Berjaspretta góð á Vestfjörðum

Krækiberjalyng í landi Aðalvíkur á Ströndum í síðustu viku.
Krækiberjalyng í landi Aðalvíkur á Ströndum í síðustu viku. mynd/Ingibjörg Haraldsdóttir

Berjaspretta er góð á Vestfjörðum í sumar eins og annarstaðar á landinu. Þannig eru krækiber á Ströndum víða orðin vel þroskuð og ljúffeng. Á Barðaströnd eru krækiberin ekki eins stór en þar mátti hins vegar um helgina finna heilu hlíðarnar bláar af berjum, mestmegnis aðalbláberjum.

Í Morgunblaðinu í dag segir Sveinn Rúnar Hauksson, áhugamaður um berjatínslu, að hann hafi fengið mjög góðar fréttir af berjasprettu á öllu landinu. Ingibjörg Hinriksdóttir staðfesti í pósti til mbl.is, að berjaspretta á Vestfjörðum væri með besta móti.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert