaheiðargöng. Ásbjörn Óttarsson og Illugi Gunnarsson leggjast gegn frumvarpinu en Kristján Þór Júlíusson styður það. Meira »

Hjólin fá að snúast að nýju myndskeið

Hjol
12:23 Í dag hófst formlega hjólasöfnun Barnaheilla og flugfélagsins WOW þar sem landsmenn geta gefið gömul hjól með því að koma þeim á Sorpu en Mæðrastyrksnefnd mun sjá dreifingu hjólanna. Hjólin mega vera biluð því sérfræðingar munu lagfæra og gera við þau. Nemendur í Álfhólsskóla gáfu ónýtt hjól í dag. Meira »

Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna

Í ár tóku 250 bekkir víðsvegar um landið þátt í samkeppninni.
13:19 Úrslit í samkeppninni Tóbakslaus bekkur liggja fyrir en alls fá bekkir frá níu skólum á landinu verðlaun. Keppnin var haldin meðal meðal 7. og 8. bekkja í grunnskólum landsins. Meira »

„Hvatning til okkar beggja“

Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff.
12:12 „Þetta er ánægjuleg staðfesting á því sem við Dorrit höfum fundið á fundum, vinnustöðum og á viðræðum við fólk undanfarið,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, um nýja skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 þar sem hann mældist með 53,9% fylgi. Meira »

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
11:51 Óvanaleg sjón blasti við íbúum Súðavíkur í morgun, en þá hafði einn íbúi bæjarins brugðið á það ráð að flagga fána Landsbankans öfugt, og í hálfa stöng. Meira »

Geir í nýtt starf

Geir H. Haarde
11:43 Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur gengið til liðs við OPUS lögmenn sem ráðgjafi í alþjóðlegum verkefnum.  Meira »

Ölvaður og réttindalaus

11:37 Ölvaður ökumaður, karlmaður á fertugsaldri, velti bifreið á Reykjanesbraut í fyrrinótt. Hann missti stjórn á bílnum sem hafnaði utan vegar milli akreina. Einn farþegi var í bílnum og sluppu báðir ómeiddir. Meira »

Fengu 9,8 í meðaleinkunn

Nýstúdentar frá Fjölbrautarskólanum í Garðabæ
11:49 Tveir nýstúdentar frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, Katrín Ásta Ingimarsdóttir og Sæþór Pétur Kjartansson, fengu 9,8 í meðaleinkunn í námi sínu. Meira »

Mikið um reiðhjólaþjófnað

Mynd úr safni
11:39 Þjófnuðum á reiðhjólum hefur fjölgað umtalsvert í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum undanfarna daga.   Meira »

Tekinn á 134 km hraða

11:36 Ellefu ökumenn hafa verið staðnir að hraðakstursbrotum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók var á 134 km hraða á Reykjanesbrautinni. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Burðarpokar og burðarsjöl www.hondihond.is
Burðarsjöl og burðarpokar í miklu úrvali. Henta börnum frá fæðingu til þriggj...
Handunnar vörur úr íslensku roði & leðri
Armbönd, símaveski, servíettuhringir, töskur o.fl. unnið úr íslensku roði og leð...
YAMAHA V-STAR 650cc 2005
Fallegt og þægilegt hjól fyrir byrjendur og lengra komna, ekið 9800 km vel með f...
Sumarhús til leigu - Reykholt Bisk.
Bústaður til leigu við Reykholt í Biskupstungum. Laus þessa viku (Hvítasunnuhelg...
 
Sýslumaðurinn á selfosi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Útboð hólmavíkurhöfn

STRANDABYGGÐ Útboð Hólmavíkurhöfn...
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...
Trjáplöntusala bjarkarholti mosfellsbæ

Trjáplöntusala Bjarkarholti 1, Mosfellsb...