Ákvörðun um að banna ungmennum að tjalda tekin af illri nausyn

Frá hátíðinni Ein með öllu á Akureyri um verslunarmannahelgina.

Frá hátíðinni Ein með öllu á Akureyri um verslunarmannahelgina. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri Akureyrar, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hún segir að ákvörðun um að banna ungmennum á aldrinum 18-23 ára að tjalda á tjaldsvæðum bæjarins um verslunarmannahelgina, hafa verið tekna af illri nauðsyn en fjölskylduskemmtanir, sem skipulagðar hafi verið í bænum undanfarnar verslunarmannahelgar, hafi farið úr böndunum.

Sigrún Björk segist standa við þessa ákvörðun en mikið hafi verið rætt um þessar ráðstafanir meðal bæjarbúa og annars staðar undanfarna daga. Nú þurfi Akureyringar hins vegar að slíðra sverðin og nota næsta árið til að ákveða hvernig standa beri að fjölskyldumhátíðum í bænum til framtíðar.

Yfirlýsingin er eftirfarandi:

    Akureyri státar sig af því að vera fjölskylduvænn bær. Bæjaryfirvöld hafa á síðustu árum lagt sig fram um að bjóða fjölskyldufólki góðar aðstæður og leitast við að skapa bæjarfélaginu ímynd öflugs mennta- og menningarsamfélags. Undanfarnar verslunarmannahelgar hefur fallið skuggi á þessa viðleitni vegna þess að fjölskylduskemmtanir sem skipulagðar hafa verið í bænum hafa farið úr böndunum. Sú þróun hefur valdið bæjarbúum og bæjaryfirvöldum miklum áhyggjum og ljóst var að bregðast varð við með markvissum hætti.

    Eftir miklar umræður um hvaða leiðir væru færar til að tryggja að skipulögð fjölskylduhátíð breyttist ekki í hamslausa útihátíð greip bæjarstjóri til þess ráðs að takmarka aðgang unglinga að tjaldsvæðum bæjarins um þessa verslunarmannahelgi. Ákvörðunin var tekin af illri nauðsyn en því miður var þetta eina færa leiðin til að koma böndum á ástandið sem ríkt hefur í bænum um verslunarmannahelgar undanfarin ár. Þessi ákvörðun var tekin og ég stend við hana.

    Þessar ráðstafanir báru greinilegan árangur og hefur fjöldi bæjarbúa haft samband við bæjaryfirvöld og lýst ánægju sinni með hvernig til tókst. Allt annar bragur var á tjaldsvæðum bæjarins og samkvæmt upplýsingum lögreglu var mun rólegra í bænum en undanfarnar verslunarmannahelgar. Í fyrsta sinn í langan tíma var um sannkallaða fjölskylduhátíð að ræða.

    Skipuleggjendur hátíðarinnar hafa haldið því fram að þessar aðgerðir séu ástæðan fyrir því að helmingi færri sóttu bæinn heim um þessa helgi en í fyrra, eða um 6000 manns. Í því sambandi ber að geta þess að veðurspá fyrir landið þessa helgi var verst fyrir Norðurland og ekki er vafi á að slæmt veður hafði mikil áhrif á aðsóknina að hátíðinni. Þetta kom einnig skýrt fram í dræmri aðsókn að Síldarævintýrinu á Siglufirði. Í frétti frá Speli segir ennfremur: “Umferðin um Hvalfjarðargöng var um 4% minni um nýliðna verslunarmannahelgi en um sömu helgi í fyrra. Núna fóru 37.400 bílar um göngin frá fimmtudegi til mánudags en 39.000 á sama tíma í fyrra, sem er fækkun um 1.600 bíla.” Það er því ljóst að mun fleiri þættir en aldurstakmark á tjaldsvæðum ollu minni aðsókn að hátíðinni í ár en í fyrra.

    Mikið hefur verið rætt um þessar ráðstafanir meðal bæjarbúa og annars staðar undanfarna daga. Nú þurfa Akureyringar hins vegar að slíðra sverðin og nota næsta árið til að ákveða hvernig standa beri að fjölskyldumhátíðum í bænum til framtíðar.

    Akureyri 9. ágúst 2007

    Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Héraðsdómur Suðurlands.

Alsírsku drengirnir áfrýja

16:25 Alsírsku drengirnir sem sakfelldir voru í héraðsdómi Suðurlands fyrir að framvísa fölsuðum vegabréfum við komu til Íslands hafa áfrýjað dómnum til hæstaréttar. Héraðsdómur dæmdi þá til 30 daga fangelsisvistar þann 30. apríl síðastliðinn. Meira »
Á sýningunni var hægt að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum.

Listflug við Reykjavíkurflugvöll

15:54 Fjöldi fólks hefur í dag fylgst með flugvélum sýna listflug á Reykjavíkurflugvelli, en Flugmálafélags Íslands stóð fyrir flugsýningu þar sem hægt var að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum. Meira »

Ákærður fyrir að stinga mann

Guðgeir Guðmundsson var úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir árásina.
14:26 Ákæra gegn Guðgeiri Guðmundssyni, sem sakaður er að hafa 5. mars. sl. stungið tvo starfsmenn lögmannsstofnunnar Lagastoða, verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Annar mannanna særðist lífshættulega og lá í marga daga á gjörgæsludeild. Meira »

Klára kvótamálin í vikunni

Atvinnuveganefnd stefnir að því að klára umfjöllun um frumvarp um veiðigjald í vikunni.
14:05 Boðaður hefur verið fundur í atvinnuveganefnd Alþingis á morgun til að ræða um kvótafrumvörpin. Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaformaður nefndarinnar, segir að frumvörpin verði ekki afgreidd úr nefndinni á morgun, en það verði gert síðar í vikunni. Meira »

Mætti innbrotsþjófum í forstofunni

12:05 Húsráðanda í Reykjanesbæ brá töluvert þegar hann kom heim til sín aðfaranótt laugardagsins en í forstofunni mættu honum tveir bláókunnugir karlmenn. Þeir tóku báðir til fótanna og hurfu út í nóttina. Meira »

Landsbjörg leitar enn að Ligitu

Ligitu Solomenceva
14:22 Landsbjörg leitar í dag að hinni 42 ára Ligitu Solomenceva frá Lettlandi. En til hennar hefur ekkert spurst síðan 13 maí. Hún var í sumarbústað við Meðalfellsvatn og var ein á ferð. Meira »

Hreint hjarta besta myndin

Grímur Hákonarson.
13:34 Heimildamynd Gríms Hákonarsonar Hreint hjarta var valinn besta heimildamyndin á Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda sem haldin var í sjötta sinn á Patreksfirði um helgina. Meira »

Veðurblíða víða um land

Búast má við fjölda fólks í sundi í dag.
11:35 Hiti fer allt upp í 20 gráður á Norðurlandi í dag en að sögn veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands verður mjög gott veður um allt land í dag og næstu daga. Meira »

Ölvaður ökumaður reyndi að stinga af

11:08 Sautján ökumenn óku yfir leyfilegum hámarkshraða við umferðareftirlit lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina. Ellefu gerðust brotlegir með þeim hætti á aðeins þremur klukkustundum í kringum miðnætti í gær. Meira »

Ferry heillaði í Hörpu

Bryan Ferry í grænum bjarma á tónleikunum í Hörpu í gærkvöldi.
00:43 Bryan Ferry vakti stormandi lukku þegar hann kom fram í Hörpu í gærkvöldi. Ferry lék mörg af sínum þekktustu lögum, jafnt frá sólóferli sínum sem af plötum sínum með hljómsveitinni Roxy Music. Ferry kemur aftur fram í Hörpu í kvöld. Meira »

Kosningamiðstöð Þóru opnuð

Þóra Arnórsdóttir.
10:48 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg í dag.   Meira »

Peningar ekki rót alls ills myndskeið

Peningar ekki rót alls ills
Í gær, 21:46 Framhaldsskólanemar eyða almennt mestum pening í mat, áfengi og bensín. Þeim gengur misvel að spara og fæstir hafa fengið nokkra fjármálafræðslu, en finnst þörf á því. Þetta kom í ljós þegar mbl.is spjallaði við ungmenni um fjármálalæsi, en í því hafa Íslendingar ítrekað fengið falleinkunn. Meira »

Fyrst til að verða meistari í bílasmíði

Anna Kristín á leið í útskriftina í gær.
Í gær, 21:19 „Áhuginn hafði alltaf blundað í mér,“ segir Anna Kristín Guðnadóttir, sem í gær útskrifaðist með meistarapróf í bílasmíði fyrst íslenskra kvenna. Meira »

Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti

Jónsi og Gréta á sviðinu í Bakú.
Í gær, 18:47 Íslenski Evróvisjónhópurinn var rúmlega hálfnaður á leiðinni heim þegar mbl.is náði tali af Hrafnhildi Halldórsdóttur nú fyrir stundu. Von er á hópnum til landsins með vél Icelandair í kvöld. Meira »

Catalina er í fullu fjöri

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.
Í gær, 17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944-1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal

Í gær, 19:40 Hvítasunnuhelgin virðist almennt ganga vel fyrir sig að sögn lögreglunnar um land allt enda sól og blíða víðast hvar og tíðindalítið ef frá er talið í Búðardal. Meira »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

Í gær, 18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
Í gær, 17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem hátíðin fer fram. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Dekurrófa til sölu - skoða skipti á jeppa
HÚSBÍLL TIL SÖLU skoða skipti á jeppa Fiat Joint 148 árg. 2005 ekinn 40 þús. ...
Fleetwood Cheyenne 2006 - Tilboð 1.450.000 stgr.
Fleetwood Cheyenne 10 fet. Mjög vel með farið fellihýsi - lítið notað, nýskr. 20...
Heimili í borginni- www.eyjasolibudir.is
Fallegar 2-3ja herb. íbúðir fyrir fjölskyldur og ferðalanga. ALLT til ALLS. Rúm ...
Til leigu 2-4 m sumarhús í Hvalfirði
Vel búin, gasgrill og heitur pottur. Frábært útsýni. Fjölbreytt afþreying í nágr...
 
Ársfundur byggðastofnunar 1 júní 2012
Fundir - mannfagnaðir
Ársfundur Byggðastofnunar 1. júní ...
Kennarasöður
Grunn-/framhaldsskóla
Kennarastöður Grunnskóli...
Kennari
Grunn-/framhaldsskóla
Svalbarðsskóli í ...